Fréttatíminn - 22.08.2014, Síða 24
Demantshringur 0.70ct
Verð 680.000.-
siggaogtimo.is
A rnar Ze er að taka hádeg-islúrinn þegar ég kem að heimili Aðalheiðar Jóns-
dóttur og Guðfinns Kristmannsson-
ar í Garðabænum. Það er því heldur
rólegt á þessu tveggja barna heimili
því Stefanía Carol er á leikskólan-
um. Hún er fimm ára gömul, fædd í
Kólumbíu og myndir af henni prýða
stofuveggina. Varla hefur enn gefist
tími til að koma myndum af Arnari
Ze upp á vegg enda aðeins um mán-
uður síðan fjölskyldan sótti hann
til Kína. „Dagsdaglega hugsum við
ekkert um þau sem ættleidd börn
frá sitt hvoru landinu. Þau eru bara
börnin okkar,“ segir Aðalheiður. Ég
kemst að þeirri niðurstöðu að heim-
ilislegast sé að ég tylli mér í þriggja
sæta sófa í stofunni og þau hjónin
setjast síðan hvort í sinn hæginda-
stólinn til hliðar við mig. Þau hafa á
orði að þetta sé heldur óhefðbund-
in uppstilling. „Við sitjum núna þar
sem félagsráðgjafarnir setjast þeg-
ar þeir eru að taka okkur út en þú
situr þar sem við sitjum venjulega.“
Þau gera þó engar athugasemdir
við þessa sætaröðun og við förum í
huganum í nokkur ár aftur í tímann.
Aðalheiður og Guðfinnur sóttu
upphaflega um að ættleiða barn frá
Kólumbíu árið 2007. „Vegna ófrjó-
semi reyndum við nokkrar smásjár-
frjóvganir en gáfumst heldur fljótt
upp á því og ákváðum að reyna að
ættleiða. Það var engin sérstök
ástæða fyrir því að Kólumbía varð
fyrir valinu,“ segir hún. Biðtíminn
eftir barni frá Kólumbíu var um 18
mánuðir en það breyttist sannarlega
og alls þurftu þau að bíða í fimm ár
eftir að fá barn. Mikið hægðist á
ferlinu skömmu eftir að þau sóttu
um en þegar þau voru úti að sækja
Stefaníu Carol hittu þau önnur hjón
sem fóru þangað til að ættleiða
tvær stúlkur en í stað þess að vera
í um sex vikur, eins og upphaflega
stóð til, þurftu þau hjón að vera úti
í rúmt ár. Fjallað var um mál þeirra
í íslenskum fjölmiðlum en dómari
bannaði þeim að fara með stúlkurn-
ar úr landi. „Það mál var í gangi þeg-
ar við fórum út og mamma í raun
kvaddi mig eins og ég væri ekkert
á leiðinni heim aftur á næstunni,“
segir Aðalheiður en þau lentu ekki
í neinum vandræðum.
Mögnuð lífsreynsla
Stefanía Carol var þriggja ára þeg-
ar þau sóttu hana. „Hún hafði verið
tekin af blóðmóður sinni vegna lé-
legs aðbúnaðar. Það var dómsmál
í Kólumbíu og eftir það fór hún í
fóstur.“ Þau voru skiljanlega viðbú-
in öllu þó þau reyndu að vona það
besta. Stóra stundin rann upp þann
14. ágúst 2012 þegar þau mættu á
ættleiðingarskrifstofuna, ásamt
fjölda annarra verðandi foreldra.
Þau fylgdust með börnum hitta
nýja foreldra í fyrsta sinn og loks
var nafnið þeirra kallað upp. „Það er
mögnuð lífsreynsla að fara og sækja
barn, sækja barnið sitt. Það var
ógleymanlegt að fá hana í hendurn-
ar og þessi fyrstu dagar voru ótrú-
legir. Við vorum áður búin að horfa
á myndbönd af fólki sem er að hitta
ættleiddu börnin sín í fyrsta sinn en
í öllum stressinu gleymdum við að
taka myndir,“ segir Aðalheiður. Hún
lítur á Guðfinn, þau brosa hvort til
annars og hann bætir við: „Þetta var
hálf óraunverulegt en samt vorum
við svo glöð og ánægð,“ segir hann.
Stefanía var nefnd eftir ömmu
Aðalheiðar. „Okkur fannst nafnið
Stefanía passa vel við Carol sem er
kólumbíska nafnið hennar. Skömmu
eftir að hún kom sneri hún upp á
sig ef við kölluðum hana Stefaníu og
hún sagðist heita Carol. Ég held að
það sé mikilvægt að halda nöfnum
barna sem eru orðin svona stálpuð,“
segir Aðalheiður. Þau æfðu helstu
orð í spænsku áður en þau þurftu
samt að fletta upp í orðabók þegar
hún bað stöðugt um „huevo“ og
þau komust loks að því að það þýðir
egg, sem henni þykja mikið lostæti.
„Hún er núna orðin rúmlega fimm
ára. Hún aðlagaðist okkur vel strax.
