Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.09.2014, Page 9

Fréttatíminn - 12.09.2014, Page 9
3 m/s - raforkuframleiðsla hefst 15 m/s 28 m/s 34 m/s - raforkuframleiðsla stöðvastKjöraðstæður til raforkuvinnslu Takk fyrir komuna! Það blés hressilega á gesti Landsvirkjunar við vindmyllurnar á Hafinu í sumar þegar þúsundir kynntu sér orkuvinnslu úr nýjum orkugjafa. Í sumar, líkt og fyrri ár, opnaði Landsvirkjun aflstöðvar sínar fyrir gestum sem vildu kynna sér starfsemi fyrirtækisins og raforkuvinnslu úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Yfir 15 þúsund manns sóttu fyrirtækið heim, í Kröflu, Búrfellsstöð, að vindmyllunum á Hafinu og Kárahnjúkastíflu. Yfir helmingur gestanna voru erlendir ferðamenn sem sýndu orkuvinnslu úr vatni, jarðvarma og vindi mikinn áhuga, enda Ísland eitt af fáum löndum í heiminum sem vinna nánast allt sitt rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Við þökkum öllum þeim sem lögðu leið sína til okkar kærlega fyrir komuna. Systir Brynhildar og nágrannar komu henni til aðstoðar við að byggja bókasafnið sem að mestu er úr endurunnum efnivið. Alls þurfti hún aðeins að leggja út um 15 þúsund krónur vegna byggingar hússins. Ljósmyndir/Facebook/Skakkasafn Margir sterkustu skákmenn Ís- lands eru skráðir til leiks í Flug- félagssyrpu Hróksins 2014 sem hefst í dag, föstudaginn 12. sept- ember, klukkan 12 í Pakkhúsi Hróksins við Reykjavíkurhöfn. Skákáhugamenn á öllum aldri eru boðnir velkomnir til leiks á fyrsta hádegismótið af fimm. Sigurvegari syrpunnar fær Grænlandsferð fyrir 2 frá Flugfélagi Íslands. Sömu verð- laun fær heppinn keppandi sem dreginn verður út. Þarna gefst kostur á að glíma við sterka skákmenn, því meðal þeirra sem eru skráðir til leiks eru Jóhann Hjartarson, Helgi Ólafsson, Hann- es H. Stefánsson, Hjörvar Steinn Grétarsson, Guðmundur Kjartans- son, Róbert Lagerman og Ingvar Þór Jóhannesson. Á laugardag klukkan 14 heldur skákveislan áfram í Pakkhúsinu. Þá teflir Jóhann Hjartarson, stiga- hæsti skákmaður Íslands, fjöltefli við nokkrar kempur úr skákfélagi eldri borgara og 12 ungmenna úr- valslið Björns Ívars Karlssonar skákkennara. Áhorfendur eru vel- komnir. Klukkan 15 á laugardag mun hinn eini sanni KK taka lagið fyrir gesti Pakkhússins. Samhliða skák og tónlist verð- ur tekið við framlögum í söfnun Hróksins fyrir börn á Austur- Grænlandi. Pakkahús Hróksins er í vöruskemmu Brims hf. við Geirs- götu. Á laugardag og sunnudag er tekið við fötum milli 13 og 16. Ósk- að er eftir nýjum eða óslitnum og hreinum fatnaði og skóm á 0 til 15 ára börn. -jh  FjölteFli tækiFæri til að teFla við sterkustu skákmenn landsins Skákveisla í Pakkhúsinu KK treður upp í Pakkhúsi Hróksins klukkan 15 á laugardag. fréttir 9 Helgin 12.-14. september 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.