Þjóðlíf - 01.07.1988, Side 63
SAMSKIPTI
Sigur fyrir íslendinga
Óhætt er að fullyrða að heimsókn Vigdísar
Finnbogadóttur, forseta íslands hingað til
Vestur-Þýskalands hafi vakið verulega at-
hygli. Viðtöl voru við forsetann í ýmsum af
mestu blöðum landsins og í sjónvarpi var
þáttur um Vigdísi Finnbogadóttur á vinsæl-
um útsendingartíma, klukkan sex á sunnu-
dagskvöldi.
Hið þekkta vikublað, Die Zeit, sem er
undir ritstjórn Helmuts Schmidt, fyrrum
kanslara Vestur-Þýskalands, reið á vaðið og
birti viðtal við Vigdísi Finnbogadóttur, 17.
júní síðastliðinn. Die Zeit hefur á sér orð
fyrir að vera ábyrgt, menningarlegt blað,
sem fylgir jafnaðarmönnum að málum. Við-
talið var birt á annarri síðu blaðsins, and-
spænis ritstjórnargrein Helmuts Schmidts,
og verður það að teljast mikill heiður fyrir
forseta íslands, að vera ætlaður svo áberandi
staður í jafn virtu blaði.
„Maður verður hræðilega
íhaldssamur"
Skrif Die Zeit einkennast af mikilli virðingu
fyrir forseta íslands, Vigdísi Finnbogadótt-
ur. í inngangi að viðtalinu er hún sögð besti
sendiherra sem ísland gæti hugsað sér, gáfuð
kona og glæsileg og sérlega sannfærandi full-
trúi þjóðar sinnar á alþjóðavettvangi. Farið
er nokkrum orðum um kjör Vigdísar 1980 og
þá athygli, sem það vakti á sínum tíma, og
minnst á kosningarnar 25. júní og væntanleg-
an yfirburðasigur forsetans í þeim.
Síðan er farið nokkrum orðum um róttæk-
ar stjórnmálaskoðanir forsetans áður en hún
tók við embætti, sérstaklega andstöðu henn-
ar við hernaðarumsvif Bandaríkjamanna á
Islandi. Tekið er fram, að það tíðkist ekki að
forseti íslands láti opinberlega í ljós stjórn-
málaskoðanir. Samt er Vigdís Finnbogadótt-
ir spurð að því hvort skoðanir hennar hafi
breyst, eftir að hún varð forseti. Forsetinn
svarar, að áður hafi hún ef til vill látið stjórn-
ast meira af tilfinningum, núna sjái hún hins-
vegar hlutina úr meiri fjarlægð. Die Zeit
skrifar:
,,„Er þetta ekki ágætissvar?“ segir hún
með sjálfhæðni í röddinni og bætir við: „Ég
er orðin átta árum eldri, átta árum þrosk-
aðri.“ Og hún bætir við, að það að eldast, sé í
rauninni ágætt, og bendir á fyrsta gráa hárið
á ljósum kollinum: „Maður verður hræðilega
íhaldssamur.““
Die Zeit leyfir sér að draga í efa, að forseti
íslands sé orðinn „hræðilega íhaldssamur“,
en minnir á, að þar sem henni sé í raun
óheimilt að láta í ljós stjórnmálaskoðanir op-
inberlega, þá hafi hún einbeitt sér að málefn-
um íslenskrar menningar, sérstaklega má-
lefnum íslenskrar tungu:
„I heimi fjölmiðlanna er mikilvægt að
halda tungumáli okkar lifandi, eina sígilda
tungumáli í Evrópu, sem ennþá er talað.
Styrkur okkar liggur í þessu tungumáli. Ef
við glötum tungu okkar, þá glötum við sjálf-
um okkur, glötum við fortíð okkar.“
Fréttir af sigri Vigdísar
á forsíðu
Yfirburðasigur Vigdísar Finnbogadóttur í
kosningunum 25. júní vakti nokkra athygli í
þýskum fjölmiðlum. Nákvæmar tölur um
sigurinn verið alveg eins stór og búist hefði
varpi og í blöðum daginn eftir. Þannig birti
Frankfurter Rundschau, virt blað á vinstri
væng stjórnmálanna, frétt um kosningarnar
á forsíðu og gat þess jafnframt, að ekki hefði
sigurinn verrið alveg eins stór og búist hefði
verið við. Önnur blöð birtu sömuleiðis fréttir
af kosningunum en á minna áberandi stöð-
um.
Þegar líða tók að heimsókn forsetans tóku
síðan fyrir alvöru að birtast frásagnir af
henni í fjölmiðlum. í nýjum sjónvarpsþætti
klukkan 18 á sunnudögum, Mona Lisa að
nafni, var viðtal við forsetann. Þessi þáttur
er sérstaklega ætlaður konum og nýtur vin-
sælda, enda nýr af nálinni og ferskur. í þess-
um þætti þótti forseti íslands koma sérlega
vel fyrir.
Daginn eftir, mánudaginn 4. júlí, hitti for-
setinn Richard von Weizsácker, forseta Vest-
ur-Þýskalands í Bonn, og voru sýndar mynd-
ir frá þeim fundi í öllum fréttatímum sjón-
varps.
Heilsíðuviðtal í Die Welt
Mánudaginn 4. júlí var einnig mikið viðtal
við Vigdísi Finnbogadóttur í Die Welt,
borgaralegu blaði, sem Springer-forlagið
svokallaða gefur út. Mynd af Vigdísi á for-
síðu blaðsins og heil síða lögð undir viðtalið,
sem er hluti af röð viðtala, sem Die Welt
birtir við frægt fólk. Næstu menn í viðtali á
undan Vigdísi Finnbogadóttur voru kvik-
myndastjórinn Wim Wenders, rithöfundur-
inn Alberto Moravia og Rajiv Gandhi, for-
sætisráðherra Indlands.
í viðtalinu við Die Welt, berst talið víða en
þó aðallega að tungu og menningu Islend-
inga:
„Welt: Ungt fólk á íslandi er frjálslynt eins
og annars staðar í Evrópu.
Vigdís: Já, það er opið, það er stolt yfir
Heimsókn Vigdísar
Finnbogadóttur
vakti mikla athygli í
vestur-þýskum
fjölmiðlum
Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands
gerði góða reisu meðal þýskra.
59