Þjóðlíf - 01.05.1989, Side 33

Þjóðlíf - 01.05.1989, Side 33
ERLENT Uppgjörið við uppreisnina hafið Ungverjalandi eins og víðar í Austur-Evrópu er allt í einu orðin eftirspurn eftir blöðum, sem skrifa á opinn hátt um skuggahliðar sögunnar og samtímans. „Föðurlands- svikararnir“ frá árinu 1956 teknir í sátt. Imre Nagy forsœtisráðherra jarðaður að nýju í eyðilegu kirkjugarðshorni í útjaðri Búda- pest liggja tugir manna grafnir án þess að nokkur grein sé gerð fyrir þeim ofar moldu. Hvorki krossmörk né legsteinar prýða leiðin. Aðeins nokkur blóm og litlir borðar í ung- versku fánalitunum gefa til kynna að hér séu menn grafnir. Það er eins og þung mara hvfli á stað þessum. Fólkið sem gengur hóglega um garðinn lítur flóttalega á mann sem mundar mynda- vél; það hefur lagt bfl sínum við torfæra slóð og gengið spariklætt eftir moldargötum og kafað illgresi svo það mætti vitja þeirra sem þama hvfla. Greinilega engin tilviljun að það skuli hafa lagt leið sína á þennan ónotalega stað. Samferðamaður minn bendir mér á leiði undir gulmáluðu tré: þama er Imre Nagy, fyrrverandi forsætisráðherra Ung- verjalands sagður grafinn. Hann sat í em- bætti öðm sinni dagana sem uppreisnin stóð. Tveimur ámm síðar, 16. júní 1958 var hann tekinn af lífi sem föðurlandssvikari og jarð- aður við hlið félaga sinna. Kirkjugarðurinn — tákn uppreisnarinnar Upp á síðkastið hefur umferð við leiði písl- arvotta uppreisnarinnar aukist til muna. Fyrir tveimur ámm hefði það verið talið óðs manns æði að hætta sér þangað en núna fer fólk þangað nánast daglega. 16. júní s.l. hélt hópur manna út í kirkjugarðinn að koma þar fyrir grafarspjaldi, en lögreglan gerði það upptækt. Mannsöfnuðurinn krafðist þess þá að sannleikurinn yrði sagður um afdrif þeirra sem teknir vom af lífi eftir uppreisnina en lögreglan tók þá það til bragðs að dreifa mannfjöldanum. Óháðir flokkar sem skotið hafa upp koll- inum í landinu á síðustu missemm, hvöttu til þess s.l. haust að uppreisnarinnar 23. októ- ber 1956 yrði minnst með fjöldagöngu, en lögreglan mæltist til þess að það yrði látið ógert. Eftir nokkurt þref í fjölmiðlum féllu flokkamir frá fyrirhuguðum aðgerðum en samt söfnuðust nokkur hundmð manns sam- an á uppreisnarafmælinu. Þrátt fyrir að stjómvöld hafi lagst gegn hvers konar aðgerðum sem flokkamir boð- uðu til viðurkenndu þau samt fáum mánuð- um síðar að „uppreisn“ hefði verið gerð í landinu árið 1956. Fram að því hafði hún aðeins verið skýrð sem „upphlaup ólýðræð- islegra afla í landinu" og sem minnst um hana fjallað. Uppreisnin rædd í fjölmiðlum í raun hefur uppreisnin legið í algjöm þagnargildi fram að siðustu mánuðum. Nú virðist hins vegar sem algjör kúvending hafi orðið í þessum efnum. Bæði blöð, útvarp og sjónvarp fjalla hispurslaust um hina afdrifa- ríku atburði og jafnframt hafa komið fram eindregnar kröfur um að mál þeirra sem teknir vora af lífi eftir uppreisnina verði end- urskoðuð og þeim veitt uppreisn æm. Stjóm- völd sýndu fljótlega lit eftir að tók að bera á þessum þrýstingi. I nóvember var grafar- spjaldinu skilað sem gert hafði verið upptækt við leiði „föðurlandssvikaranna“ og því komið fyrir á einu leiðanna. Nú hefur stjóm- in bætt um betur og ákveðið að taka upp grafir uppreisnarmanna og veita þeim sóma- samlega útför. Hún verður gerð 16. júní n.k., sama dag og Nagy var tekinn af lífi. Óháða dagblaðið „A Kapu“ (Hliðið) birti nýlega leynda skrá yfir þá sem líflátnir vom eftir uppreisnina. Auk Imre Nagy og örfárra blaða- og stjórnmálamanna sem fylgdu hon- um að málum var hálft þriðja hundrað verka- manna og bænda teknir af lífi, flestir strax eftir uppreisnina en aðrir fáum ámm síðar. Á listanum var t.d. drengur sem var 15 ára í uppreisninni. Hann beið þess í þrjú ár að vera tekínn af lífí, því ekki mátti fullnægja dauðadómnum yfír honum fyrr en hann yrði 18 ára og næði lögaldri. Nýir leiðtogar — meiri umræða Ástæður þess að umræðan í Ungverjalandi hefur orðið jafn opinská um uppreisnina og raun ber vitni em af ýmsum toga. Helsta ástæðan er vitanlega umbótastefna Gorbat- sjovs Sovétleiðtoga, en samfara henni hefur tjáningarfrelsi aukist til mikilla muna í Ung- verjalandi. Önnur ástteða og ekki síður mik- ilvæg, em breytingar í æðstu röðum valda- manna í landinu. Nýir menn sem vermt hafa bekkinn lengi hafa tekið við völdum í land- inu. Sá sem hvað Iengst hafði staðið í framlínu á leikvelli ungverskra stjórnmála var Janos Kadár, aðalrítari kommúnistaflokksins, eða „Verkamannaflokksins“ eins og hann heitir opinberlega. Hann vék frá fyrir tveimur ár- um og þótti þá með ólíkindum hversu lengi 33

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.