Þjóðlíf - 01.05.1989, Page 9

Þjóðlíf - 01.05.1989, Page 9
INNLENT SKIPULAGSLEYSI Landbúnaðarkerfið á íslandi er í ógöngum. Búvörusamningar þverbrotnir og búvöru- lögin sniðgengin. Landbúnaðarráðuneytið beitti Framleiðnisjóð pólitískum þrýstingi við brot á búvöruiögunum. Fjármunir sjóðs- ins eru nýttir til aukinnar framleiðslu þrátt fyrir ákvæði laga um samdrátt. Skortir nú fé til að sinna lögbundnum verkefnum. „Kosn- ingavíxill" frá 1987 leiddi til 300 tonna um- framframleiðslu á kindakjöti á ári utan laga. Ráðuneytið hefur ekki enn svarað bréfum frá Framleiðnisjóði. Viðbótarkostnaður vegna þessa 100 milljónir á þessu ári. Útgjöld ríkis- ins margir milljarðar. Milliliðir og ríkisstjórn- ir taka þátt í leynimakki um landbúnaðinn. Hulunni svipt af „trúnaðarmáli“ í kerfinu: búnaðarráðherra, en gert er ráð fyrir að Framleiðsluráð landbúnaðarins annist stjórn búvöruframleiðslunnar. í ráðinu sitja 15 manns, þar af eru 12 kjörnir á fulltrúafundi Stéttarsambands bænda, tveir fulltrúar eru skipaðir af stjórn Stéttarsambandsins og einn er tilnefndur af landbúnaðarráðherra. I því augnamiði að draga úr framleiðslu mjólkur- og sauðfjárafurða gera lögin ráð fyrir að landbúnaðarráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, annist gerð búvörusamn- ings við Stéttarsamband bænda um fram- leiðslumagn ár hvert. Á móti ábyrgist ríkið fullt verð til bænda fyrir framleiðslu sína. Með gerð búvörusamninga skuldbindur því ríkisvaldið sig til að greiða bændum fullt verð fyrir framleiðsluna hvort sem markaður er Búvörulögin svokölluðu gengu í gildi í júní 1985. Þau kveða á um framleiðslu, verðlagn- ingu og sölu ábúvörum. Tilgangur þeirra var að stuðla að framförum og aukinni hag- kvæmni í búvöruframleiðslunni, draga úr út- gjöldum ríkisins vegna útflutningsbóta og niðurgreiðslna á landbúnaðarafurðum. Þessu markmiði skyldi náð með því að laga framleiðslu þessara afurða að eftirspurninni. Til að forða umtalsverðri búseturöskun var gert ráð fyrir að bændur yrðu styrktir til að leggja stund á nýgreinar í landbúnaðarfram- leiðslunni, s.s. loðdýrarækt, fiskeldi, ferða- þjónustu og hlunnindanýtingu. En hvernig skyldi hafa tekist til varðandi framkvæmd laganna? Til að milda áhrifin af þeim samdrætti sem búvörulögin gera ráð fyrir á framleiðslu mjólkur- og sauðfjárafurða og auðvelda bændum búháttabreytingar gera lögin ráð fyrir að ríkissjóður leggi Framleiðnisjóði landbúnaðarins árlega til fjármagn sem nota á til að styðja við bakið á bændum. Á árinu 1987 átti framlag ríkissjóðs til sjóðsins að nema 3% af heildarverðmætum búvöru- framleiðslunnar. Hlutfallið átti síðan að hækka í 4% á árunum 1988 til 1992. í 37. grein laganna segir m.a.: „Fjármagni þessu skal varið til eflingar nýrra búgreina, markaðsöflunar og til fjár- hagslegrar endurskipulagningar búreksturs á lögbýlum. “ í lögunum er kveðið á um að yfirumsjón með framkvæmd laganna sé í höndum land- 9

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.