Fréttatíminn - 12.09.2014, Blaðsíða 91
12. september 2014 — 7 —
Á hersla á heilsueflingu á vinnustöðum hefur verið sífellt meira áberandi seinustu ár.
Vaxandi áhugi er hjá fyrirtækj-
um og stofnunum að bjóða upp á
heilsustyðjandi vinnuumhverfi,
segir Guðbjörg Helga Birgis-
dóttir, hjúkrunar- og lýðheilsu-
fræðingur hjá Vinnuvernd ehf.
Hvert er ykkar starfssvið?
„Vinnuvernd er þjónustufyrir-
tæki sem sérhæfir sig á sviði
vinnuverndar og heilsueflingar
á vinnumarkaðinum. Starf okk-
ar beinist að starfsmönnum, en
breiður hópur fagaðila starfar
hjá Vinnuvernd. Með sameigin-
legri sérfræðiþekkingu er boðið
upp á heildræna þjónustu á þessu
sviði og eru verkefnin sniðin að
þörfum hvers og eins. Viðskipta-
vinahópurinn er fjölbreyttur og
fyrirtæki af öllum stærðargráð-
um nýta þjónustuna.“
Hvert er markmiðið með þjónust-
unni sem veitt er?
„Markmið þjónustunnar er að
stuðla að bættri heilsu og líðan
starfsmanna, auk þess að huga
að öryggi og almennri starfs-
ánægju. Við Íslendingar erum
ennþá aftarlega á merinni í þess-
um efnum ef við berum okkur
saman við nágrannaþjóðirnar.
Það er þó jákvæð þróun í gangi
og hægt og rólega erum við að
mjakast í rétta átt, sem eru góð-
ar fréttir, því ekki er vanþörf á
auknum heilsutengdum forvörn-
um hérlendis.“
Hver er ávinningurinn af svona
þjónustu?
„Heilsuefling er án efa góð fjár-
festing sem skilar ávinningi til
starfsmanna jafnt sem vinnustað-
arins sjálfs. Við hjá Vinnuvernd
finnum fyrir breyttum áherslum
stjórnenda og auknum kröfum
starfsfólks í þessum efnum. Það
hefur orðið mikil vakning sein-
ustu ár og stórnendur eru með-
vitaðari en áður um mikilvægi
þess að vera vakandi fyrir sínu
fólki hvað vinnuumhverfi snertir
og heilsufar starfsmanna varðar.
Í heilsustyðjandi vinnuumhverfi
er líðan fólks að jafnaði betri,
sem aftur skilar sér í jákvæðari
og heilsuhraustari starfskrafti,
sem er dýrmætt.“
Af hverju heilsuefling á vinnu-
stöðum?
„Það er margt sem einstakling-
urinn sjálfur getur gert til þess
að auka lífsgæði sín, en ekki er
verra að vinnustaðurinn stuðli
að heilsusamlegri vinnustaðar-
menningu. Vinnustaðurinn er
frábær vettvangur til að ná til
fjölda fólks og hafa áhrif. Þar
dvelur fólk löngum stundum og
eyðir jafnvel meirihluta sólar-
hringsins. Árangur af heilsu-
ef lingu hefur gjarnan marg-
földunaráhrif, s.s. út í fjölskyldu
viðkomandi starfsmanns, sem
aftur skilar sér í bættri almennri
lýðheilsu. Það er afar ánægjulegt
að verða vitni að hugarfarsbreyt-
ingu í átt að auknu heilbrigði hjá
einstaklingum og jafnvel vinnu-
staðnum í heild, þá er árangrin-
um svo sannarlega náð.“
Hvaða þjónusta er svo í boði hjá
ykkur?
„Þessa dagana erum við að
bjóða upp á skemmtilega heilsu-
eflingu sem er jafnframt árang-
ursríkt hópefli á vinnustaðnum.
