Þjóðlíf - 01.05.1989, Síða 5

Þjóðlíf - 01.05.1989, Síða 5
Leikhúsfréttir ......................... 43 Kvikmyndir Háskaleg kynni. Marteinn St. Þórsson skrifar um nýjar myndir og gefur sumum stjörnur ......................... 44 „Mig hefur alltaf langað til Islands". Viðtal við Guðrúnu Maríu Hanneck-Kloes, þýskan Islending, sem hefur m.a. þýtt íslenskar bókmenntir og gefið út bækur um ísland í Þýskalandi ........... 46 Menningardagar í Hallgrímskirkju ....... 50 Þjóðlegur fróðleikur Brennið þið vitar. Spjallað við Valgerði Hönnu Jóhannsdóttur og Óskar Aðalstein á Reykjanesvita .............. 51 Aldarminnig baráttukonu. Þórunn Magnúsdóttir sagnfræðingur skrifar um Guðrúnu Jónsdóttur, forystukonu í verkakvennafélögum í Vestmannaeyjum og í Reykjavík á fyrri hluta aldarinnar ............................. 54 Bjórsaga íslands Seinni hluti. Mjöður blandinn og Maltó í kaupfélaginu. Hallgerður Gísladóttir safnvörður skrifar...................... 57 VISINDI Gæsamamma gekk af stað... Sagt frá Konrad Lorenz, sem er nýlátinn, og kenningum hans í atferlisfræði....................... 63 Nýtt risaverkefni í vísindum. í Bandaríkjunum eru uppi hugmyndir um að kortleggja nákvæmlega litninga mannsins og lesa úr þeim upplýsingum. Risaverkefni, sem áætlað er að kosti um 200 milljónir dollara á ári í 15 ár......................... 66 Ellin bíður býsna fjörleg. Fólk getur átt ánægjulegt kynlíf fram eftir öllum aldri. Nýjar rannsóknir um gleðilegt kynlíf gamalmenna kemur mörgum á óvart ............... 68 UPPELDISMAL Einsetinn skóli er takmarkið. Viðtal við Birnu Sigurjónsdóttur kennara í Snælandsskóla......................... 69 Skoðanakönnun um tómstundir hjá börnum og unglingum................... 70 YMISLEGT Barnalíf ................................. 72 Bílar .................................... 75 Krossgáta................................. 78 Erlendar smáfréttir ............... 36 og 39 Smáfréttir úr viðskiptaheimi.............. 61 Leiðari Uppstokkun í landbúnaði Stjórnmálamenn og milliliðir hafa búið til flókið kerfi um landbúnað á íslandi. Þetta er kerfi sérfræðinganna, þar sem neytendur og framleiöendur eiga hvorirtveggja jafn erfitt með að sjá handa sinna skil. Þegar lagagreinum og reglugerðarákvæðum sleppir, stendur þó það uppúr að kerfið er dýrt, óhagkvæmt, óheilbrigt og til þess fallið að auka togstreitu milli framleiðenda og neytenda. í Þjóðlífi er að þessu sinni farið í saumana á hluta þessa kerfis; framkvæmd búvörulaga og fullvirðisrétti. Landbúnaðarkerfið hefur sorglega lengi komist hjá nauösynlegri uppstokkun. Þær fáu tilraunir sem gerðar hafa verið til að stokka upp kerfið og laða framleiðsluna að þörfum markaðarins hafa oft verið dæmdar til að mistakast. Það á við um búvörusamningana og búvörulögin 1985, sem á sínum tíma voru gerð lýðum Ijós með lúðrablæstri og söng. Nú átti að draga skipulega úr framleiðslunni. Sömu ráðherrar og gerðu búvörusamninginn dýra gengu svo fram fyrir skjöldu við að brjóta hann, eins og fram kemur í úttekt Þjóðlífs. Ráðherrar úthlutuðu fulivirðisrétti umfram búvörusamning, þannig að þeir skuld- bundu ríkissjóð til gífurlegra umframgreiðslna; 60 milijónir á sl. ári og um 100 milljónir á þessu ári, að mati Jóhannesar Torfasonar stjórnarformanns Framleiðni- sjóðs landbúnaðarins. Hvar eru heimildir ríkisstjórnar fyrir þessum umframgreiðsl- um? Vandséð er annað en hér