Þjóðlíf - 01.07.1988, Page 58
HEILBRIGÐI
„Estragon: Förum.
Vladimir: Við
getum það ekki.
Estragon: Pví þá
ekki?
Vladimir: Við
erum að bíða eftir
Godot.u
Sögur, leikrit, ljóð eftir
Samuel Beckett. Þýðing
og umsjón. Arni Ibsen
308 bls. Verð kr. 2.390.-
Samuel Beckett er í hópi merkustu rithöfunda
þessarar aldar og hefur ef til vill öörum fremur
stuðlað að róttækum breytingum á skáld-
sagnagerð og leikritun eftir seinni heints-
styrjöld. Beckett. sern hlaut bókmenntaverðlaun
Nóbels árið 1969. er áleitinn höfundur, einstakur
og frumlegur, en stendur jafnframt nær hinni
klassísku evrópsku bókmenntahefð en flestir
aðrir nútímahöfundar.
Hann skilgreinir hlutskipti mannsins á guð-
lausri atómöld. lýsir leitinni að tilvist og
samastað í veröld sem er á mörkum lífs og
dauða, þar sent tungumálið hevr varnarstríð við
þögnina. Þrátt fyrir nær fullkomið getuleysi.
niðurlægingu og algera örbirgð mannskepnunnar
er henni lýst með miklum húmor og af
ómótstæðilegri ljóðrænni fegurð.
í þessari bók eru sjö leikrit. sex sögur og
fjórtán Ijóð frá fimmtíu ára ferli. þar á meðal
þekktasta verk Becketts, leikritið Beðið eftir
Godot, í nýrri þýðingu, og eitt nýjasta snilldar-
verkið, hin stutta og magnaða skáldsaga
Félagsskapur, frá 1980. Þýðandinn er Árni Ibsen
sem hefur um árabil kannað verk þessa
alvörugefna írska húmorista og hann skrifar
jafnframt inngang og skýringar. Þetta er í fyrsta
skipti sem verk Samuels Beckett eru gefin út í
íslenskri þýðingu.
J---------------------S
^vart d íivítu
b_____________________r
Vanþekking og fordómar
Á íslandi er ríkjandi mikil vanþekking á
sjúkdómnum alnæmi og smitleiðum hans.
Þetta kemur meðal annars fram í niður-
stöðum Gallup-könnunar sem gerð var
hér á landi nýlega og birtist í síðasta
fréttabréfi landiæknisembættisins. Þar
kemur til dæmis fram að þó að flestir
íslendingar viti núorðið hverjar smitleið-
ir alnæmis séu, þá eiga margir erfitt með
að gera sér grein fyrir hverjar þær eru
ekki. Þannig halda fjörutíu og fjögur
prósent þeirra sem spurðir eru að alnæmi
geti smitast við kossa og um fjórðungur
að smit geti borist með hósta eða hnerra.
Og fleira í þessum dúr kemur fram í nið-
urstöðum þessarar könnunar.
Það má lesa út úr þessum niðurstöðum
að margt fólk er dauðhrætt við alnæmi og
að smitast af því og sér því smitleiðir í
ótrúlegustu athöfnum á ótrúlegustu stöð-
um. Hræðslan á rætur sínar að rekja til
þekkingarleysis. Og frá hræðslunni er
stutt í fordómana. Ekki hefur heldur bætt
úr skák öll æsifréttamennska fjölmiðla á
liðnum árum um alnæmi.
Þegar sjúkdómurinn alnæmi kom fyrst
fyrir eyru almennings hér á landi var því
haldið fram að þeir sem helst ættu á hættu
að fá hann væru hommar og eiturlyfja-
sjúklingar. Síðan hefur margt annað
komið í Ijós varðandi útbreiðslu alnæmis
bæði erlendis og hér á landi. Þessi kenn-
ing á alls ekki lengur við. Sjúkdómurinn
berst í flestum tilvikum milli manna við
kynferðislegt samneyti, og einskorðast
þá alls ekki við samkynhneigða karlmenn
eins og haldið var, heldur eiga í raun all-
flestir sem skipta oft um rekkjunaut á
hættu að smitast. Innan heilbrigðiskerf-
isins er jafnvel hætt að tala um áhættu-
hópa, heldur er talað um fólk sem stund-
ar áhættuhegðun.
I niðurstöðum skoðanakönnunarinnar
kom einnig fram að 11% aðspurðra töldu
að það yki líkurnar á smiti að vinna með
eða vera nálægt sýktum einstaklingi, 7%
töldu það auka smitlíkumar að fá koss á
kinnina og 44% héldu smitlíkur aukast
við skordýrabit.
Það er einnig sérlega athyglivert í Gall-
up könnuninni, að einungis 11% hafa í
hyggju að breyta kynhegðan sinni vegna
alnæmisáhættu. Af þeim ætlaði innan við
helmingur(46%) að vera varkári en hing-
að til við val á rekkjunautum, þannig að
draga mætti þá ályktun að bólfarir íslend-
inga breytist ekki að ráði. Sú niðurstaða
brýtur í bága við þá niðurstöðu, að lands-
menn eru hræddir og fordómafullir
gagnvart sjúkdúmnum. Þeir virðast ætl-
ast til þess að alnæmissmitaðir viti ævin-
lega um smit sitt og séu ekki á ástarmark-
aðnum. Það getur varla talist ábyrg af-
staða heilbrigðra elskenda.
MS
Alnæmisveirur undir smásjánni
54