Þjóðlíf - 01.07.1988, Page 22
ERLENT
Fylingdale stöðin er orðin bitbein stórvelda, því Sovétmenn óttast að endurnýjun hennar verði hluti af geimvarnaáætlun Reagans.
í þau níu ár sem hún hefur setið að völdum
hefur hún hafnað algjörlega öllum hugmynd-
um um einhliða afvopnun eða einhliða til-
slökun þótt friðarhreyfingunni, sem setti
siíkt á oddinn, yxi um tíma mjög fiskur um
hrygg. Jafnt og þétt hefur Thatcher aukið
kjarnorkuvopnastyrk Breta, — nú síðast
með Trident kjarnorkukafbátaáætluninni en
hún felur í sér áttföldun á kjarnorkuvopna-
styrk breska hersins. A síðustu árum hefur
hún samt átt innileg samskipti við Gorbasjof
leiðtoga Sovétríkjanna. I raun var það hún
sem sló upptakt þeirrar hljómkviðu friðar
sem látið hefur í eyrum að undanförnu þegar
hún árið 1984 sagði eftir stuttan fund með
Gorbasjof að við hann væri líklegast hægt að
eiga viðskipti.
Hið huglæga og oft mótsagnakennda ógn-
arjafnvægi er því enn við lýði og eru birtinga-
myndir þess margvíslegar. Á Bretlandi eru
tíu njósna- og samskiptastöðvar sem þjóna
þeim tilgangi að fylgjast með óvininum í
austri og það hvarflar ekki að mörgum að
þær þurfi að leggja niður þó svo Reagan og
Gorbasjof lyfti glösum bæði haust og vor og
einkar hlýtt sé á milli Thatchers og Gorba-
sjofs. í Saxa Vord á Hjaltlandseyjum,
Buchan í Skotlandi og Neatishcad í Englandi
eru ratsjárstöðvar áþekkar þeim sem eru á
íslandi. í West Murkle í Norður Skotlandi,
rétt hjá Dounrey kjarnorkuverinu umdeilda,
er kafbátafjarskiptastöð og frá Edroll í Skot-
Bretlandi.
landi er fylgst með umferð skipa á Norðurs-
jó. í Chicksands og Menthwill Hill eru hlust-
unar- og njósnastöðvar sem fylgjast grannt
með fjarskiptum (símum, telexum, póstföx-
um og símskeytum) austantjalds og í
Morwenstow er sambærileg njósnastöð sem
fylgist með vestrænum alþjóðafjarskiptum.
(Þar er því t.d. unnt að hlera símtöl til og frá
íslandi.) Þessar njósnastöðvar eru allar í
Englandi. I Swavesy í Englandi og Mormond
Hill í Skotlandi eru fjarskiptasendar og
-móttakarar.
Eldflaugaviðvörunarstöðin í Fylingdale
(Ballistic Missile Early Warning Station,
BMEWS) í Yorkshire í Englandi er að
mörgu leyti frábrugðin hinum stöðvunum.
Hún er ein af þremur stöðvum sem mynda
eldflaugaviðvörunarkerfi Vesturlanda. Hin-
ar tvær stöðvarnar eru í Thule á Grænlandi
og Clear í Alaska. Ratsjár þessara stöðva
greina eldflaugar í allt að 5000 km fjarlægð.
Sé kjarnorkueldflaug skotið upp frá Rúss-
landi þá getur stöðin í Fylingdale fundið út
nákvæmlega hvaðan henni hefur verið skot-
ið og hvert skotmark hennar er. Yfirmaður
stöðvarinnar hefur 60 sekúndur til þess að
skera úr um hvort þessi eldflaug er raunveru-
leg. Telji hann að svo sé kemur hann skila-
boðum samstundis áleiðis til forseta Banda-
22