Þjóðlíf - 01.07.1988, Síða 77
BÍLAR
Fyrstu ökutækin á
Hafnarfjarðarveginum
„BeljarT, bfll af gerðinni Panhard-Levassor sem notaður var til fólksflutninga milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur sumrin 1914 og 1915.
Myndin er tekin í Hafnarfirði sumarið 1915 og við stýrið er Stefán Jóhannsson sem lærði á bfl dagpart og fór síðan umsvifalaust að aka
farþegum milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Ekki er ljóst um árgerð bflsins en eftir útlitinu að dæma er hann smíðaður á árunum kringum
1910.
Bflnum er lýst svo í bók Guðlaugs Jónssonar, Bifreiðir á íslandi: „Var hann svartur að lit, lokaður (drossía) með hurðir á hliðunum.
Setbekkir voru við veggina aftast og fremst í farþegabyrginu og sneru hvor gegn öðrum. Vagnstjórasætið var fyrir framan farþegarúmið, opið
að öðru leyti en því að þakröndin á farþegabyrginu skýldi því að ofan og tjöldum mátti slá upp til hliðanna. Eitt sæti var við hlið ökumanns.
Afturhluti farþegabyrgisins var þakinn með tjaldi, og mátti taka það frá er henta þótti. Hefur það að líkindum verið þannig útbúið til þess að
farþegar gætu notið betra lofts og útsýnis.“
Ljósm.: Sæmundur Guðmundsson. Mynd úr Ljósmyndasafni íslands.
Á SVOKÖLLUÐU HERFORINGJA-
RÁÐSKORTI AF REYKJAVÍK frá árinu
1903 byrjar Hafnarfjarðarvegurinn þar sem
Skólavörðustígur endar nú, þ.e.a.s. efst á
Skólavörðuholtinu. Ef við hugsum okkur, út
frá því hvernig nú er umhorfs, hvar vegurinn
hefur legið þaðan, þá er það eitthvað á þessa
leið: Frá Leifsstyttunni um gatnamót Bar-
ónsstígs og Eiríksgötu, gegnum hús Geð-
' deilda Landsspítalans og yfir á Miklatorg.
Þaðan fylgdi Hafnarfjarðarvegurinn síðan
nokkurn veginn þeim vegi sem ekinn var frá
73