Í grunninn er hún mjög hjartahlý,
góð og algjör kelirófa.“
Fljótlega eftir að þau komu heim
með Stefaníu Carol ákváðu þau að
skila aftur inn umsókn um ætt-
Duttu tvisvar
í lukkupottinn
Stefanía Carol var tekin af blóðmóður sinni í Kólumbíu vegna
lélegs aðbúnaðar og Arnar Ze var sex mánaða gamall skilinn
eftir fyrir utan spítala í Kína. Bæði búa þau nú í Garðabænum
með foreldrum sínum, þeim Aðalheiði Jónsdóttur og Guðfinni
Kristmannssyni. Tvö ár eru síðan þau ættleiddu Stefaníu Carol
og þó aðeins sé mánuður síðan Arnar Ze kom til Íslands kann
hann þegar að vel að meta slátur.
leiðingu til Íslenskrar ættleiðingar og í
ársbyrjun 2013 sóttu þau um að ættleiða
barn frá Kína. „Þetta gekk í raun ótrú-
lega hratt fyrir sig í seinna skiptið. Við
völdum að fá barn af lista yfir börn með
„skilgreindar þarfir“ eins og það kallast.
Á þessum lista eru þúsundir kínverskra
barna sem eru allt frá því að vera mjög
fötluð yfir í að mjög lítið ami að þeim.
Þetta geta verið hjartagallar, skert sjón
eða stórir fæðingablettir. Við fengum svo
aðstoð frá lækni við að meta hvers konar
sérþarfir við treystum okkur til að upp-
fylla. Það er sjö ára biðlisti eftir að ætt-
leiða alheilbrigð börn frá Kína en hinn
biðlistinn er mun styttri.“ Gestur Pálsson
barnalæknir hefur verið félaginu Íslenskri
ættleiðingu innan handar frá upphafi og
segja Aðalheiður og Guðfinnur aðstoð
hans ómetanlega.
Þurftu að hafna tveimur börnum
Eftir að þau höfðu ákveðið sín viðmið fór
Íslensk ættleiðing að skima eftir barni.
Kyn skipti þau ekki máli, helst vildu þau
barn undir tveggja ára aldri en þau treystu
sér ekki til að taka við mjög fötluðu barni.
„Nú í janúar fengum við upplýsingar um
2ja ára stelpu sem var með skarð í vör og
klofinn góm. Allir hennar pappírar litu af-
skaplega vel út, við samþykktum að taka
hana og biðjum um viðbótarupplýsingar.
Þær berast mánuði síðar en þá kemur í ljós
að hún er alvarleg hreyfihömluð og líklega
einhverf. Staðan var því heldur breytt og
læknar ráðlögðu okkur að bakka út. Það
reyndi gríðarlega á okkur að gera það en
fólk á auðvitað ekki að taka að sér börn
sem það treystir sér ekki til að sjá um. Við
hugsuðum um að við værum ekki bara að
binda okkur til að sjá um hana það sem
eftir væri heldur myndi það binda Stef-
aníu Carol líka,“ segir Aðalheiður og þau
hættu formlega við að ættleiða stúlkuna.
Í apríl fengu þau gögn um 2ja ára strák
sem þeim leist vel á en vegna þess hversu
margir óvissuþættir voru í þeim óskuðu
þau eftir viðbótarupplýsingum sem aldrei
bárust. „Við þurftum því að hafna tveimur
börnum. Það var gríðarlega erfitt,“ segir
Guðfinnur þungur í bragði. En það lifnar
yfir þeim þegar Aðalheiður rifjar upp sím-
talið örlagaríka um Arnar Ze.
Greindur með hjartagalla
„Það var 27. maí sem við fengum upp-
lýsingar um rúmlega tveggja ára dreng
sem var sagður með vægan hjartagalla,
að hjartalokurnar leki örlítið. Okkur leist
mjög vel á öll viðbótargögn og staðfest-
um að við vildum ættleiða hann,“ segir
hún. Enn og aftur gekk allt hraðar fyrir
sig en þegar þau sóttu Stefaníu Carol og
í stað þess að fá boð um að fara til Kína
um hálfu ári seinna, þegar öll gögn eru
frágengin þar, fengu þau óvænt þær upp-
lýsingar að þau þyrftu að koma eftir rúm-
an mánuð. „Við auðvitað höfum okkar
skuldbindingar, til að mynda í vinnu, en
allir voru mjög skilningsríkir og einhvern
veginn gekk þetta allt upp,“ segir hún.
Það er eins og Arnar Ze hafi skynjað að
við værum að tala um hann því allt í einu
heyrist lágvær grátur frá neðri hæðinni
þar sem hann tók blundinn sinn. Guðfinn-
ur fer niður og kemur stuttu seinna upp
með soninn. Þrátt fyrir að hafa aðeins búið
þarna í mánuð gerir hann sér vitanlega vel
grein fyrir að ég er utanaðkomandi og
horfir lengi stóreygður á mig. Hann reyn-
ir því næst að gera sig skiljanlegan á kín-
Við þurftum
að hafna
tveimur
börnum. Það
var gríðar-
lega erfitt.
Aðalheiður Jónsdóttir og
Guðfinnur Kristmanns-
son ásamt þeim Stef-
aníu Carol, fimm ára,
og Arnari Ze, tveggja
ára. Í Kína var Arnar Ze
greindur með hjartagalla
sem virðist vera horfinn.
Mynd/Hari
24 viðtal Helgin 22.-24. ágúst 2014
Framhald á næstu opnu