Þjóðlíf - 01.07.1988, Qupperneq 43
Hjalti Geir forstjóri Kristjánsson for-
stjóra, Siggeirssonar kaupmanns, Torfa-
sonar prentara, — Jónassonar skálds?
„Pú þekkir þessa kerlingu — Póra heitir hún,
vitlaus, að ég held, og hefir brókarsótt og
situr um mig nótt og dag, úti og inni, svo ég
hef aldrei frið, og er hér eins og í helvíti. Nú
get ég svarið við æru mína, og við guð, ef
þess er krafist, að ég hefi aldrei í orði né
verki gefið henni tilefni til þessarar aðferðar;
en ég hef heyrt, að meðan ég lá veikur, hafi
hana dreymt ég mundi lifna við aftur „og
verða seinni maðurinn sinn“. Þetta er, eins
og þú sérð sjálfur, óþolandi; hún hafði hægt á
sér um stund, en er nú aftur allt í einu orðin
meir en óþolandi; ég verð að þekja fyrir
gluggann minn, svo ég skuli ekki allan dag-
inn þurfa að sjá í þessi svívirðilegu og af-
gömlu pútuaugu. — Ég vildi þú værir stund-
arkorn kominn í minn stað, svo þú gætir séð
hvursu réttlátt það er, að „pólitíið" trassar
fyrstu skylduna sína: að vernda saklausa
borgara. Guð veit ég er saklaus, og hef nú
orðið að þola þessa svívirðing á þriðja ár. En
þolinmæðin er þrotin; ef ég í bræði minni rek
stein eða spýtu út um rúðu í kjaftinn á henni,
þá verð ég sektaður en þú átt „det moralske
ansvar".
Þinn
J.Hallgrímsson.
P.S.
Gakktu á kerlinguna, og hún mun viður-
kenna, að þetta eru tómar grillur eða hrekkir
úr henni sjálfri. Ég flý ekki bæinn fyrir þess-
ari svívirðilegu ásókn, sem smánar bæinn og
pólitíið meir en mig; gerðu eitthvað, heldur
en að gera ekki neitt, kallaðu mig fyrir rétt,
þó mér sé það meir en dauðleitt. En frið vil
ég hafa, ég áfullan rétt á að krefjastþess. Mér
hæfir og að afsaka, að ég tala ekki við þig
munnlega; en ég er næstum lagstur af gremju
og öll þessi vitlausa — og óþverrandi ásókn
af afgamallri og svívirðilegri pútu, er mér
þess utan svo mikil viðurstyggð og trassa-
MENNING
Ólafur framkvæmdastjóri, Sigurðsson
prentara, Sigríðar Siggeirsdóttur kaup-
manns, Torfasonar prentara, Jónasson-
ar skálds?
skapur pólitíisins svo óskiljanlegur, að ég
gæti ekki nefnt það með köldu blóði.
J.H.
(Eina línu, sem svar, óska ég fljótt til baka,
því ég ætla nú úr þessu að fara ögn út fyrir
lögin og „tage mig selv til rette“; so átt þú að
dæma mig. (Penninn er verri en puntstrá.)
Svo er að sjá að Jónas hafi og hitt Stefán
persónulega og rætt þetta mál við hann og
þegar Stefán hafi fengið bréfið hafi honum
þótt meir en nóg komið. Samdægurs kallar
hann til hlutaðeigandi persónur og gefur út
svohljóðandi skjalfesta þinglega áminningu:
„Arið 1842, 19da apríl, var Þóru nokkurri
Torfadóttur er candid. philosophiæ J. Hall-
grímsson hafði munnlega framfært, að
ásækti sig með hneykslanligri aðferð, gefin
áminning um að hætta slíku eftirleiðis,
hvörju hún hátíðlega lofaði, og að hún hér
eftir hvörki skyldi standa við glugga hans eða
ganga eftir honum á götum eða annars stað-
ar; já jafnvel ekki líta við honum, eða í þá átt
sem hann væri, svo enginn tæki það svo sem
hún liti til hans; og vegna þess ákomna orð-
róms var pólitíiþjónunum strengilega upp-
áboðið að gæta að hennar aðferð framvegis,
og handtaka hana, ef hún bryti á móti því hér
að framan skrifaða; og færa hana hingað til
frekari ráðstöfunar, þar eð ekkert hneyksl-
anlegt athæfi og viðmót má líðast á bæjarins
götum eða annars staðar, hvar pólitíinu við-
kemur—.
Þetta var upphátt lesið af þingbókum fyrir
öllum hlutaðeigendum. ut supra
St. Gunnlögsen
H.Hendrichsen Th. Bjarnasen.
Frh. á næstu síðu.
Saxbauti er úrvals nautabuff (
lauksósu. í heildós eru sjö buff
úr 615 g af nautahakki og fjögur
í hálfdós úr 350 g af hakki.
Matreiðslan getur ekki verið ein-
faldari. Hitið við vægan hita í
potti eða pönnu. Þeir sem vilja
auka laukbragðið geta fyrst
brúnað saxaðan lauk ( viðbót.
Saxbauti má kallast veislumatur,
heima og að heiman, með kart-
öflum, spæleggi og hrásalati.
Veisla í
farangrinum
DósastærSlr
Heildós: 860 g (7 stk.)
Hálfdós: 480 g (4 stk.)
Lifrarkæfa
Kindakæfa
Lifrarkæfan er í uppáhaldi hjá
mörgum, ungum sem öldnum,
t.d. á brauði með paprikuhringj-
um, steiktum sveppum og
beikoni.
VI8 viljum vekja athygli á nœringargildi
hennar. 1100 g af lifrarkœfunni er, auk
annarra vítamína og ateinefna, fullur
dagskammtur af A og B2 vítamínum og
hálfur af járni.
Tómatar og agúrkur fara vel
með kindakæfunni. Hana má
skera í bita og nota í pinnamat.
Öndvegis álegg
DósastærSlr
Lifrarkæfa: 270 g og 120 9
Kindakæfa: 270 g
41