Þjóðlíf - 01.10.1988, Síða 18
INNLENT
Synjað um aðgang að
opinberum skjölum
Hrafn og Illugi Jökulssynir, höfundar bókar um íslenska nasista fá
ekki aðgang að skjölum utanríkisráðuneytis um íslenska strfðs-
glcepamenn. — Hafa fengið hótun um lögbann!
Hrafn og Illugi Jökullssynir eru um þessar
mundir að leggja síðustu hönd á bók, sem
koma á út nú í haust. Þar er sagt frá íslensk-
um nasistum, hérlendis og erlendis, bæði ís-
iensku þjóðernishreyfingunni á fjórða ára-
tugnum, og hins vegar nokkrum Islending-
um, sem voru í þjónustu nasista á
styrjaldarárunum, einkum í Noregi og Dan-
mörku. Þegar hefur höfundum bókarinnar
verið hótað lögbanni vegna útkomu hennar
og að auki hefur þeim verið synjað um að-
gang að opinberum skjölum, varðandi ís-
iendinga, sem dæmdir voru vegna stríðs-
glæpa og samvinnu við nasista.
„Við fórum fram á að fá aðgang að skjöl-
um í vörslu Utanríkisráðuneytisins vegna
nokkurra íslendinga, sem voru í þjónustu
Þjóðverja á þessum árum. Full þörf er á því
að draga þessi skjöl fram í dagsljósið svo
unnt sé að segja söguna til hlítar. Við vitum
ekki nákvæmlega hvað stendur í skjölunum,
en höfum þó vissu fyrir því, að þetta eru
bréfa- og skeytasendingar milli ríkisstjórnar-
innar, utanríkisráðuneytisins og sendiráða
Islands erlendis. Eitthvað er einnig um bréf
til manna hér heima.
Þegar við snerum okkur til utanríkisráðu-
neytisins og töluðum við þá Helga Ágústsson
skrifstofustjóra og Hannes Hafstein ráðu-
neytisstjóra, þá fengum við þau svör að
skjöl, sem „vörðuðu pesónulega ógæfu ein-
staklinga yrðu ekki látin út úr ráðuneytinu
um alla eilífð“, eins og Hannes sagði orðrétt.
Nú er það hins vegar svo, að þessi skjöl
varða ekki bara persónulega ógæfu einstak-
linga. Þau varða verk vissra manna í útlönd-
um, sem voru svo víðtæk, að ekki er hægt að
tala um persónulega ógæfu. Þessi röksemd
er helber fyrirsláttur.
Svo nánar sé greint frá þessum skjölum, þá
voru í stríðslok, nokkrir íslendingar settir í
varðhald í Danmörku og Noregi. íslensk
stjórnvöld beittu sér af miklum þunga í því
að fá þessa menn lausa. Gilti þar einu hvar
mennirnir voru sakaðir um. Raunar fékk
einn mannanna dóm í Noregi. Tuttugu ára
þrælkunarvist. Stjórnvöld virðast hafa lagt
mikla áherslu á að fá hann lausan, því nokkr-
um mánuðum eftir að dómurinn var kveðinn
upp kom hann til íslands.
Við vitum ekki nákvæmlega hvaða stjórn-
málamenn þessa tíma tengdust málinu. Hins
vegar er ljóst að málið kom inn á borð ríkis-
stjórnarinnar, og fóru í gegnum utanríkis-
ráðuneytið. Þau snerta topppólítíkusa þessa
tíma. Og það er líklega fyrst og fremst sú
staðreynd, sem starfsmenn utanríkisráðu-
neytisins eru núna að horfa í. Yfir hverjum,
sem þeir eru að halda hlífiskildi vitum hins
vegar við ekki.
Þess má geta, að árið 1949 höfðaði þessi
tiltekni einstaklingur mál á hendur þáver-
andi ritstjóra Þjóðviljans vegna ummæla um
PIPULAGNIR
GERUM TILBOÐ I NÝLAGNIR
EFNI OG VINNU
STÆRRI SEM SMÆRRI VERK
HEILDSALA - SMASALA
JÁRNRÖR OG FITTINGS
KOPARARÖR OG FITTINGS
PLASTRÖR OG FITTINGS
POTTRÖR OG FITTINGS - SUÐUFITTINGS
SPRINKLER (ELDVARNARKERFI)
OG FLEST ANNAÐ TIL PÍPULAGNA
TOMAS ENOK THOMSEN
PÍPULAGNINGAMEISTARI
VATNSTÆKI
Hl
BYGGINGAVÖRUR
Hyrjarhöfða 4-112 Reykjavík
Sími673067