Þjóðlíf - 01.07.1988, Blaðsíða 79
BÍLAR
öllu heldur vegna þess hve seint hafi gengið
að komast áfram fyrir „fjórhjóluðu skriðdýr-
unum.“ En hraðinn fyrir rúmum 80 árum var
í rauninni næsta ótrúlegur, ef marka má aug-
lýsingu Þorkels P. Clementz; sé reiknað með
11 km vegalengd hefur meðalhraðinn verið
um 35 km/klst. Og það á grýttri og krókóttri
hestvagnabraut. En kannski Þorkell hafi
notað sumarnóttina þegar hann reyndi grip-
inn, eins og bifhjólamenn gera víst enn.
BOOKLESS-BRÆÐUR voru skoskir út-
gerðarmenn í Hafnarfirði á árum áður og
höfðu mikil umsvif. Vorið 1913 fluttu þeir
hingað til lands lítinn tveggja manna fólksbfl.
Mun hann hafa verið af Austin-gerð og var
þriðji bfllinn hérlendis. Bflinn höfðu þeir til
eigin nota þá um sumarið og hið næsta, m.a.
til að skreppa til Reykjavíkur. Ennfremur er
vitað að bflnum var ekið suður á Stapa,
þ.e.a.s. langleiðina til Keflavíkur.
Bookless-bræður óku bílnum sjálfir og
sennilega einnig Ólafur V. Davíðsson, félagi
þeirra og framkvæmdastjóri.
Þótt þessi bíll væri ekki notaður til al-
mennra flutninga og væri hér í höndum er-
lendra manna, var gildi hans engu að síður
ótvírætt. Bíllinn reyndist nefnilega vel, öfugt
við tvo þá fyrri, enda lítill og léttur og að því
leyti hentugur við þáverandi aðstæður.
Hann jók því tiltrú manna á að bifreiðar gætu
komið hér að gagni, en um það var mjög
efast að fenginni nokkurri reynslu. Til marks
um það segir svo í blaði einu í maí 1913:
„Bifreiðin rennur mjúkt og liðlega um veg-
inn og lætur vel að stjórn. Er það fyrsta bif-
reiðin sem að gagni hefur komið hér á
landi.“
Þá eru um það heimildir að Árni Sigurðs-
son, trésmiður í Hafnarfirði, hlaut þann
frama að vera með öðrum Bookless-bræðra í
bflnum stundarkorn í þrjú skipti og fylgjast
með handtökum hans við aksturinn. Til-
sögnin var hins vegar engin því hvorugur
skildi hinn. Þetta mun hafa verið eina öku-
kennslan sem Árni hlaut áður en hann gerð-
ist síðar bflstjóri á leigubifreið til fólksflutn-
inga.
Þess má geta að áður en Bookless-bræður
keyptu hingað Austin-bflinn fluttu þeir inn
Velheppnuð sumarferð
á hjólbörðum
frá okkur!
HJÓLBARÐAVERKSTÆÐIÐ
Gúmmíkarlamir
Borgartúni 36 Sími 688220
Kjötbúðingurinn fæst í tveimur
dósastærðum, áætlað fyrir fjóra
til fimm og tvo til þrjá. Þægilegar
dósir með áföstum upptakara.
Pönnubrúnaðar eða grillaðar
kjötbúðingssneiðar eru alltaf
vinsælar með kartöflum og
soðnu grænmeti eða hrásalati.
Einnig má hka kjötbúðinginn í
heilu lagi í ofni, eða skera hann
í bita og nota í ýmsa blandaða
pönnurétti og eggjaköku.
Staðgóður matur
með stuttuni
fyrirvara
Dósastærðir
Heildós: 600 g
Hálfdós: 340 g
Kindakjöt í hlaupi er ætlað til
neyslu kalt en ekki upphitað.
Best er að kæla dósina vel áður
en hún er opnuð og innihaldið
sneitt niður. Þá helst hlaupið
stinnt. Handhæg dós með áföst-
um upptakara.
Ein dós nægir tveimur til þremur
sem aðalréttur með kartöflu-
stöppu eða kartöflujafningi
ásamtgrænmeti.
Grófhakkaða kindakjötið er líka
ágætt með brauði o.fl., sem hluti
af kvöldmat eða snarli.
Gróflega gott
DósastærS
340 g