Þjóðlíf - 01.07.1988, Síða 14
INNLENT
borð í Jökulfellið og einn þeirra hefði ein-
vörðungu það hlutverk að skýra aðgerðirnar
fyrir áhöfninni og reyna að sjá til þess að allt
færi friðsamlega fram. I einum gúmbátanna
voru fjölmiðlamenn, auk mín kollegi frá
Boston Globe sem er stærsta blaðið í Boston
og annar frá fréttastofunni Associated Press.
Um sexleytið skreið Jökulfellið hægt inn á
höfnina og stefndi að bakkanum þar sem
frystigeymslur á vegum Sambandsins eru til
húsa. Grænfriðungar höfðu haldið sig í vari
við aðra báta á höfninni, enda ekki vanþörf
frá þeirra sjónarmiði — bandaríska strand-
gæslan hefur aðsetur við Glocester höfn í 200
metra fjarlægð frá löndunarstað Jökulfells-
ins. En — vonbrigðin leyndu sér ekki í hópi
Grænfriðunga þegar það rann upp fyrir þeim
að áhöfnin mundi ekki reisa bómurnar áður
en skipið legðist að bryggju. Það yrði ekki
hlaupið að því að hindra uppskipun.
Fjórir gúmbátar Grænfriðunga þeyttust að
stjórnborðshlið skipsins og áttmenningarnir
hentust upp álstiga sem þeir hengdu yfir
borðstokkinn. Þeir komust klakklaust upp í
kranana tvo og mastrið miðskips. Einn
þeirra hlekkjaði sig við stigann upp í mið-
mastrið og hindraði þannig að nokkur kæm-
ist upp í það. Krönunum var lokað og læst.
Atta manns voru komin um borð og undan
skipshlið hringsóluðu fimm gúmbátar
Grænfriðunga og voru fyrirliðarnir í tal-
stöðvasambandi við fólkið um borð. Fyrsti
hluti aðgerðanna hafði tekist, og skipstjór-
inn átti næsta leik.
Örn Daníelsson skipstjóri sat ekki auðum
höndum. Hann óskaði þegar í stað eftir að-
stoð strandgæslunnar, sem kom þeysandi á
tveimur hraðskreiðum bátum þessa tvö
hundruð metra frá höfuðstöðvunum við
höfnina. Örn sagði mér eftir að mótmælun-
um lauk, að Grænfriðungar virtust hafa lagt
áherslu á að allt færi friðsamlega fram.
Strandgæslumenn sveimuðu um höfnina
drykklanga stund en fóru loks um borð í
Jökulfellið ásamt með lögreglunni í Glocest-
er. Þeir voru fljótir að klippa Pat Lowell
lausan, þann sem hafði hlekkjað sig við
mastrið miðskips. Síðan stóðu þeir í stíma-
braki við að ná niður Grænfriðungunum sem
höfðu komið sér fyrir í fjallgönguvöðum sem
voru strengdir milli miðmastursins og kran-
anna tveggja.
Tveimur klukkustundum eftir að uppskip-
un átti að hefjast hugkvæmdist lögreglu-
mönnum að kalla á vettvang stigabíl frá
slökkviliðinu. Stiganum var rennt undir
Grænfriðungana og þarmeð voru þau öll,
átta talsins, komin í vörslu lögreglunnar.
Enn var það til marks um nákvæman undir-
búning og reynslu Grænfriðunga, að í landi
beið þeirra lögfræðingur strax og fréttist af
handtökunum.
Nokkrir fiskibátar létu úr höfn á meðan
Grænfriðungar héldu Jökulfellinu í böndum.
Áhafnirnar gláptu á aðfarirnar um borð í
skipinu og varð starsýnt á borðana með
Lögreglumenn klipptu svo hlekkina af Grænfriðungunum í miðmastrinu og fór það
allt saman reiðilaust fram.
áskorunum um stöðvun hvalveiða og bann
við innflutningi á íslenskum fiski. Sumir
sýndu uppréttan þumalfingur. Á leið í land
kallaði stýrimaður á einum fiskibátnum í
okkur og spurði hvort við værum Grænfrið-
ungar. „Ég er það,“ svaraði sá sem stýrði
bátnum. „Þetta var vel gert hjá ykkur,“
hrópaði hinn á móti.
Lögregluyfirvöld í Glocester voru ekki á
sama máli, því að áttmenningarnir voru
hnepptir í varðhald og ákærðir fyrir að ráðast
í óleyfi um borð í erlent skip og fyrir óspektir
á almannafæri. Þau voru dregin fyrir dómara
síðar um daginn. Mér þótti athyglisvert
hversu Grænfriðungar stungu í stúf í réttar-
salnum. Á undan þeim voru nokkrir subbu-
legir dópistar leiddir fyrir dómarann, sem
afgreiddi þá stuttaralega með sektum og
varðhaldi. Síðan gengu hvalavinirnir átta í
salinn, settust í sérstaka stúku og svöruðu
nafnakalli kurteislega. Viðmót dómarans
var mun vinsamlegra en í garð þeirra sem
hann hafði dæmt á undan. Hann gerði þeim
að mæta fyrir rétti eftir viku, en leysti þau
jafnframt úr haldi á eigin ábyrgð, án trygg-
ingar.
Á meðan hafði hjálparlið áttmenninganna
pakkað öllu saman og komið gúmbátunum í
flutningabílinn að nýju. Þeir yrðu notaðir í
næstu viku við aðgerðir gegn iðnaðarmeng-
un. Þegar hetjurnar átta komu aftur á hótel-
ið, voru opnaðar bjórflöskur og fagnað þeim
árangri sem náðst hafði. Áður en kvöldaði
var hver maður lagður af stað til síns heima.
Jón Ásgeir Sigurðsson
14