Fréttatíminn - 22.08.2014, Blaðsíða 8
Emily Logan, umboðsmaður barna á Írlandi og Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna í Íslandi, kynntust í gegnum
störf sín og eru góðar vinkonur í dag. Emily heimsótti Ísland á dögunum til að ganga Laugaveginn með Margréti. Ljósmynd/Teitur
Börnin ráða í
starf umbans
Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna á Íslandi
og Emily Logan, umboðsmaður barna á Írlandi segja þátttöku
barna í ýmiskonar stjórnsýslu og opinberum ákvarðanatökum
mikilvæga. Þegar Emily sótti um starf umboðsmanns tóku börn
þátt í ráðningarferlinu og síðar voru börn fengin til að aðstoða
við að innrétta húsakynni nýs umboðsmanns. Margrét María
segir þetta vera eitt af því sem við gætum tekið upp hérlendis
til að auka þátttöku barna.
E mily Logan hefur gegnt starfi umboðsmanns barna á Ír-landi síðan 2004 og er fyrsta
manneskjan til að gegna því starfi
á Írlandi.
„Það sem er sérstakt við umboðs-
mann barna á Írlandi, og núna á
Englandi, Wales og Skotlandi, er
að það eru börn sem ráða í starfið.
Ríkisstjórnin, í samstarfi við ýms-
ar hjálparstofnanir, auglýsti eftir
börnum sem væru áhugasöm um
að taka þátt í ferlinu. Það var ákveð-
ið að þetta yrði hópur sextán barna
sem þyrftu geta að talað máli ólíka
þjóðfélagshópa. Ferlið var mjög langt
og útkoman mjög fjölbreyttur hópur
barna.“
Hefur látið loka mörgum
barnafangelsum
Emily segir það hafa verið sér-
staka upplifun að taka þátt í þessu
ferli og láta börn meta sig í starfs-
viðtali. „Ferlið var langt og strangt
og það voru þrjú stig sem við þurft-
um að fara í gegnum. Börnin byrj-
uðu á því að spyrja allskyns spurn-
inga sem þau sjálf höfðu búið til
og svo fórum við í hlutverkaleik.
Börnin, sem voru á aldrinum 6 til
17 ára, léku börn sem þau töldu
þurfa á hjálp að halda og komu svo
í viðtal til mín á meðan ég lést vera
umboðsmaður þeirra. Svo var eitt
lokaviðtal sem þrír fullorðnir og
þrjú börn tóku við mig. Þetta var
gefandi og lærdómsrík reynsla, allt
var svo miklu heiðarlegra, hreinna
og beinna en í þeim starfsviðtölum
sem maður á að venjast og ég fann
hvað ég var ósjálfrátt einlæg og
blátt áfram.“
Eftir þetta langa og stranga ferli
var Emily ráðin í starfið, sem alls 97
manns höfðu sótt um. „Þegar ég svo
tók við starfinu þá hjálpuðu börnin
mér að innrétta skrifstofuna eftir
sínu höfði. Það eru frekar sterkir
og skemmtilegir litir á veggjunum,
mikið af baunapokum til að sitja í og
svo eru allir veggir skreyttir með
myndum eftir börn. Mér finnst um-
hverfið mjög afslappað og þægilegt
og börnunum virðist finna það líka.“
Umboðsmaður barna á Írlandi
er skipaður til sex ára í senn og
má sitja í tvö tímabil. Emily klárar
annað tímabilið sitt á næsta ári. Hún
segir sitt stærsta verkefni á þessum
árum hafa verið að loka barnafang-
elsum, fyrir börn á aldrinum 16 til
18 ára. „Þegar ég byrjaði var þó
nokkuð af börnum í fangelsi. Minn
fyrsti fókus í starfinu var að vinna
með þessum börnum og með ríkis-
stjórninni í að loka barnafangelsun-
um, en nú er aðeins eitt eftir. Þar að
auki voru 10 heimili fyrir ólöglega
innflytjendur án forráðamanna í Du-
blin, en við höfum látið loka þeim
öllum og fundið þeim fósturforeldra
í staðinn. Þetta er árangur sem við
erum mjög ánægð með.“
Læra af hvor annarri
Margrét María og Emily kynntust
árið 2008 í gegnum starfið en um-
boðsmenn barna í Evrópu hittast
einu sinni á ári. Þær náðu strax vel
saman og hafa verið góðar vinkon-
ur síðan, heimsótt hvor aðra og nú
síðast gengu þær saman Laugaveg-
inn. Þær segjast hafa lært mikið af
reynslu hvor annarrar í starfi. „Ég
er afskaplega hrifin af því hvernig
Írar reyna að vinna sem mest með
börnum,“ segir Margrét María.
