Þjóðlíf - 01.11.1988, Qupperneq 38
VIÐSKIPTI
Ódýrari
olía
Verðstríð hjá samtökum olíuframleiðslu-
ríkja, Opec, síðustu vikur hefur leitt til mik-
illar lækkunar á olíu og sjá menn vart fyrir
endann á verðlækkunum.
Eins og kunnugt er geta ýmsar fréttir orðið
til þess að hækka eða lækka heimsmarkaðs-
verð á olíu á sama degi; slys á oh'uborpalli,
hvirfilbylur á olíuvinnslusvæði geta orðið til
að hækka verðið, — nýjar olíulindir og
ágrciningur meðal Opec ríkja geta leitt til
lækkunar. Og hvað eftir annað hefur einmitt
ágreiningur innan Opec leitt til verðlækkun-
ar nú síðustu vikur. Verðið hefur hríðfallið
og að mati Surbroto aðalritara Opec gæti
tunnan farið niður í 5 dollara með sama
áframhaldi. 7. október var verðið á Brent
olíu úr Norðursjónum komið niður í 11 doll-
ara og 50, en það þykir sérstök gæðaolía í
háum verðflokki, en tunnan úr olíuvinnslu á
Persaflóasvæðinu var þá komin niður fyrir 10
dollara.
Að þessu sinni átti Saudi Arabía opinber-
lega þátt í verðfallinu með svohljóðandi yfir-
lýsingu: „ Konungsríkið mun ekki þola það
lengur að einstaka Opec-ríki auki olíuhlut
sinn á kostnað konungsríkisins Saudi-Ara-
bíu og það mun ekki hefta framleiðslu sína
meðan önnur ríki auka hana“. Þar með var
ljóst að mikið offramboð yrði á olíu á næst-
unni. í kjölfarið var gert kunnugt að Exxon
olíuhringurinn bandaríski hefði keypt gífur-
legt rnagn, langt umfram þá kvóta sem verið
hafa við lýði meðal Opec-ríkjanna. Næsta
dag hótaði Arne Öin orkumálaráðherra Nor-
egs aukinni framleiðslu á olíu ef Opec-ríkin
drægju ekki framleiðslu sína saman til fyrra
horfs. Noregur er að vísu ekki meðal Opec
ríkja en hafði samið við þau um samrátt á
olíuframleiðslu, sem nemur um 7.5% af
framleiðslugetu. En þessi þróun varð ekki
stöðvuð og á næstu dögum hrundi olíuverð-
ið.
Fyrir tveimur áruin varð svipuð þróun og
cftir dramatísk átök fór olíutunnan niður í 8
dollara. 1985 seldu Opec ríkin olíu fyrir 135
milljarða dollara, en á árinu 1986 fyrir ein-
ungis 75 milljarða dollara. Þá var gengið til
víðtækra samninga og uppstokkunar með
kvóturn á hin ýmsu olíuframleiðsluríki.
Tunnan fór upp í 18 dollara og haldið var að
lærdómurinn frá 1986 entist lengi enn. Eftir
tiltölulega rólegt ár, 1987, fór allt úr böndun-
um á þessu ári. Hvað eftir annað hefur kom-
ið í ljós hversu brotagjörn samstaða olíuríkj-
anna er.
írak, sem hafði ekki vegna stríðsins við
íran verið' í böndum Opecs, jók stöðugt
framleiðslu sína og seldi grimmt olíu á
Verfallið á olíu
Verð á olíu 1988 í dollurum á tunnu.
Dæmi Bent-olía verð í miðjum mánuði
Jan. Feb. Marz Apr. Mai Juni Juli Aug. Sept. 7.0kt.
Olíuvinnsla í Saudi-Arabíu.
heimsmarkaði. Furstadæmið Abu Dhabi
lýsti því yfir í sumar að það krefðist stærri
kvóta og setti á markað það magn olíu sem
því sjálfu þóknaðist. Kuwait og fleiri stærri
Opec-ríki fylgdu í kjölfarið þó þau gerðu það
ekki með jafn opinskáum hætti og þau sem
fyrr eru nefnd. Samstaðan var sem sagt kom-
in úr öllu lagi, og um síðir var Saudi-Arabía
eitt Opec-ríka um að halda sig við kvótann.
Og þá kom að áðurnefndri yfirlýsingu. Kvóti
Saudi-Araba var 4.3 milljónir tunna á dag en
um þessar mundir eru þeir að dæla um 6
milljónum tunna á dag upp úr eyðimörkinni.
íslendingar hagnast að sjálfsögðu á því
verðfalli sem orðið hefur á olíu á heimsmark-
aði, en deildar meiningar eru um það hvort
lækkunin skili sér að fullu hérlendis.
Spiegel/-óg
38