Þjóðlíf - 01.03.1988, Blaðsíða 27

Þjóðlíf - 01.03.1988, Blaðsíða 27
VIÐSKIPTI Fréttaskýring Eimskip á flugleið Gífurlegur hallarekstur á Norður-Atlantshafsflugleiðinni hjá Flugleiðum. Dökkt útlit framundan. Vandamál á toppnum. Á sama tíma eykur Eimskip hlut sinn í Flugleiðum. Reiknað með uppstokkun Um 400 milljón króna tap varð á N-Atlantshafsflugi Flugleiða á sl. ári. Þetta tap mun væntanlega vera til umfjöllunar á aðalfundi fyrir- tækisins, en þó eru ekki öll kurl komin til grafar. Bandarískt ráðgjaf- arfyrirtæki, Boston Consulting Group er að gera úttekt á þessu flugi, en hún verður ekki tilbúin fyrr en einhvern tíma í vor —, löngu eftir aðalfund. Viðbrögð fyrirtækisins munu væntanlega ráðast að ein- hverju leyti af niðurstöðum þessarar skýrslu. Innan Flugleiða hefur þetta tap orðið tilefni til pirrings, sem gæti verið kím meiri háttar átaka. Innan fyrirtækisins segja margir framámenn, að það sé hið gamla fírma, Loftleiðir sem nú sé endanlega komið á hausinn, en Flugfélag íslands vaxi og dafni með Evrópufluginu. Fulltrúar gömlu Loftleiða, segja á hinn bóginn að fyrirtækið nærist nú sem endranær af eignum Loftleiða. Eins og kunnugt er var Flugfélag íslands stofnað 1937 og byggðist fyrst og fremst upp á innanlandsflugi og síðar meir flugi til meg- inlands Evrópu. Loftleiðir hófu á hinn bóg- inn flug milli Islands/Evrópu og Bandaríkj- anna 1944. Milli þessara flugfélaga ríkti tölu- verð samkeppni um áratugaskeið m.a. vegna Evrópuflugsins. Bæði lentu þau í hæðum og lægðum í rekstrinum. Flugfélagið naut vel- vildar og stuðnings þjóðarinnar vegna erfiðs innanlandsflugs, en Loftleiðir hösluðu sér völl í Bandaríkjunum og hafa frá stríðslokum verið "andlit íslands vestra" og verið sú land- kynning sem drýgst hefur verið landi og þjóð þar. Árið 1973, þegar bæði félögin höfðu um hríð átt í erfiðleikum, voru þau sameinuð og nefnast síðan Flugleiðir. Ríkið átti þarna 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.