hafi lög verið brotin með ófyrirleitnum hætti. í þessu kerfi þrífst svo ekki verður um villst sukk og óráðsía, sem ekki verður meö nokkru móti við unað. Þó nokkuð hafi dregið úr framleiðslu á kindakjöti fer því fjarri að markmiðum hafi verið náð, og það hefur dregið verulega úr neyslu á þessum afurðum. Þráttfyrir það markmið búvörulaganna að draga úr umframframleiðslu og lækka útflutningsbótagreiðslu ríkissjóðs, hefur framkvæmd laganna leitt til hins gagnstæða. Frá því lögin tóku gildi hafa útflutningsbæturnar hækkað um tæp 30% að raunvirði. Á undanförnum tveimur árum hafa verið greiddar samtals rúmar 510 milljónir í útflutningsbætur — umfram það sem búvörulögin frá 1985 gerðu ráð fyrir. Ríkisstjórn eftir ríkisstjórn situr að völdum í landinu og vélar um þetta landbúnaðar- kerfi án þess að gera nokkuð í átt til meiri hagkvæmni og lægra búvöruverðs fyrir neytendur. Kerfi útflutningsbóta á sauðfjárafurðum virkar einnig hlægilega, og það sem einkennir öðru fremur útflutning á kjötinu er metnaðarleysi, þrátt fyrir viðleitni örfárra hugsjónamanna um að koma þessari afurð á framfæri erlendis. Það er nefnilega staðföst vissa margra þrátt fyrir allt, að íslenskt lambakjöt geti selst á góöu verði á mörkuðum, sem hrópa á náttúrulegar og ómengaðar afurðir. Löngum hafa margvíslegir milliliðir og stjórnmálamenn séð sér hag af því að viðhalda togstreitu milli íslenskra bænda og neytenda. Og mörgum þeirra er hagur að því að viðhalda þessu þunglamalega, óhagkvæma og spillta kerfi, með öllum þess úreldingarsjóðum og kosningavíxlum. í umfjöllun um þetta kerfi eru auðvitað margvíslegar hættur eins og t.d. að bera saman smásöluverð á landbúnaðarafurð- um í Evrópu við smásöluverð hér, en auðvitað er um niðurgreiðslur að ræöa þar í löndum eins og hér. Engu að síður er auðsætt að verðmyndunarkerfið er alltof flókið og landbúnaðarafurðir of dýrar neytendum hér á landi. Þetta kerfi er úrelt, það er búið að vera. Þetta kerfi þarfnast uppstokkunar, endurskipulagningarog einföldun- ar. Þvífyrr, þeim mun betra. Óskar Guðmundsson Útgcfandi: Félagsútgáfan h.f. Vesturgötu 10, box 1752,121 Reykjavík, sími 621880. Fram- kvæmdastjórn Félagsútgáfunnar: Björn Jónasson, Jóhann Antonsson, Skúli Thoroddsen. Stjórn: Svanur Kristjánsson, Björn Jónasson, Ásgeir Sigurgestsson, Pétur Reimarsson, Jóhann Antonsson, Birgir Árnason, Skúli Thoroddsen, Albert Jónsson, Hallgrímur Guð- mundsson, Árni Sigurjónsson. Framkvæmdastjóri: Ólafur Sigurðsson. Ritstjóri Þjóðlífs: Óskar Guðmundsson. Hlaðam.: Kristján Ari Arason, Sævar Guðbjörnsson. Sctn. o.fl.: María Sigurðardóttir. Próförk: Sigríður Stcphensen. Frcttaritarar: Arthúr Biörgvin Bolla- son (Munchen), Guðmundur Jónsson (London), Einar Karl Haraldsson (Stokkhólmi), Guðrún Helga Sigurðardóttir (Finnland), Ingólfur V. Gíslason (Lundi), Jón Ásgeir Sig- urðsson (New Haven), Yngvi Kjartansson (Osló), Árni Snævarr (París). Forsíða, hönnun: Erlingur Páll Ingvarsson. Ljósm. á forsíðu: Guðmundur Ingólfsson. Skrifstofustjóri: Guð- rún Björk Kristjánsdóttir. Bókhald: Jón Jóhannesson. Auglýsingastjóri: Steinar Viktorsson. Auglýsingar: Eh'n Eiríksdóttir. Markaður: Hrannar Björn. Prcntvinnsla: Prentstofa G. Benediktssonar hf. Kópavogi, sími: 641499. Blaðamenn sími: 623280. Ritstjóri: 28230. Áskriftasími: 621880. Auglýsingasímar: 26450 og 28149. 5

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.