Þjóðlíf - 01.11.1988, Qupperneq 19

Þjóðlíf - 01.11.1988, Qupperneq 19
VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL Gjaldþrotin Harkalegur samdráttur í íslenska efnahagslífinu Einstaklingar og fyrirtæki lenda í greiðsluerfiðleikum og verða gjaldþrota eins og á færibandi; útgerðarmenn, kaupmenn og kaupfélög, iðnfyrirtæki og verslunarfyrirtæki. Heilu atvinnugreinarnar stynja undan greiðslubyrði og samdrætti sem gæti orðið þeim að fjörtjóni. Sjóðir og sveitarfélög riða til falls. Keðjuverkanir vegna gjaldþrota byrjaðar. Heill og hamingja einstaklinga og fjölskyldna í hættu. Heilbrigðisyfirvöld í viðbragðsstöðu vegna kreppunar. 2% atvinnuleysi í desember. Á þessum nótum hljóma lýsingar þeirra bölsýnustu á íslenska þjóðfélaginu árið 1988 í dag! Flestir viðmælenda Þjóðlífs voru á eitt sáttir um að núverandi ástand ætti sér rætur í fortíðinni. Til sögunnar var nefnd atvinnu- háttabylting við sjávarsíðuna, offjárfestingar fyrirtækja, óhagkvæmt og tillitslaust banka- kerfi, kolvitlaus peningastefna stjórnvalda með okurvöxtum, óðaverðbólga og þar fram eftir götum. „Það hlaut að koma að þessu“, segja menn. Viðmælendur Þjóðlífs voru hins vegar alls ekki sammála um hversu langt þró- unin væri á veg komin. Sumir töldu sam- drættinum lokið að mestu, aðrir kváðu landsmenn aðeins hafa séð toppinn á ísja- kanum, hann ætti eftir að koma betur í ljós í vetur. Svipað var uppi á teningnum varðandi keðjuverkun gjaldþrota, viðmælendur töldu sumir hverjir að keðjuverkunin yrði tak- mörkuð, aðrir að hún ætti eftir að koma fram af fullum þunga í vetur. Um eitt voru menn sammála; ástandið er mjög alvarlegt, alvar- legra en áður í sögu lýðveldisins, nema ef vera kynni að samdrátturinn í kringum 1967 verði tekinn til samanburðar. Milljarðar í vanskilum —horfnir? Að undanförnu hafa fréttir um áhrif gjald- þrota ýmissa fyrirtækja vakið óhug meðal almennings. Margir telja að fram að þessu hafi verið um of einblínt á fyrirtækin sem verða gjaldþrota en vandamálið liggi ekki síður hjá þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem tapa fé sínu og viðskiptum með gjald- þrotum viðkomandi. Þannig þarf iðnaðurinn að taka á sig yfir 200 milljónir vegna gjald- þrota annarra eins og fram kemur í viðtali við Ólaf Davíðsson í Þjóðlífi, heildsalar sjá heilan milljarð í sjónmáli, eins og Árni Reyn- isson forstjóri Félags íslenskra stórkaup- manna segir, bændur og afurðastöðvar eru með yfir 200 milljónir í hættu vegna gjald- þrota verslana og veitingastaða. Og þannig mætti lengi telja. En þetta er einungis brot af vandræðum íslenska atvinnulífsins, því vanskil hafa færst mjög í vöxt og þarf ekki að koma gjaldþrot til. Fólk í ábyrgðum er í stórhættu. Reikna má með að margir milljarðar séu glataðir eigendum sínum á síðustu mánuðum. Snaggaraleg viðbrögð Margir telja það óréttmæta gagnrýni að atvinnulífið hafi ekki brugðist rétt við breyt- ingum í efnahagslífinu síðustu ár. Þá er nefnt til sannindamerkis, að fjölmörg fyrirtæki hafi lagt niður starfsemi sína án þess að verða lýst gjaldþrota, önnur hafi sameinast og reynt þannig að styrkja stöðu sína. Kostnað- ur við reksturinn er tekinn til meðferðar, og reynt að spara á öllum sviðum. Atvinnulífið hefur einnig brugðist við með skuldbreyting- um, lengingu lána, breytingu lána í hlutafé og þar fram eftir götum. Þannig má segja að fyrirtæki hafi brugðist við á skjótan og ábyrg- an hátt. Margir hafa orð á því, að gjaldþrotin séu ekki annað en„ heilbrigð hreingerning", en hversu mörg og margvísleg mega þau verða áður en þau megi kalla veikleikamerki í ís- lenska efnahagslífinu? Og hversu mörg gjaldþrot einstaklinga og fyrirtækja þolir ís- lenska efnahagslífið? Getur atvinnuleysi nokkurn tíma verið „heilbrigt"? Flestir eru þeirra skoðunar að nú þurfi ríkisvaldið að grípa í taumana og aðstoða við að koma hjólum atvinnulífsins af stað á nýjan leik. Reikna má með að verkalýðshreyfing setji einnig ofurþunga á að koma í veg fyrir at- vinnuleysi, sem margir telja fyrirsjáanlegt í vetur. Þá hefur atvinnulífið verið sakað mjög um að halda áfram offjárfestingum, en erfitt mun að finna slíkum ásökunum stað. Þannig mun hafa verið fjárfest í þjóðfélaginu fyrir 17% af landsframleiðslu á þessu ári, en það mun vera lægsta hlutfall fjárfestingar síðan árið 1945. Þrátt fyrir umfangsmikil flugvé- lakaup Flugleiða á næsta ári munu fjárfest- ingar á því ári halda áfram að dragast saman. 19
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.