Þjóðlíf - 01.07.1988, Qupperneq 12
INNLENT
í förmeðGrænfriðu
WHAIES
Grænfriðungarnir voru margir hverjir reyndir fjallgöngumenn og mátti sjá það af tilþrifum þeirra í vaðinu og á bómunum.
Það var hringt í mig síðla dags 9. júní og ég
beðinn að koma til Glocester-borgar í Mas-
sachusettsfylki í norðausturhorni Bandaríkj-
anna. Það var einn af forystumönnum
Grænfriðunga í Bandaríkjunum sem
hringdi, og sagði hann að merkilegra tíðinda
væri að vænta í Glocester.
Ég dreif mig af stað og var kominn til
hafnarborgarinnar eftir tæpra þriggja stunda
akstur. Á hóteli í bænum hitti ég Grænfrið-
ungana, sem voru á þriðja tug talsins. Þetta
var ungt fólk á aldrinum 20 til 35 ára, sum
þeirra greinilega í mjög góðri líkamsþjálfun,
önnur feit og pattaraleg. Þetta voru hvorki
úfnir hippar né sléttgreiddir bísnissmenn.
Fremur var þarna samankominn hópur
dæmigerðra Bandaríkjamanna, frjálslega og
snyrtilega klæddir og vingjarnlegir í viðmóti.
Ég ræddi við nokkur þeirra þarna um
kvöldið, og var mér sagt að í morgunsárið
væri von á Jökulfellinu til Glocester, það
flytti frystan fisk frá Sambandinu og stæði til
að hindra löndun svo lengi sem unnt væri.
Fólkið talaði saman í hálfum hljóðum og
gekk hljóðlega um, þau vildu ekki vekja at-
hygli á sér — hún yrði næg þegar mótmæla-
aðgerðirnar hæfust. Elizabeth Stevens sem er
31 árs gömul sagðist hafa stundað fjallgöngur
undanfarin 8 ár, og nú hyggðist hún nýta sér
þá reynslu um borð í Jökulfellinu.
Elizabeth sagðist hafa yfirstjórn á mót-
mælaaðgerðum Grænfriðunga í norðaustur-
hluta Bandaríkjanna. Ég spurði hana grannt
um afstöðuna til hvalveiða. Hún sagði að
hvalastofnarnir væru í útrýmingarhættu, það
yrði að stöðva hvalveiðar algjörlega og hún
vonaðist til að hvalveiðibannið yrði fram-
lengt eftir 1990. Hún sagðist telja að íslend-
ingar ættu engan rétt á að veiða hvali.
Erik Johnson kvaðst mundu klífa um borð
í Jökulfellið um morguninn og tók undir orð
Elizabeth. Hann sagðist vera nýfluttur til
Boston, þar sem hann sæi um að skipuleggja
aðgerðir Grænfriðunga gegn þeirri iðnaðar-
mengun sem ylli súru regni. Tom Ricard
sagðist hafa stundað fjallgöngur hátt á annan
áratug. Um morguninn ætluðu átta manns
að fara um borð í Jökulfellið, allt þrautþjálf-
aðir klifrarar. Þau voru spennt fyrir því að
reyna sig um borð í fraktskipi, hlakkaði til en
gerðu sér jafnframt grein fyrir hættunum, til
dæmis þegar reynt yrði að ná þeim niður úr
vígjunum í skipinu.
Það kom í ljós að allt fólkið á hótelinu
12