Þjóðlíf - 01.07.1988, Síða 66
BARNALÍF
Snælda
Snælda, Snælda. Þaö var Jói sem kallaði á
kisuna sína. Mjá, mjá, heyrðist á móti.
Snælda var reið. Alltaf þurfti Jói að trufla
hana þegar hún var rétt aö ná sér í eitthvað
að éta. Eins gott að hann komi með eitthvað
gott í staðinn.
Jæja Snælda mín, hérna kemur maturinn
þinn. Snælda leit ofan í dallinn sinn. Hrossa-
kjöt. Ojjbarasta. Ætlast hann til þess að
maður éti þetta!!! Jæja maður verður þá að
veiða sér eitthvað. Snælda labbaði rólega út
og mjálmaði ámátlega.
Þegar hún kom út sá hún mús sem stóð
rétt hjá hlöðunni. Snælda læddist fyrst
svona 3 metra. Þá átti hún aðeins nokkra
sentimetra eftir að músinni. En allt í einu
sneri músin sér við og sá Snældu. Snælda
var ekki sein á sér að stökkva. En músin
hafði áttað sig. Hún stökk af stað og Snælda
á eftir. Músin hentist ofan í stærðar holu. En
Snælda var á svo miklum hraða að þegar
hún sá músina fara ofan í holuna stakk hún
hausnum ofan í holuna og festist.
Nú var illa komið fyrir henni, hún mjálmaði
og mjálmaði. Allt í einu fann hún aö einhver
var að gogga í hana. Það var fugl. Það sauð í
Snældu reiðin.
Allt í einu heyrði hún kunnuglega rödd.
Það var Jói. Snælda mín, hvað ertu að gera?
Snælda fann að hún var losuð. Mjá, mjá.
Hún var svo ánægð. Hún stökk inn og át allt
hrossakjötið. Það var bara alveg ágætt. Hún
ætlaði aldrei að elta mýs aftur.
Aðalbjörg Birna Guttormsdóttir, 10 ára
Fögruhlíð, Jökulsárhlíð Egilsstaðir
Panda
Einu sinni þekkti ég kött sem heitir Panda.
Það er besti köttur sem til er. Hann var það
góður að ef maður ætlaði að láta hann á
gólfið þá stökk hann aftur upp í fangið á
manni.
Elín Sumarrós Davíðsdóttir, 12 ára
Grænás II B,
260 Njarðvík
Halló krakkar!
Sendið okkur brandara, sögur eða teikning-
ar. Heimilisfangið er Barnalíf, Þjóðlífi póst-
hólf 1752, Vesturgötu 10,121 Reykjavík.
Þetta er Lukka kötturinn minn. Á kvöldin þá
vill Lukka bara mjólk en á morgnana vill hún
vatn.
Ásthildur Erlings, 6 ára
Bólstaðarhlíð 3
Reykjavík
Kisuvísa
Feldurinn er gljáandi og svartur
og á hálsinum er blettur hvítur og bjartur.
Hann er liðugur og fettir sig og brettir
já, liðugir eru allir kettir.
Brynhildur Ómarsdóttir, 9 ára
Laugarnesvegi 94
105 Reykjavík
62