Fréttatíminn - 22.08.2014, Qupperneq 6
DORMA Holtagörðum, Reykjavík ✆ 512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri ✆ 558 1100
Húsgagnahöllinni, Reykjavík ✆ 558 1100
HE
ILS
UD
ÝN
UD
AG
AR
Nature’s Rest
Stærð cm. Verð Dýnudagar
100x200 72.900,- 61.965,-
120x200 79.900,- 67.915,-
140x200 92.900,- 78.965,-
160x200 99.900,- 84.915,-
180x200 117.900,- 100.215,-
Nature’s Comfort
Stærð cm. Verð Dýnudagar
100x200 99.900,- 84.915,-
120x200 119.900,- 101.915,-
140x200 138.900,- 118.065,-
160x200 149.900,- 127.415,-
180x200 164.900,- 140.165,-
Nature’s Luxury
Stærð cm. Verð Dýnudagar
120x200 129.900,- 110.415,-
140x200 155.900,- 132.515,-
160x200 169.900,- 144.415,-
180x200 189.900,- 161.415,-
P eningastefnunefnd Seðlabankans ákvað að halda stýrivöxtum
bankans óbreyttum með
ákvörðun sinni síðastliðinn
miðvikudag. Efnahagshorfur
til næstu þriggja ára eru, sam-
kvæmt nýrri spá bankans,
svipaðar og í maí. Horfur eru
þó á að vöxtur innlendrar eftir-
spurnar verði ívið meiri í ár
og út spátímann. Verðbólgu-
horfur hafa heldur batnað
frá maíspá og útlit er fyrir að
verðbólga verði nálægt mark-
miði á spátímanum. Fram-
leiðsluspenna myndast seinna
og verður ekki eins mikil og í
síðustu spá, segir í yfirlýsingu
Peningastefnunefndarinnar.
Tónninn í yfirlýsingu
nefndarinnar hefur verið mild-
aður og eru það stóru tíðindin
í yfirlýsingunni, að mati Grein-
ingar Íslandsbanka. „Í yfir-
lýsingunni segir að miðað við
grunnspá bankans sé útlit fyr-
ir að núverandi vaxtastig dugi
til að halda verðbólgu í mark-
miði. Í síðustu yfirlýsingu
nefndarinnar í júní var hins
vegar tekið fram að aukinn
vöxtur innlendrar eftirspurnar
á komandi misserum myndi
að öðru óbreyttu krefjast þess
að raunvextir Seðlabankans
hækkuðu frekar, og það færi
eftir framvindu verðbólgu
og verðbólguvæntinga hvort
það yrði í formi hækkunar
stýrivaxta á næstunni,“ segir
greiningardeildin.
Seðlabankinn er því bjart-
sýnni á verðbólguhorfur en í
undanförnum spám. „Er spá
bankans nú að verðbólgan
verði við verðbólgumark-
miðið út spátímann, sem nær
til ársins 2017.“ „Vegur þessi
breyting þungt í því hvers
vegna bankinn er að lækka
verðbólguspá sína og pen-
ingastefnunefndin að milda
vaxtahækkunartóninn,“ segir
enn fremur í mati greiningar-
deildar Íslandsbanka.
„Gjaldeyrisviðskipti Seðla-
bankans undanfarið ár hafa
stuðlað að auknum stöðug-
leika krónunnar. Á þessu ári
hefur bankinn keypt gjaldeyri
verulega umfram það sem
hann hefur selt bæði í reglu-
legum kaupum og óreglu-
legum viðskiptum. Stefnt er
að því að regluleg kaup haldi
áfram í núverandi umfangi svo
lengi sem aðstæður breytast
ekki umtalsvert. Eftir sem
áður mun Seðlabankinn beita
Stýrivextir Seðlabankinn mildar tóninn
Vaxtastigið dugar til að
halda verðbólgumarkmiði
Gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans auka stöðugleika krónunnar. Reiknað með 3,4 prósent hagvexti.
óreglulegum viðskiptum í því
skyni að draga úr sveiflum
í gengi krónunnar,“ segir
einnig í yfirlýsingu Peninga-
stefnunefndar Seðlabankans.
Seðlabankinn spáir nú 3,4%
hagvexti í ár en í reiknaði
með 3,7% hagvexti í spá sinni
í maí.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Már Guðmundsson seðlabankastjóri kynnti vaxtaákvörðun Peningastefnunefndar
Seðlabankans. Már var endurráðinn til fimm ára á dögunum.
Stýrivextir
Vextir Seðlabanka Íslands:
Daglán: 7,0%
7 daga veðlán: 6,0%
Viðskiptareikningar: 5,0%
7 daga bundin innlán: 5,25%
Gómsætt
grænkál í
Laugargarði.
Garðurinn er í
Laugardal, við
enda Holtavegar
skammt frá
Langholtsskóla.
Uppskeru-
hátíðin er frá
klukkan 11 til 17
á sunnudaginn.
Ljósmynd/Auður
Inez Sellgren
Sjálfbærni UPPSkerUhátíð í laUgargarði á SUnnUdaginn
Grænmeti úr samfélagsreknum matjurtagarði
Uppskeruhátíð og bænda-
markaður verður í Laugar-
garði, fyrsta samfélags-
rekna matjurtagarði
Íslands, á sunnudag. Á
staðnum verður selt beint
úr garðinum en auk þess
verður gefins súpa frá Café
Flóru úr hráefni úr garðin-
um. Meðal þess sem ræktað
hefur verið í Laugargarði í
sumar er grænkál, spergil-
kál, rauðrófur og radísur,
auk ýmissa kryddjurta.
Garðurinn er tilrauna-
verkefni fjögurra nemenda
úr Listaháskólanum og
Landbúnaðarháskólanum
með það að markmiðið að
skapa vettvang til borgarbú-
skaps og auka aðgang al-
mennings að ferskum mat.
Auður Inez Sellgren,
nemi í vöruhönnun við
Listaháskólann, er ein
þeirra sem koma að verk-
efninu sem er alls ekki lok-
ið. „Þetta hefur gengið vel
og við lítum á sumarið sem
undirbúning fyrir næsta
ár. Þá vita vonandi fleiri af
garðinum og enn fleiri taka
þátt í ræktuninni,“ segir
hún.
Hugsjónin að baki garð-
inum er sjálfbærni, lífræn
ræktun og samfélag sem
lærir hvert af öðru. Sam-
kvæmt aðalskipulagi
Reykjavíkurborgar er
áhersla lögð á sjálfbærni
borgarinnar og borgarbú-
skap. Laugargarður er því í
samræmi við framtíðarsýn
borgarinnar. - eh
6 fréttir Helgin 22.-24. ágúst 2014