Þjóðlíf - 01.11.1988, Side 47
ERLENT
Benazir Bhutto lék á fjandmenn sína við fæðingu barnsins, en hvers er hún megnug
eftir kosningar?
sagðist telja að dauði U1 Haks leiddi til þess
að mannréttindi í Pakistan yrðu fyrr viður-
kennd en ella.
PPP leggur megináhersluna í þessum
kosningum á að styrkja þurfi lýðræði og lög-
ræði í landinu, auk þess sem tryggja þurfi
sum grundvallar mannréttindi. Baktiarlagði
mikla áherslu á það í þessu sambandi að
stjórnarskrá sem Ali Bhutto setti í gildi 1972
og U1 Hak afnam 1977, yrði aftur tekin í
gildi. Andstæðingar PPP hafa leyft sér að
draga í efa lýðræðisást flokksins og hafa bent
á að rnikil spilling hafi verið í Pakistan á
valdatíma Ali Bhuttos. Auk þess benda þeir
á að flokkurinn hafi aldrei kosið leiðtoga, —
að Bhutto-feðginin hafi aldrei verið kjörin til
forystu af flokksmönnum. Baktiar, sem er
án efa mikill lýðræðissinni, sagði að lýðræðið
hefði aukist innan flokksins, einkum í grunn-
einingum hans. Hann sagði að svæðisbundn-
ar flokkstjórnir og flokksþingið væri lýðræð-
islega kjörið en hins vegar hefði enn ekki
skapast tækifæri til þess að koma á fullu lýð-
ræði í efstu lögum flokksins.
Önnur mál sem setja hvað mestan svip á
þessar kosningar tenpjast tveimur af ná-
grönnum Pakistana. I fyrsta lagi eru það
nágrannarnir í norðri, Afghanir. Zia U1 Hak
tókst með all undarlegum hætti að styðja
bæði Mushahadin samtökin í Afghanistan,
eiga góð samskipti við Bandaríkjastjórn og
styggja ekki yfirvöld í Afghanistan eða
verndara þeirra í Moskvu. Að sögn Baktiar
þá styður PPP Mushahadin samtökin einarð-
lega og hann sagði að pakistanska þjóðin
hyllti afghanska frelsishermenn og að ekki
kæmi til greina að flokkurinn viðurkenndi
núverandi stjórnvöld í Afghanistan. Baktiar
dró í efa að sendingar frá Bandaríkjunum til
afghönsku þjóðfrelsishreyfingarinnar ættu
eins auðvelda leið í gegnum Pakistan og í tíð
Zia, kæmist PPP til valda. Hann taldi þó að
Pakistanar myndu áfram þiggja efnahags-og
þróunaraðstoð frá Bandaríkjamönnum.
Hann sagði að vandamál Pakistans væru
næganlega mörg og því þyrftu Pakistanar að
hugsa fyrst um sjálfa sig.
Nágrannar Pakistana í vestri eru íranir.
Paðan hafa borist raddir hinnar íslömsku
byltingar. Á síðustu misserum bar svolítið á
því að Zia U1 Hak styddi sífellt meira stranga
og bókstaflega túlkun Kóransins og var hann
því að sumu leyti farinn að aðhyllast eitt og
annað sem talist hefur viðtekið hjá nágrönn-
unurn í vestri.
Sumir sögðu reyndar að með kreddutúlk-
un Kóransins að vopni gæti hann haldið aftur
af konum og þar með erfiðað höfuðandstæð-
ingi sínum, Benazir Bhutto störf á vettvangi
stjórnmála. Múhameðstrúin á djúpar rætur í
þjóðarvitund Pakistana. Ríkið varð til vegna
þess að múhameðstrúarmenn, sem voru í
meirihluta í þessum héruðum hálfheimsálf-
unnar sem nýlenduherrarnir, Bretar, köll-
uðu Indland, óttuðust afleiðingar þess að
verða minnihluti í ríki búddatrúarmanna.
Samkvæmt stjórnarskrá þeirri sem Ali Bhut-
to lét lögleiða þá var Pakistan íslamskt lýð-
veldi og því hafa stuðningsmenn PPP bent á
að sporgöngumenn Zia U1 Hak geti nú ekki
gert neitt frekara tilkall til múhameðstrúa-
innar en þeir. Þetta þýðir sem sé það að fyrir
utan að greina á um allt sem heitið getur
veraldleg pólitík þá deila stuðningsmenn U1
Haks og Bhuttos einnig um túlkun Kórans-
ins. Slíkt hefur hingað til ekki auðveldað
hlutina í þessum hluta heims.
Stjórnmál í Pakistan eru margslungin og
sagan hefur sýnt að þar eru ekki einungis
embætti og völd í veði heldur einnig manns-
líf. Erfitt er að spá um úrslit kosninganna
þann 16. nóvember. Ljóst er að ef þær fá að
fara fram án beinna afskipta hers og úrslitin
endurspegli vilja fólksins þá er það fyrst og
fremst áfangasigur fyrir lýðræðisöflin í land-
inu. Sumir telja þetta full mikla bjartsýni.
Ásgeir Friðgeirsson.
„Estragon: Förum.
Vladimir: Við
getum það ekki.
Estragon: Því þá
ekki?
Vladimir: Við
erum að bíða eftir
Godot.“
Sögur, leikrit, ljóð eftir
Samuel Beckett. Þýðing
og umsjón. Arni Ibsen
308 bls. Verð kr. 2.390.-
Samuel Beckett er í hópi merkustu rithöfunda
þessarar aldar og hefur ef til vill öörum fremur
stuölaö að róttækum breytingum á skáld-
sagnagerö og leikritun eftir seinni heims-
stvrjöld. Beckett. sem hlaut bókmenntaverðlaun
Nóbels árið 1969. er áleitinn höfundur. einstakur
og frumlegur. en stendur jafnframt nær hinni
klassísku evrópsku bókmenntahefö en flestir
aörir nútímahöfundar.
Hann skilgreinir hlutskipti mannsins á guö-
lausri atómöld. lýsir leitinni aö tilvist og
samastaö í veröld sem er á mörkum lífs og
dauða. þar sem tungumáliö hevr varnarstríö við
þögnina. Þrátt fyrir nær fullkomiö getuleysi.
niöurlægingu og algera örbirgö mannskepnunnar
er henni lýst með miklum húmor og af
ómótstæðilegri Ijóörænni fegurö.
í þessari bók eru sjö leikrit. sex sögur og
fjórtán Ijóð frá fimmtíu ára ferli. þar á meðal
þekktasta verk Becketts. leikritið Beöið eftir
Godot. í nýrri þýðingu. og eitt nýjasta snilldar-
verkið, hin stutta og magnaða skáldsaga
Félagsskapur. frá 1980. Þýðandinn er Árni Ibsen
sem hefur um árabil kannað verk þessa
alvörugefna írska húmorista og hann skrifar
jafnframt inngang og skýringar. Þetta er í fyrsta
skipti sem verk Samuels Beckett eru gefin út i
íslenskri þýöingu.
^vort á fivítu
b________________
47