Fréttatíminn - 22.08.2014, Side 10
Á fram er hættustig í gildi vegna mögulegs goss í Bárðarbungu en mikil
jarðskjálftavirkni hefur verið á
svæðinu vegna kvikustreymis.
Rýming á víðfeðmu svæði norðan
Vatnajökuls var ákveðin fyrr í vik-
unni. Vel hefur gengið vel að rýma
og allar lokanir verið virtar en
mikill viðbúnaður og aðgerðir eru
í undirbúningi ef eldvirknin skyldi
ná upp á yfirborð jökulsins með
hugsanlegu flóði. Mestu skjálft-
arnir mælast enn við Dyngjujökul,
en þeir stærstu mælast um 3 stig
og eru á 10 til 5 kílómetra dýpi.
Margir hafa velt fyrir sér mögu-
legum afleiðingum goss í Báðar-
bungu en meðal þess sem erlendir
fjölmiðlar hafa fjallað hvað mest
um er möguleg truflun á flugsam-
göngum. Þegar Eyjafjallajökull
gaus árið 2010 og spúði ösku til
nálægra landa, var flugumferð yfir
Evrópu lokuð í sex daga. Magnús
Tumi Guðmundsson, prófessor í
jarðeðlisfræði, telur þó ólíklegt að
svo muni fara byrji Bárðarbunga
að gjósa, mikið þurfi til að þetta
verði sprengigos með tilheyrandi
gjóskufalli. „Ef það verður gos
þá höllumst að því að gosið verði
lítið eða meðalstórt. Og ef gosið
verður þar sem skjálftavirknin er
mest núna, undir Dyngjujökli, þá
myndi það fyrst og fremst bræða
ís. Það myndi taka gosið allavega
hálfan sólarhring að komast upp í
gegnum jökulinn. En maður á nú
ekki von á mjög stóru sprengigosi
því það þyrfti að byggjast upp fjall
þarna fyrst.“
Magnús Tumi segir að verið sé
að meta möguleg umhverfisáhrif.
„Þetta gæti endað sem innskot í
jörðinni og enn sem komið er erum
við ekki með nein merki um það
að kvikan sé að koma upp á yfir-
borðið. Ef gos yrði undir Dyngju-
jökli, þá yrði það líklega nokkurra
kílómetra löng gossprunga undir
500 metra þykkum ís og það myndi
bræða kannski 200 til 1000 rúm-
metra á sekúndu. Það vatn myndi
þá renna niður í Jökulsá á Fjöllum
sem jökulhlaup og rennslið yrði tíu
sinnum meira en venjulega.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
www.volkswagen.is
Volkswagen Golf var kosinn bíll ársins í Evrópu 2013 á bílasýningunni í Genf og
66 bílablaðamenn hvaðanæva að útnefndu hann bíl ársins í heiminum á bílasýningunni í New York.
Í ár eru 40 ár liðin síðan Golf kom fyrst á markað og setti ný viðmið í hönnun fjölskyldubíla.
Viðtökurnar við þessari sjöundu kynslóð sýna svo ekki verður um villst að enn er Volkswagen Golf
fremstur meðal jafningja. Volkswagen Golf eyðir aðeins frá 3,8 l/100 km
Velkomin í reynsluakstur í HEKLU og hjá umboðsmönnum um land allt
* Golf Trendline, 1.4 TSI, beinskiptur, 122 hestöfl.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Evrópu- og heimsmeistari
Volkswagen Golf kostar frá
3.490.000 kr.*
BÁrðarBunga SkjÁlftahrina vegna kvikuStreymiS
Jökulsá á Fjöllum tífaldast verði gos
Mestu skjálftarnir mælast enn við Dyngjujökul, um 3 stig og á
10 til 5 kílómetra dýpi. Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor
í jarðeðlisfræði, segir ekki vera miklar líkur á sprengigosi en
verði gos undir jökli muni það bræða mikinn ís og tífalda vatns-
magn Jökulsár á Fjöllum.
Fylgjast vel með
þróun mála
Loftmynd úr flugvél Landhelgis-
gæslunnar af svæðinu, þar sem
vel sjást upptök Jökulsár á Fjöllum.
Í gær voru kannaðar aðstæður við
Bárðarbungu og safnað efni með
hitamyndavél, eftirlits- og rat-
sjárbúnaði. Mynd Landhelgisgæslan
10 fréttir Helgin 22.-24. ágúst 2014