Þjóðlíf - 01.11.1988, Blaðsíða 55
MENNING
Af lágu leiði
Kafli úr nýrri bók eftir Björn Th.
Björnsson:
Það svæði garðsins sem við höfum nú dvalizt
í um stund er að mestum hluta legstaðir fyrir-
fólks og þjóðskörunga, Jóns forseta, Bergs
landshöfðingja, Péturs biskups, Jóns Magn-
ússonar forsætisráðherra, Steingríms bisk-
ups, Jóns Péturssonar yfirdómara og fleiri
slíkra, sem minnzt er með veglegum vörð-
um. Saga þessara manna er skráð á bækur og
börnum er kennt að þekkja nöfn þeirra og
vegsemd í lífinu. Pví er það sem næst heilsu-
samlegt að staldra við lágt leiði ókunns fólks
og spyrja sjálfan sig: Hver var hann eða hún?
Hver var vegferðin, hvert skaplyndið, hver
stétt og örlög í lífinu? Þegar reikað er um
meðal nafnfrægðarinnar í þessum hluta
garðsins, rekst gesturinn á reit sem er ekki
nema fáa faðma frá varða Jóns forseta og
enn nær steini Bergs landshöfðingja: Um-
hverfis hann hafa verið gildir steinstólpar, en
eru nú brotnir, járnstengurnar milli þeirra
löngu brunnar úr og leturplatan mosagróin.
Pað er auðséð að enginn á hér lengur til neins
skyldleika að telja. Sú var þó tíðin að enginn
Reykvíkingur fór í grafgötur um þær fátæku
en fyrirmannlegu systur sem hér hvíla, ásamt
foreldrum sínum, enda áttu þær ekki svo lítið
fóstur í uppvaxandi borgarstétt bæjarins.
Pað voru þær Thomsen-systur, og reitur
þeirra er merktur S 401.
Systur þessar voru dætur Thomas Henrich
Thomsens faktors (sem var alóskyldur
Thomsenunum í Thomsens-Magasíni) og
Inger Margarethe Thomsen, f. Hansen, svo
sem stendur á leturplötunni, en var þó ís-
lenzk og hét rétt og slétt Margrét Einarsdótt-
ir, dóttir Einars Hannessonar snikkara. Slík
var danska fordildin hér í bæ. Thomas þessi
Thomsen, sem fæddur var árið 1792, kom
ungur hingað til lands og starfaði við Eyrar-
bakkahöndlun, en árið 1820 gerðist hann
faktor við Flensborgarverzlun í Reykjavík
og var jafnan síðan við hana kenndur og
kallaður Flensborgar-Thomsen. Hann kem-
ur sæmilega undir sig fótum, nýtur almenns
trausts og er kosinn í bæjarstjórn. Hann tek-
ur sér bústýru, yngisstúlkuna Margréti Ein-
arsdóttur, og svo sem verða vill um ungar
bústýrur, hækkar hún brátt upp í frúarstétt,
og eru þau Thomsen gefin saman í dómkirkj-
unni þann 25. nóvember 1830, hann 37 ára,
hún 30. Hún er þar kölluð Inger Margrethe
Hannesen, yngisstúlka og jómfrú, en er þar
með orðin Fru Thomsen, födt Hansen.
Þeim hjónum fæðast nú þrjár dætur í
rennu, Christiane Elisabeth 16. október
1831, Marie Sophie 4. nóvember 1832 og
Anne Cathrine 6. október 1833. Ekki er vit-
að um uppvöxt þeirra systra né menntun, en
ljóst er að þeim hefur verið haldið að ströng-
um og dönskum siðum. Þær voru ekki nema
rétt komnar fram yfir tekt þegar faðir þeirra
dó, 1845, og síðan bösluðust þær áfram með
55