Þar er fléttað saman á skemmti-
legan hátt, verkefni sem sjúkra-
þjálfari, sálfræðingur og hjúkr-
unarfræðingur koma að. Er þá
boðið upp á prógramm í nokkrar
vikur með fræðslu, forvörnum,
hreyfiáskorun og heilsufars-
mælingum í einum pakka. Ótal
margt er hægt að gera til að efla
heilsuna, stundum dugar jafn-
vel að einhver einn starfsmaður
sé hugmyndaríkur og gefi sér
tíma til að skipuleggja heilsu-
eflingarprógramm en mörgum
finnst gott að geta þegið sér-
hæfða þjónustu eins og hjá okk-
ur ekki síst þegar tímaskortur
er algengur.
Fyrir utan það að skipu-
leggja heilsueflingu er þjón-
ustan margvísleg sem í boði er.
Gjarnan er byrjað á því að gera
samning um ákveðna þjónustu
og lagður grunnur að trúnað-
arlæknisþjónustu sem felur í
sér aðgang að lækni. Trúnað-
arlæknisþjónusta gefur starfs-
mannahaldi möguleika á óháðu
mati á veikindum starfsmanna,
meðferðarmöguleikum, horfum
og starfshæfni þeirra. Úrlausn-
ir veikinda og fjarvista verða
skjótari og geta því flýtt fyrir
bata. Þá bjóðum við upp á fjar-
vistarskráningu og símaráðgjöf
hjúkrunarfræðings sem hentar
fyrirtækjum með margar starfs-
stöðvar og síbreytilegt vinnuafl.
Mikilvægt að huga að heilsu
og líðan starfsmanna
Fjarvistasamtöl eru einnig
vaxandi þáttur í þjónust-
unni og hefur mælst vel
fyrir og gefið góðan árang-
ur. Fyrir utan fasta þjón-
ustu stendur fyrirtækjum
til boða að kaupa stök verk-
efni, má þar nefna ýmis
fræðsluerindi, skyndihjálp-
arnámskeið, heilsufars-
mælingar og árlegar bólu-
setningar gegn inflúensu
sem einmitt eru að fara í
gang þessa dagana. Einn-
ig bjóðum við upp á sér-
hæfða þjónustu í bólusetn-
ingum fyrir ferðamenn,
sem kallast Ferðavernd.
Þá annast sjúkraþjálfarar
úttektir á vinnuaðstæðum,
gerð áhættumats ásamt
mati á umhverfisþáttum
og fleira. Síðast en ekki
síst, þá er fókusinn líka
á andleg málefni, vinnu-
sálfræðingur býður upp
á álags- og streitustjór-
nun, einelt isáætlunar-
gerð, viðtalsmeðferðir og
áfallahjálp, svo eitthvað sé
nefnt.“
Að lokum segir Guð-
björg að þrátt fyrir já-
kvæða þróun og vitundar-
vakningu á þessu sviði þá
sé akurinn að mörgu leyti
óplægður og því spennandi
þróunarvinna fram undan
hjá Vinnuvernd sem horfir
jákvæðum augum til fram-
tíðarinnar.
Unnið í samstarfi við
VinnuVernd.
Markmið
heilsueflingar
Bæta félagslega-, andlega og
líkamlega heilsu
Stuðla að vellíðan
Auka stafsánægju
Bæta vinnuskipulag og vinnuum-
hverfi
Tryggja öryggi
Ávinningur
heilsueflingar
Heilsuhraustara stafsfólk
Jákvæðari starfsmenn
Meiri starfsánægja
Meiri samheldni
Færri veikindadagar
Betri almenn lýðheilsa
Í vetur langar okkur að leggja meiri
áherslu á fyrirtæki í iðnrekstri og
framleiðslu.
Á þeim vettvangi eru fyrirækin oftar
fámennari sem gera þau minna
sýnileg. Við höfum tiltölulega minna
þjónustað þau gegnum tíðina og við
höfum hug á að bæta úr því.