Þjóðlíf - 01.07.1988, Qupperneq 61
VIÐSKIPTI
Gjaldþrot
peningastofnana
Um þessar mundir er mikil
kreppa meöal einkavæddra
sparisjóða í Bandaríkjunum,
sem ekki er hægt aö draga úr
nema meö opinberri aðstoð.
Þessar peningastofnanir,
„Savings & Loan Associat-
ions“, fóru út í villta samkeppni
um viöskiptavini eftir aö lögum
hafði veriö breytt í frjálsræðis-
átt. Það leiddi svo til þess að
fleiri tóku lán en undir því gátu
staðið. Eftir verðhrun á fast-
eignamarkaði lentu svo við-
skiptavinir í greiðsluerfiðleik-
um þannig að nú er svo komið
að um þriðjungur þeirra 3100
sparisjóða er rekinn með tapi.
Um 500 þeirra eru í raun gjald-
þrota. Á viku hverri lokar að
meðaltali einn sparisjóður fyrir
afgreiðslu og leggur niður alla
starfsemi. Ríkisábyrgð er á
hluta veltunnar, þannig að
flestir viðskiptavinir og spari-
fjáreigendur fá eitthvað upp í
eignir sínar hjá viðkomandi
peningastofnunum en hrekkur
hvergi til. Sérfræðingar telja
að til að verja sparifjáreigend-
ur frekari áföllum vegna gjald-
þrota þurfi allt að 70 milljarða
dollara aðstoð að koma til.
New York Times: „Þetta er
að þróast upp í stærsta efna-
hagsáfall í sögu Bandaríkj-
anna eftir síðari heimsstyrj-
öld“.
Svín í náttúrulegri meðhöndlun á þýskum bóndabæ.
Gæðastimpill fyrir svínakjöt
í Evrópu er „náttúrulegur land-
búnaður“ stöðugt að sækja í
sig veðrið á markaðnum. Ný-
verið hafa þýsk dýraverndun-
arsamtök og búnaðarsam-
band bænda, sem er í and-
stöðu við stærri samtök,
komið upp nýrri merkingu á af-
urðir bænda sem sem ala dýr
á náttúrulegri fæðu. Þessar
merkingar þóttu nauðsynlegar
þar sem neytendum hafi ekki
hingað til gefist nægilega vel
kostur á að sjá á svínakjöti
hvernig það var tilkomið; hvort
það var fjöldaframleitt á stór-
búum eða upp fóðrað á
smærri bóndabæjum. Þessa
nýju merkingu mega einungis
þeir bændur nota, sem ala dýr
sín ekki upp í þrengslum, not-
ast við fóður af jörð sinni og
brúka aldrei kemisk efni, pen-
icillin, vaxtarhormóna eða
róandi meðul fyrir dýrin.
Svínakjöt sem þannig er til
komið þykir allt annað og
betra til vinnslu og bragðast
mun betur. Og selst tyrir
hærra verð. Danskir framleið-
endur sem selja náttúrulegar
kjötafurðir sínar í V-Þýska-
landi undir vöruheitinu „sus
agnatum“ hafa þegar náð
miklum árangri á markaðnum.
Spiegel
Mannréttindi til sölu
Eitt undarlegasta ríki í Aust-
ur—Evrópu er Rúmenía, þar
sem Ceausescu fer með völd.
Rúmenar hafa verið mjög
tregir til að rita undir margvís-
legar mannréttindakröfur á
ráðstefnunni í Vín og hafa þar
með tafið fyrir lokaályktun.
Talið er að ein aðalástæðan
fyrir tregðu Rúmena við undir-
ritun, sé ótti við kröfur þýsk—
og ungverskættaðra minni-
hlutahópa sem búa í landinu.
En á utanríkisráðherrafundi
Nató á dögunum kom í Ijós sú
skoöun að Moskva myndi fá
rúmensk stjórnvöld til að und-
irrita samninginn. Aukin held-
ur hafa rúmenskir stjórnarer-
indrekar látið vestræna starfs-
bræður sína vita um annan
möguleika; með því að fá
efnahagsaðstoð að vestan
muni Ceausescu vera reiðu-
búinn til undirritunar.
Milljarða-
mæringar
Þrátt fyrir svarta mánudaginn í
október og harkaleg áföll á
verðbréfa og hlutabréfamark-
aði þénuðu margir verðbréfa-
salar í Wall Street meira á sl.
ári en launahæstu forstjórar í
Bandaríkjunum. Hæstlaun-
uðu forstjórarnir fá í árslaun á
milli 8.8 og 26.3 milljónir doll-
ara en tíu tekjuhæstu spekúl-
antarnir á verðbréfamarkaðn-
um yfir 30 milljónir dollara. Að
sögn bandaríska tímaritsins
„Financial World" er 33 ára
gamall verðbréfamiðlari á
toppnum, Poul T. Jones og er
hann talinn hafa þénað á milli
80 og 100 milljónir dollara á sl.
ári. í fimmta sæti er Michael
Milken með 60 milljóna dollara
árstekjur, en um þessar
mundir eru málaferli í gangi
gegn honum vegna meintrar
sviksemi.
Milljón dollarar
gegn Pinochet
Árið 1983 var stofnaður sér-
stakur sjóður á vegum Banda-
ríkjaþings, „National En-
dowment for Democracy" til
að greiða fyrir lýðræðisþróun í
heiminum í bókstaflegum
skilningi. Þessi sjóður hefur nú
greitt eina milljón dollara til
ýmissa chileanskra samtaka,
sem vilja koma í veg fyrir að
Pinochet forseti fái fyrirhug-
aða útnefningu til forsetaem-
bættisins, sem hann sölsaði
undir sig með illræmdri stjórn-
arbyltingu með aðstoð Banda-
ríkjanna á sínum tíma.
O Símaþjónusta Gulu bókarinnar 62 42 42 O