Fréttatíminn - 22.08.2014, Page 16
WWW.LEIKHUSID.IS WWW.LEIKHUSID.IS
Margrét Marteinsdóttir er
mörgum kunn. Í 16 ár vann
hún í hinum ýmsu stöðum
hjá Ríkisútvarpinu. Lengst
af sem fréttamaður en undir
það síðasta sem dagskrár-
stjóri Rásar 1 og 2. Í október á
síðasta ári fann hún sig knúna
til þess að segja upp í kjölfar
kvíða sem hún var farin að
finna fyrir í starfinu, og segir
ákvörðunina hafa komið til
sín. Í haust ætlar hún að
venda kvæði sínu í kross og
gerast vert á Kaffihúsi Vestur-
bæjar sem opnar í september.
Margrét er mjög hamingjusöm
með lífið og nýja starfið.
Ég varð að hætta hjá Ríkisútvarpinu.
Það komu upp aðstæður hjá mér, í mínu
lífi, sem urðu til þess að ég hafði ekki
val og ákvað að segja upp. Myndir Hari
Endurheimti
gleðina
M argrét Marteinsdóttir er 42 ára gömul og byrj-aði að vinna á RÚV upp
úr tvítugu. Þegar hún hætti fyrir
tæpu ári hafði hún gert nánast
allt sem hægt var að gera þar. „Ég
byrjaði á Rás 2 í Morgunútvarpinu
sem var mitt fyrsta starf. Þaðan
fór ég yfir á fréttastofuna þar sem
ég vann lengst. Þegar sameining-
in var 2008 þá varð ég varafrétta-
stjóri og var yfir íþróttadeildinni.
Þar vorum við með ansi góðar hug-
myndir um hvernig við ætluðum að
breyta þessu og gera þessa stóru og
öflugu fréttastofu enn öflugri. Þá
kom hrunið og það breytti miklu.
Svo þegar fréttir af hruninu fóru
að róast kom gos, svo þetta voru
miklar og stórar fréttir og mikið að
gera, í miðjum breytingum. Eftir
starfið á fréttastofunni tók ég við
dægurmáladeild fréttastofunnar, en
undir það heyrðu Morgun- og Síð-
degisútvarpið, auk Spegilsins. Við
bjuggum til Hádegisútvarpið, sem
fréttamenn og dagskrárgerðarfólk
á landsbyggðinni stýrðu. Það var
mjög góður og gefandi tími. Mikið
um að vera og frábært fólk, mikill
drifkraftur og mikil sköpun sem var
í gangi,“ segir Margrét.
Haustið 2012 tók hún við til
bráðabirgða af Sigrúnu Stefánsdótt-
ur sem yfirmaður beggja útvarps-
stöðvanna. „Það gerðist allt saman
mjög hratt og það þurfti einhvern
til þess að taka við. Seinna sótti ég
svo um stöðuna og fékk, það var
mitt síðasta starf hjá RÚV því ég
hætti í október 2013. Ég hef alltaf
sagt að ég sé menntuð frá RÚV, þó
svo að ég hafi farið í Háskólann þá
er ég á því að ég hafi menntast á
því að vinna með öllu því góða fag-
fólki sem ég kynntist þar og á því
að fylgjast með og hlusta á börnin
mín,“ segir Margrét.
Mér leið ekki vel
Af hverju hættirðu?
„Stutta svarið er að ég varð að
hætta. Það komu upp aðstæður hjá
mér, í mínu lífi, sem urðu til þess að
ég hafði ekki val og ákvað að segja
upp.
Það hafði byggst upp hjá mér al-
varlegur kvíði og einn daginn var
ég að labba í tíma í hugleiðslu sem
ég sótti á þessum tíma hjá Zen á Ís-
landi. Þá kemur það bara til mín,
að ég væri að fara að hætta. Ég var
búin að vera ósátt og hafði ekki liðið
vel í starfinu, aðallega af því að mér
leið ekki vel. Ég snéri við, skrifaði
Framhald á næstu opnu
16 viðtal Helgin 22.-24. ágúst 2014