„Skrifstofa Emily stendur til dæm-
is fyrir því að setja á fót kosningar
þar sem börn geta haft áhrif á það
hvaða málefni eigi að setja á odd-
inn. Við erum að mörgu leyti kom-
in lengra á veg í málefnum barna
en Írar eru komnir lengra á veg
þegar kemur að þátttöku barna,“
segir Margrét en bætir því við að
það sé verið að þróa þessar aðferð-
ir á Íslandi. „Ég fer til að mynda í
skóla og hef reynt að stuðla að því
að sveitarfélögin stofni ungmenn-
aráð sem geti svo tekið þátt í þeirra
störfum. Þegar stjórnlagaráðið
var að vinna í stjórnarskránni var
tveimur fulltrúum allra ungmenn-
aráða boðið að taka þátt í starfs-
degi. Við vorum mjög ánægð með
það samstarf. Annað dæmi er vinna
sem við fórum í síðastliðið haust
með börnum sem eru aðstandend-
ur alkóhólista. Árangurinn af því
eru skilaboð sem börnin bjuggu
til handa foreldrum og fagfólki um
það hvernig er að vera að aðstand-
andi alkóhólista
og hvað þau vilja
að haft sé í huga.
Þannig að við erum
að f ikra okkur í
þessa átt.“
Gætum gert
betur á Íslandi
Margrét i f innst
að við eigum að
taka upp þá um-
ræðu að hafa börn
meira með í ráðum.
Spennandi væri að
taka upp form Ír-
anna og hafa börn
með í ráðningar-
ferli næsta umboðsmanns barna á
Íslandi. „Það er alveg í samræmi
við barnasáttmálann. Börn eiga rétt
á að tjá sig og það er skylda fullorð-
inna að taka tillit til þess hvað þeim
finnst. Það er í
raun mjög skrítið
að allir geti gefið
kost á sér í stjór-
nlagaráð nema
þessi eini hópur
sem eru einstak-
lingar undir 18
ára. Þau hafa enga
leið til þess að
hafa áhrif en samt
er þetta hópurinn
sem á eftir að lifa
lengst með þess-
ari stjórnarskrá.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Meginhlutverk umboðsmanns
barna er að vinna að bættum
hag barna og standa vörð um
hagsmuni, þarfir og réttindi
þeirra. Umboðsmanni barna er
ætlað að vekja athygli á rétt-
inda- og hagsmunamálum barna
almennt, jafnt á opinberum vett-
vangi sem og hjá einkaaðilum.
Honum ber að vinna að því að
tekið sé tillit til hagsmuna barna
við lagasetningu, ákvarðanatöku
og skipulagningu í þjóðfélaginu.
HLutvErk uMboðSMannS barna
Fararstjóri: Guðbjörn Árnason
Jólaferð til München
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Glæsileg jólaferð til München, helstu lista- og menningar-
borgar Þýskalands. Angan af ilmandi jólaglöggi í bland við
steiktar pylsur á fjölbreyttum jólamörkuðum borgarinnar koma
öllum í jólaskap. Gist verður í 3 nætur á hóteli í miðbænum.
Verð: 104.400 kr. á mann í tvíbýli.
Skoðunarferð um München innifalin!
Sp
ör
e
hf
.
27. - 30. nóvember
20% afsláttur
Fæst án lyfseðils.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega fyrir notkun.
Höfuðborgar-
svæðið
Austurver
Domus Medica
Eiðistorg
Fjörður
Hamraborg
JL-húsið
Kringlan
Landsbyggðin
Glerártorg Akureyri
Hrísalundur Akureyri
Dalvík
Hella
Hveragerði
Hvolsvöllur
Keflavík
Selfoss
Vestmannaeyjar
Þorlákshöfn
8 fréttaviðtal Helgin 22.-24. ágúst 2014