Þjóðlíf - 01.02.1988, Page 8

Þjóðlíf - 01.02.1988, Page 8
Þessi var fyrir utan húsið að degi til, en beygði sig niður þegar hann sá að verið var að taka mynd af honum. Bíllinn frá Bílaleigu Akureyrar. Kl.1000 árdegis 20.janúar sé ég enn bíl fyrir utan hjá mér bifreiðina R-22543, Misubutsi Langer dökkblár að lit, og samkvæmt Bifr- eiðaeftirlitinu skráður á Bílaleigu Akureyr- ar. Gestur kemur til mín um hádegisbil og hefur orð á hvað þessi bíll með bílstjóra sé að voma þarna fyrir utan. Ég kem reglulega í eldhúsgluggann og alltaf húkir vesalings bíl- stjórinn á vaktinni sinni. Kl. 1435 fór ég með gesti mínúm út úr hús- inu, en tók með mér myndavél. Um leið og eg geng að þessum bíl og munda myndavél- ina til að smella af þessum vaktmanni mínum beygir hann sig niður sem ætti að sjást af meðfylgjandi mynd. Ég smelli nokkrum myndum. Þegar ég var kominn dálítinn spöl frá bifr- eiðinni galar maðurinn á eftir mér hvers vegna ég hafi veið að taka af honum mynd. Ég sný við og segi honum að ég hafi verið að gera þetta af öryggisástæðum en spyr hann á móti hvað hann sé að gera og hafi verið að gera allan tímann. Þá segist hann að vera listamaður og vera að teikna hús, og sýnir mér reyndar prýðilega mynd sem hann vann að. Þá sagði ég við hann að ef hann væri ekkert annað að gera þá þyrfi hann ekki að hafa áhyggjur af þessari mynd. En eins og um fleiri bíla var þessi einnig skráður á Bíla- leigu Akureyrar þannig að ekki er hægt að álykta öðuvísi en hann hafi verið á vegum sömu aðila, enda fór hann strax og við vorum farnir burtu. Um kl. 2130 fer ég í heilsuræktina og tek eftir að maður eltir mig og bíður frammi í biðstof- unni til kl.2225 er ég fer út. Viðurkenndi njósnir Aðfararnótt miðvikudagsins 20.janúar kl.0415 kem ég af næturvaktinni heim til mín. Þá sé ég tilsýndar að það er bíll enn fyrir utan. Kl.0430 verð ég var við að hann ekur af stað. Kl.0530 kemur hann í sama stæðið aft- ur. Kl.0535 um nóttina gægist ég út um glugga- tjöldin og sé sama mann í aðliggjandi garði að glápa inn til mín. Þá um leið ákveð ég að reyna að ná mynd af honum, læðist út með mikilli varfærni, og hleyp upp húsagarðinn en hann var þá nýsestur aftur inn í bílinn. Og kl.0545 tók ég meðfylgjandi myndir. Ég spyr fyrst hvers vegna hann sé að elta mig. Hann segist ekkert vera að elta mig. Láttu ekki svona maður, segi ég, þú ert búinn að koma fjórum sinnum hérna í nótt á bílnum og leggja hér í námundanum og þú er búinn að koma tvisvar sinnum hér í garðinn og glápa á gluggann hjá mér. Já, segir hann, ef ég hef valdið þé ónæði þá bið ég þig afsökun- ar. Síðan segist hann vera á almennri þjófa- vakt. Fyrir hvern ertu að vinna? spyr ég. Ég er hérna í lögreglunni, segir hann. Þá spyr ég: Er það Rannsóknalögreglan eða al- menna lögreglan sem vinnur svona? Hann kveðst vera frá almennu lögreglunni í Reykjavík. — Hvers vegna ertu á ómerktum bfl hér sífellt á sveimi en ekki í lögreglubfl, spurði ég, en bflinn reyndist vera með númerið R-31648, hvít Lada Samara. Þá svarar hann: Við erum bara á ómerktum bflum til að við þekkjumst ekki. Þá segi ég: En hvers vegna eruð þið á þjófavakt á ómerktum bíl í kring- um húsið mitt, hver hefur beðið um það? Varð manninum svarafátt. Þó kvaðst hann hafa sín fyrirmæli. Þá spyr ég hann hvort hann hafi verið á þjófavaktinni þegar hann elti mig í heilsur- æktina kvöldið áður. Nei, sagði hann. En þú varst á lögregluvaktinni þinni þá, eða hvað? spurði ég. Jú sagði hann. Þá spurði ég hvort lögreglan hefði menn á launum við að bíða á biðstofum líkamsræktarstöðva. Hann gat ekkert sagt, en ég tek fram að maðurinn var hinn kurteisasti. Ég spurði hann heitis og kvaðst hann heita Guðmundur Bogason. Hann spurði hvað ég ætlaði að gera við þess- Samkvœmt bréfi frá dómsmálaráðuneytinu „Fyrir nokkrum mánuðum átti ég von á pakka frá friðunarsamtökum erlendis (Sea Shepard), með ljósritum af skýrsl- um Hvals hf., þar sem fram kom að minnsta kosti tilefni til gruns um að raun- veruleg stærð og aldur hvaldýranna færi ekki saman við uppgefnar tölur fyrirtæk- isins um þessar veiðar. Nú brá svo við að ég fékk ekki í hendur þennan pakka frek- ar en ýmsa aðra sem ég átti von á. Eftir tveggja mánaða bið fékk ég boð frá Rannsóknarlögreglunni um að koma í heimsókn til þeirra í Kópavoginn. Þar var lesið upp bréf frá dómsmálaráðuneytinu, þar sem Rannsóknarlögreglunni var fyrirskipað að kanna þennan pakka sér- staklega. Mér var gert ljóst að um tvo kosti væri að ræða; annars vegar að láta pakkann af hendi til að firra mig frekari vandræðum — að öðrum kosti yrði pakk- inn gerður upptækur með úrskurði dóm- ara. Nú var um ljósrit aðræða, en mér var engu að síður sagt að með því að taka við því væri ég orðinn samsekur þeim sem stolið hefðu gögnunum. Ég benti nátt- úrulega á að þetta væri ekki ránsfengur eða þýfi, heldur ljósrit af skýrslum sem stolið hafði verið, en mín rök máttu mik- ils sín ekki gegn sjálfri Rannsóknarlögr- eglunni og hinu háa ráðuneyti". 8

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.