Þjóðlíf - 01.07.1988, Page 80
BÍLAR
og notuðu um hríð motorhjól með hliðar-
körfu, höfðu það meðal annars til skottúra til
Reykjavíkur.
I kjölfar Bookless-bflsins kom Ford T,
splúnkunýr bfll sem hingað var fluttur sum-
arið 1913 á vegum nokkurra Vestur-íslend-
inga og markar upphafið að samfelldri bif-
reiðanotkun hérlendis. Sú saga er velþekkt
og verður ekki rakin hér, en þar fór þriðji
bfllinn sem ók til Hafnarfjarðar.
„ BELJAN“ OG „TUDDINN“ voru hins
vegar bflar sem færri vita deili á nú. Þeir voru
notaðir til fastra, daglegra ferða milli Hafn-
arfjarðar og Reykjavíkur sumrin 1914 og
1915, fluttu aðallega fólk og eru í rauninni
fyrstu Hafnarfjarðarstrætóarnir. Bílarnir
voru fluttir inn notaðir, að því er best er
vitað, og komu hingað að einhverju leyti á
vegum Bookless-bræðra og fyrir frumkvæði
Ólafs V. Davíðssonar, framkvæmdastjóra
þeirra. „
Beljan" og „Tuddinn" eru sögulegir fyrir
sakir hlutverks síns í samgöngusögunni og
eins vegna þess að þar fóru óvenjulegar glæs-
ikerrur. Annarþeirra, „Tuddinn", er vafalít-
ið glæsilegasti og vandaðasti bfll landsins í
upphafi bflaldar. Jafnvel er álitamál hvort
öllu merkilegri bfll hefur runnið hér um göt-
ur. Víkjum nánar að því á eftir.
Annar þeirra var Árni Sigurðsson, sá sem
lærði á bfl með því að sitja í hjá Bookless og
fylgjast með handtökunum. Hinn var Stefán
Jóhannsson, ungur maður sem hafði meðal
annars fengist við gæslu ljósavéla.
Svo enn sé sögð saga af því hvað allt sem
laut að bílum á þessum árum var kátlega
frumstætt, skal borið niður í frásögn Guð-
laugs heitins Jónssonar, en eftir hann liggur
stórmerkt tveggja binda ritverk um upphaf
bflaaldar hér á landi, Bifreiðir á íslandi I og
II. Þar segir svo:
ekkert lært í bifreiðastjórn og undirbúning-
urinn sem hann fékk var sá einn að Ólafur
Davíðsson ók með hann í bifreið frá Hafnar-
firði suður í Straum, á að giska 6 km leið, og
sýndi honum það helsta sem bflstjóri þurfti
að bera skyn á til þess að geta ræst vél bifr-
eiðar, ekið áfram og numið staðar.
Stefán hefur eflaust sýnt gott næmi sitt á
þessa hluti, sem marka má af því að í Straumi
settist hann undir stýri bifreiðarinnar og ók
tilbaka í Hafnarfjörð án allra óhappa og jafn-
harðan var hann sendur í farþegaferð til
Reykjavíkur. Kveðst hann ekki hafa verið
haldinn neinum ótta við að aka, þrátt fyrir
sína sáralitlu ökureynslu, en hægt fór hann.
TVEIR MENN KOMU EINKUM VIÐ
SÖGU sem bifreiðastjórar þessara bfla.
„ . . . var Stefán ráðinn sem bflstjóri í áætl-
unarferðirnar til Reykjavíkur. Þá hafði hann
BOLTIN
BUGÐUSÍÐ^I
SÍMI (96)/26888
SIGURÐUR ODDSSON tæknifræðingur
GUÐMUNDUR SVAFARSSON verkfræðingur
Vegagerð útheimtir orku.
Að Bjargi er sannkallaður orkubanki.
„Opið daglega frá 8:00-23:00“
ENDURHÆFINGAR- OG LÍKAIVISRÆKTARSTÖÐIN