Þjóðlíf - 01.07.1988, Síða 48
MENNING
Vinn að verkum fyrir
Grundfirðinga og ísfirðinga
Viðtal við Steinunni
Þórarinsdóttur
myndhöggvara
Steinunn Þórarinsdóttir myndhöggvari
stundaöi nám í Fine Artdeild í Portsmouth
Politechnic myndlistarskólanum í Bret-
landi á árunum 1974-1979 og lauk þaðan
BA prófi. Þaðan hélt hún til Ítalíu og
stundaði nám í Bologna Akademíunni
1979-1980. Hún hefur haldið 5 einkasýn-
ingar í Reykjavík, síðast á Kjarvalsstöð-
um 1987, sem var einhver mest heillandi
og eftirminnilegasta myndlistarsýning
sem undirrituð hefur séð. Auk þess hefur
hún tekið þátt í fjölda samsýninga hér á
landi og erlendis m.a. á Ítalíu, í Danmörku
og nú síðast á Scandinavia Today í
Bandaríkjunum. Hún á verk ásamt 4 öðr-
um íslenskum myndlistarmönnum á 3ja
mánaða sumarsýningu í Gautaborg í
sumar. Sú sýning nefnist 5 Dimensioner
og er á vegum Röhsska-safnsins í
Gautaborg og sú sýning verður síðan sett
upp í Norræna húsinu í Færeyjum. Stein-
unn er óneitanlega ein af okkar efnileg-
ustu myndhöggvurum og það eru greini-
lega fleiri en við á skerinu sama sinnis.
Hún er nú nýkomin heim frá Cleveland í
Bandaríkjunum og ég innti hana eftir er-
indinu.
— Ég á nokkur verk sýningunni Scandinavia
Today, sem hefur verið sýnd undanfarið
bæði í Japan og Bandaríkjunum. Norræna
ráðherranefndin skipulagði þessa farandsýn-
ingu og það er einmitt hún sem bauð mér,
ásamt finnskum myndlistarmanni að halda 3
fyrirlestra um verk mín og vinnuaðferðir í
Cleveland í Bandaríkjunum. Ég hélt fyrir-
lestur fyrir opnun sýningarinnar þar og síðan
hélt ég 2 fyrirlestra í háskólum í Cleveland og
nágrenni. Þetta gekk bara mjög vel, það var
góð aðsókn og virtist vera mikill áhugi.
Hefurðu selt einhver verka þinna á sýning-
unni?
— Já, enn sem komið er hef ég selt eitt
verk. Bandarískur listaverkasafnari skrifaði
mér um daginn og falaðist eftir einu verk-
anna og nú hefur verið gengið frá þeirri sölu.
Það var stórt verk úr gleri og járni.
Vinnurðu aðallega í þau efni?
— Nei, ég vinn alltaf í mörgum efnum
jöfnum höndum, svo sem leir, gler, járn og
blý. Það fer eftir hugmyndinni hvaða efni ég
nota. Mér finnst gott að fara öðru hverju úr
þungu efnunum eins og leir, sem fylgir flók-
inn og langur prósess, í önnur efni þar sem ég
get unnið meira í efnið sjálft og séð árangur-
inn fyrr.
Er eitthvert ákveðið meginþema í verkum
þínum?
— Ja, kannski það að ég hef alltaf unnið
útfrá manneskjunni. Útfrá minni upplifun af
umhverfinu og manneskjunni í því. Stundum
eru þau jafnvel eins og litlar sögur, stundum
bara einhver tilfinning eða hugsun. Verkin
46
Steinunn Þórarinsdóttir myndhöggvari.
Manneskjan vill alltaf ná svo langt,
kánnski lengra en hún í rauninni kemst..