Þjóðlíf - 01.04.1988, Blaðsíða 18
INNLENT
Nýi meistarinn hylltur. Steinunn Ásmundsdóttir, starfsmaður Þjóðlífs, færir Þjóðlífsmeistaranum í tölvuskák blómvönd að unnum
sigri. Jóhann Bjarnason, umsjónarmaður Excel 68000, tekur við blómum og hamingjuóskum fyrir hönd meistarans.
Tölvuskák
Nýr Þjóðlífsmeistari krýndur!
Þjóðlífsmeitarinn
Novag Forte B varð
að lúta í lœgra haldi
gegn Fidelity tölvunni
Excel 68000 í mögn-
uðu einvígi þar sem
tölvurnar reyndu með
sér á fjórum styrk-
leikastigum. Glœsi-
legar fléttur, fórnir —
ogfíflska . . .
í síðasta tölublaöi Þjóölífs var sagt frá fvrsta tölvuskákmótinu sem haldið hefur verið hér á
landi, og Þjóölífsmeistarinn kynntur: Novag Forte B. Ekki fékk meistarinn að sitja lengi á
friöarstóli. Áskorun barst frá nýinnfluttum meðlimi Fidelity skáktölvufjölskyldunnar frægu:
Excel 68000. Skáksagan geymir mörg sorgleg dæmi um viðureignir og einvígi sem urðu aldrei
aö veruleika, þannig vildi Staunton ekki tefla við Morphy á öldinni sem leið og Fischer ekki við
Karpov hér um árið. En Forte B reyndi engin undanbrögð; fjögurra skáka einvígi milli hennar
og Excel 68000 um titilinn „Þjóðlífsmeistari í tölvuskák".
Skáktölvur hafa yfirleitt mörg styrkleik-
astig og nota því rneiri tíma sem þankagang-
ur þeirra verður dýpri. í einvígisskákunum
fjórum var umhugsunartími tölvanna mis-
jafn: 5 sekúndur á hvern leik í fyrstu skák-
inni. 15 í annarri, 30 íþeirri þriðju ogsvo heil
mínúta í lokaskákinni. Hér er þess að geta að
á efri stigum hugsa flestar skáktölvur í miklu
meira en eina mínútu um livern leik: kannski
heilan sólarhring þegar vel liggur á þeim.
Það er hins vegar óhætt að gera ráð fyrir því
að skákáhugamenn af holdi og blóði tefli
fyrst og fremst á lægri stigum — einvígis-
Novag Forte B 0 0 1 ‘/2 = lVi
Fidelity Excel 68000 1 1 0 ‘/2 = 2Vi
kapparnir munu reynast mörgum erfiðir
strax á fyrsta stigi.
Dregið var um liti á formlegan hátt og kom
í hlut Novag Forte B að stýra hvítu mönnun-
um. Tölvurnar höfðu fimm sekúndur að
jafnaði á leik. og skákin gekk því einkar
greiðlega fyrir sig. Meistarinn virtist ekki í
sérstaklega góðu jafnvægi. lenti fljótlega í
krappri vörn og missti peð. Excel-tölvan
tefldi af stakri kúnst og jók pressuna með
svörtu mönnunum. Eftir 30 leiki var staða
Forte B gjörtöpuð en hún streittist við í
fjörutíu leiki til viðbótar. Skáktölvur eru
ekki gjarnar á að gefa skákir, þær vilja annað
hvort hreint og klárt mát eða þá að þær þrá-
leika til jafnteflis.
Áskorandinn var sem sagt í essinu sínu og í
annarri skákinni hafði hann hvítt. Umhugs-
unartími var fimmtán sekúndur á leik. Tölv-
urnar léku hratt fyrstu tíu leikina og áttu fyrir
18