Læknablaðið - 15.12.2004, Blaðsíða 49
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SJÁLFSSKAÐAR
fleiri.) Heitið parasuicidium var lagt niður á þessum
rannsóknarvettvangi 1994 og hefur ekki verið tekið
upp aftur.
Langflestar Evrópuþjóðir auk Tyrklands og fsra-
els eiga fulltrúa í þessari rannsókn. Samkvæmt áður-
nefndri bók eru tölur tilbúnar frá 27 borgum í 19 lönd-
um. Þær sýna tvö tímabil, 1989-1993 og 1995-1999,
með 22.672 sjálfsvígstilraunum hjá 17.486 einstak-
lingum fyrri fimm árin, en 19.727 hjá 13.427 einstak-
lingum síðari fimm árin. Þetta er talið umfangsmesta
gagnasafn sinnar tegundar í heiminum. Þátttökuborg-
ir byrjuðu ekki allar á sama tíma og því segir munur-
inn á þessum tveimur tímabilum ekkert um breyting-
ar á tíðni sjálfsvígstilrauna í Evrópu almennt. Það er
enn verið að fínstilla strengina og nýjar borgir eru enn
að bætast við og fleiri boðnar velkomnar til þátttöku.
Norðurlönd og Miðevrópa hafa greinilega verið í for-
ystu lengst af og nú vantar aðeins Portúgal, ísland og
fáein Austurevrópulönd til að öll lönd álfunnar taki
þátt. Athyglisvert er að höfuðborgir landanna eru í
miklum minnihluta, Stokkhólmur, Helsinki, Tallinn,
Riga, Vilnius, Kiev, Bern, Aþena, Ankara. Hinar
borgirnar eru ekki höfuðborgir landa sinna.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri (FSA) hefur sýnt
þessum málum áhuga á seinni árum og rannsóknar-
teymi heimamanna tók saman yfirlit yfir skráðar sjálfs-
vígstilraunir 1985-2002 fyrir norræna geðlæknaþingið
í Reykjavík 2003. Ennfremur sendi FSA tvo fulltrúa
á heimsþing IASP (Alþjóðleg samtök um sjálfsvígs-
forvarnir) í Stokkhólmi í fyrra og aftur á Evrópuþing
(EASP) í Kaupmannahöfn í ágúst sl. Undirritaður
geðlæknir fór í bæði skiptin og sannfærðist um nauð-
syn þess að athuga það í fullri alvöru hvort Akureyri
eigi að koma sér á kortið og óska eftir samstarfi og
þátttöku í WHO/Euro Multicentre Study on Attemp-
ted Suicide. Mjög líklega þarf sérstaka heimild til að
safna gögnum áfram um fyrirsjáanlega framtíð, til
dæmis næstu fimm árin, sem nota mætti bæði til að
skipuleggja rannsóknir um eftirfylgd skjólstæðinga
hér nærsvæðis og ekki síður til að undirbúa Evrópu-
samstarf ef af verður.
Heimildir
1. Stengel E. Suicide and Attempted Suicide 2. útg. 1970.
2. Schmidtke A. Suicidal Behaviour in Europe 2004.
Orlofskostum
fjölgar
Orlofsnefnd LÍ hefur unnið að því að undanförnu
að fjölga þeim kostum sem læknum bjóðast í or-
lofi sínu. Ákveðið hefur verið að framlengja leigu-
samninginn um íbúðina í Barcelona og nú er verið
að ganga frá samningum um leigu á íbúð í Alicante
á meginlandi Spánar en Menorca dettur út.
Þá hefur verið tekin á leigu íbúð í hjarta Kaup-
mannahafnar. Um er að ræða 88 fermetra þriggja
herbergja íbúð við Paludan Mullersvej á Friðriks-
bergi. Þaðan er skammt í Frederiksborg Have og
dýragarðinn og röskur göngutúr eftir Vesterbro-
gade niður að Ráðhústorgi.
Innlendum kostum fjölgar líka. Nú er lokið
endurbótum á einbýlishúsinu að Skaftárvöllum 7 á
Kirkjubæjarklaustri og hefur húsið verið í leigu frá
því í haust. Þetta er rúmgott hús með svefnplássi
fyrir átta manns. Búið er að koma upp gufubaði
í bflskúrnum og að sjálfsögðu er hinn ómissandi
heiti pottur á veröndinni. Húsið er vel tækjum
búið og hentar jafnt til sumar- sem vetrardvalar.
Það liggur vel við ferðum inn á hálendið og í næsta
nágrenni eru fjölbreyttir möguleikar á veiðum,
hvort sem menn sækjast eftir lagardýrum eða fugl-
um himinsins.
Húsið á Kirkjubœjar-
klaustri hefttr verið tekið
í gegn og komið þar upp
bœði heitum potti og
gufubaði. Par er góð að-
staða til dvalar hvort sem
er að sumri eða vetri.
Hér að neðan er húsið
Mörk í Reykjadal.
Síðast en ekki síst ber að nefna
nýjustu fjárfestingu nefndarinnar
en hún afréð nú fyrir skemmstu
að kaupa heilsárshúsið Mörk sem
stendur í grennd við Laugaskóla í
Suður-Þingeyjarsýslu, nánar tiltekið
í hlíðinni ofan við skólann. Húsið er
nýlegt, reist fyrir tveimur árum og
hefur verið notað sem sumarbústaður og íbúðarhús.
Húsið er 64 fermetrar auk 25 fermetra svefnlofts. Á
hæðinni eru tvö svefnherbergi, eldhús, bað og stofa.
Verið er að koma húsinu í gott horf og heitum potti
verður komið upp fyrir sumarið en ætlunin er að
hefja útleigu á því eftir áramót.
Nánari upplýsingar um þessa kosti og aðra sem
Orlofsnefnd býður læknum verður að finna í bæklingi
nefndarinnar sem að þessu sinni kemur út í janúar og
verður dreift með fyrsta tölublaði Læknablaðsins á
nýju ári. Einnig má benda á heimasíðu nefndarinnar
en hana má nálgast af heimasíðu LÍ: lis.is
Læknablaðið 2004/90 869