Þjóðlíf - 01.07.1988, Síða 54
NÁTTÚRAN
Grímseyjarlaxinn
Stærsti lax, sem óyggjandi heimildir eru um
hér við land, er Grímseyjarlaxinn. Hann
veiddist þó ekki á stöng, heldur í net við
Grímsey 1957.
Snemma í aprfl, nánar tiltekið þann
sjöunda, hélt vaskur sjómaður í heiðskíru
veðri vestur fyrir Grímsey að vitja þorska-
neta sinna. í neti sem Óli Bjarnason hafði
lagt 400 metra út frá eynni á 16 faðma dýpi
var hins vegar fátt þorska. Aftur á móti fann
hann þar ánetjaðan stærsta lax sem hingað til
hefur verið veginn án tvímæla við Island.
Laxinn var hængur, tíu vetra gamall, 132
sentimetrar að lengd, 72 sentimetrar að um-
máli þar sem hann var breiðastur, og vó 49
pund blóðgaður. Tæpast hefur hann því í
fullu fjöri verið undir 50 pundum. Ekki hafði
laxinn hrygnt nema tvisvar, og samkvæmt
hreisturlestri Veiðimálastofnunar hafði liðið
ár á milli hrygninganna. Það er athyglisvert,
að þegar hann var veiddur á leið til hrygning-
ar í hið þriðja sinnið hafði hann einnig sleppt
ári úr frá seinni hrygningunni.
Þar sem Grímseyjarlaxinn var veiddur
ekki langt frá ósum hinnar frægu stórlaxaár,
Laxár í Aðaldal, gerðu menn því skóna að
hann hefði verið á leið þangað til hrygningar.
Laxá í Aðaldal - ættmóðir
stórlaxa
Svipaður stórlax, þó eilítið minni, fannst
dauður um jólin 1929 í Laxá í Aðaldal og
mældist þá um 36 pund. Að öllum líkindum
hefur hann verið hrygndur, og látið lífið í
kjölfar hrygningarinnar eins og laxar gera
langoftast. Vöxtur kynkirtlanna í aðdrag-
anda hrygningarinnar er jafnan geysilega
frekur á forðann sem laxinn hefur áður byggt
upp í vöðvum sínum og fituvefjum, og þess-
vegna léttast laxarnir verulega yfir kyn-
þroskaskeiðið. Fyrir bragðið er líklegt að
stórlaxinn sem rak á jóladag 1929 í Aðaldaln-
um hafi verið um 45 pund nýrunninn úr sjó.
Annar geysistór lax veiddist nokkrum ára-
tugum fyrr, 1895, við ádrátt í Vitaðsgjafa í
Laxá í Aðaldal, ættmóður stórlaxanna.
Hann mældist 45 pund.
Raunar er það svo, að flestir þekktir stór-
laxar eru úr Laxá í Aðaldal, sem sennilega er
frægasta stórlaxaá í veröldinni. Jakob Haf-
stein, sem sjálfur dró einu sinni rösklega 36
punda hæng í ánni -stærsta laxinn sem enn
hefur verið tekinn á flugu hér á landi - skrif-
aði lýsingu á fundi Jóns Þorbergssonar á
Laxamýri á rýrum og horuðum hæng, sem
fannst dauður á Kiðeyjarbroti í Laxá. Sá
dauði mældist 33 pund, og hefur áreiðanlega
ekki verið undir 40 þegar hann gekk í ána.
Sigurður Egilsson frá Laxamýri hefur
greint frá því, að við kistuveiðina 1898 til
1928 hafi stærsti laxinn sem tekinn var í kistu
verið 38 pund en sá næststærsti 36 pund.
Stærsti lax á stöng
En ekki koma þó allir stórlaxar úr Aðaldaln-
um, einsog netaveiðin í Hvítá og ekki síst
Flóðatangalaxinn, staðfesta. Guðmundur
frá Miðdal, geysilegur laxveiðimaður, skrif-
aði eitt sinn grein þar sem sagði frá grútlegn-
um 36 punda hæng sem tekinn var í Kúða-
fljóti. Sá hefur vafalaust verið yfir 40 pund
nýgenginn í fljótið.
Sogið og þverár sem renna í Ölfusár-Hvítá
eru líka þekktar fyrir stórlaxa. Iðulaxinn,
sem Kristinn Sveinsson, húsgagnameistari
veiddi á spón í júní 1946 er sá stærsti sem
veiðst hefur hérlendis. Hann var 38,5 punda
hrygna, afar djúp á bolinn einsog kemur
fram í því að mesta ummál hennar var 70
sentimetrar, eða ekki nema tveimum sentí-
metrum miður en ummál Grímseyjarlaxins.
Var hann þó yfir 10 pundum þyngri og sam-
svaraði sér ágætlega.
Ólafur Jóhann Sigurðsson segir frá því í
bókinni Dunar á eyrum að Guðmundur Jó-
hannsson hafi sagt sér af geysistórum laxi
sem hann veiddi við Sakkarhólma í Soginu.
Þetta mun hafa verið um 1930, og Guðmund-
ur sagði Ólafi Jóhanni að laxinn hafi vegið
hvorki meira né minna en 44 pund. Því mið-
ur var þó enginn til að staðfesta þessa mæl-
ingu á sínum tíma.
Brúará hefur reynst gjöful á stórlaxa gegn-
um árin, þó mörgum finnist áin mætti vera
ríkari á lax en veiði í dag vitnar um. I henni
var fyrr á öldinni áratugum saman við veiðar
Víglundur Guðmundsson og veiddi margan
stórlaxinn. í september 1952 veiddi hann
næststærsta lax, sem enn hefur veiðst á
stöng. Laxinn var 37,5 punda hængur, grút-
leginn, og hefur væntanlega verið nær 40
pundum þegar hann rann í sjó. Hann var sex
vetra, og hafði verið þrjá vetur í sjó en aldrei
gengið til hrygningar fyrr en þetta sumar.
Eldeyjarlaxinn
Næststærsti laxinn sem veiðst hefur hér við
land á þessari öld - og frá upphafi sé miðað
við staðfestar mælingar eingöngu - er Eldeyj-
arlaxinn. Hann veiddist einsog ættingi hans
Grímseyjarlaxinn í þorskanet í sjó. Báturinn
Goði frá Keflavík fékk hann um miðjan maí
1975, útafEldeyjarboða. Laxinn var hængur,
42 pund, 116 sentímetra langur og 63 sentím-
etrar þar sem hann var mestur um sig.
Eldeyjartröllið var í fullu fjöri þegar þegar
bátsverjar á Goða vitjuðu um net sín, og var
næstum búinn að rífa sig lausan þegar átti að
innbyrða hann. En Goðamenn urðu snarari í
snúningum og tókst að setja í hann gogg í
þann mund sem stórlaxinn setti stefnuna í
djúpið.
Hængurinn var sex vetra, og hafði ekki
hrygnt. Hinir bestu menn töldu hann vera á
leið í vatnasvæði Ölfusár-Hvítár, þegar
ómerkileg þorskanet urðu þessum glæsta
stórlaxi að ótímabærum aldurtila á Eldeyjar-
boða.
(Heimildir: Ýmis tölublöð
Veiðimannsins).
össur Skarphéðinsson
50