Þjóðlíf - 01.05.1989, Blaðsíða 36
ERLENT
Keisaraarfi í
forsetastól?
Fréttatímaritiö „U.S. News &
World Report" segist hafa þaö
eftir nokkrum ungverskum
kommúnistum, að þeir séu aö
velta því fyrir sér að gera Otto
von Habsburg að forseta Ung-
verjalands eftir stjórnarskrár-
breytingu í frjálsræöisátt sem
fyrirhuguð er á næsta ári. Von
Habsburg er afkomandi síðasta
keisara Austurríkis-Ungverja-
lands, sem lét af völdum eftir fyrri
heimsstyrjöld. Að sögn telja ó-
nafngreindir talsmenn kommún-
ista í Ungverjalandi að von Habs-
burg sé tilvalinn í þetta starf;
hann sé táknrænn fyrir söguleg
bönd Ungverjalandsíáttinavest-
ur og hann sé nægilega gamall
(76 ára) til að halda sætinu ekki
uppteknu fyriryngri mönnum um
langan tíma. Habsburg er þing-
maður CSU í Bæjaralandi í V-
Þýskalandi, en talar reiprenn-
andi ungversku. Hins vegar hef-
ur hann ekki ungverskan ríkis-
borgararétt, en sagan segir að
því sé hægt að bjarga á einum
degi. Ekki þarf að fjölyrða um
sannleiksgildi þessarar sögu, —
hún er á vangaveltustiginu...
Von Habsburg.
Vér erum amma
Margaret Thatcher forsætisráð-
herra Breta er þekkt fyrir að tala
um sig í fleirtölu, segja „við“ í stað
„ég“. Þykir sumum þetta mesta
yfirlæti og jafnvel móðgun við
drottninguna sem einni ætti að
leyfast að tala svo hátíðlega um
sig. ÞegarThatchereignaðist sitt
fyrsta barnabarn um daginn
sagði hún: „Við erum orðin
amma.“
Elisabet Bagaya prinsessa frá Toro, fræg í sinni tíð sem utanrík-
isráðherra í stjórn ógnvaldsins Idi Amins í Uganda er orðin 46
ára gömul. Hún hefur síðustu árin dvalið í heimahéraði sinu og
skrifað endurminningar sínar. Nýlega tók hún að nýju við fyrri
starfa sínum sem ráðherra, og þar sem menn vilja augljóslega
frekar sjá hana en lesa um hana lét hún til leiðast og sat fyrir
sem fyrirsæta. ítalski Ijósmyndarinn Valentino myndaði ráð-
herrann fyrir tískublaðið „Fame“.
Róttækir á Ítalíu
þinga í Ungó
Róttæki flokkurinn á Ítalíu, sem
fékk 2.6% atkvæða í síðustu
kosningum 1987, hélt flokksþing
sitt í lok apríl í Búdapest, —fyrsti
Vesturlandaflokkurinn sem held-
ur flokksþing í Austur Evrópu-
landi. Frægasti fulltrúi þessa
flokks, Cicciolina, ætlar ekki að
fara aftur í framboð heima fyrir,
heldur leggja þess í stað áherslu
á vinnu í þriðja heiminum og vor-
inu í Austur-Evrópu. Reyndar
hafa Róttækir margoft tilkynnt að
flokkurinn sem, alþjóðleg hreyf-
ing ætli að hætta starfsemi, en
jafnan snúið til vettvangs á ný.
Þessi alþjóðlega hreyfing hefur
nýverið fengið 1000 nýja með-
limi, —flesta úr austurblokkinni...
Skriftir með nýju
sniði
Fram að þessu hafa skriftabörn
kaþólskra presta setið á hnján-
um í þröngum skriftastólum við
skriftirnar. Sóknarbörn í St. Pét-
urskirkjunni í Chicago eiga hins
vegar kost á að velja milli gömlu
aðferðarinnar og nýrrar. í kirkj-
unni eru sex gamaldags skrift-
astólar og sex ný herbergi, sem
eru útbúin þannig að allir geta
séð inn í (Dau. Þessi herbergi
fyrirgefningarinnar eru sem sagt
meðgagnsæjugleri, þareru tveir
stólar, borð, lampi og blóm auk
biblíunnar. Þeir sem lofa þetta
Skriftatal í herbergi fyrirgefningarinnar.
nýja fyrirkomulag segja sam- endur kveða þetta ástæðulaust
band prests og skriftabarns brot á hefðum...
verða mun nánara, en gagnrýn-
Sá mikli kraftakarl, Schwarzenegger (41 árs) giftist inn í Kenn-
edyfjölskylduna á dögunum. Stúlkan heitir Maria Shriver (32
ára) og er systurdóttir Johns forseta og þeirra bræðra. Fjöl-
skyldan er sögð afar andsnúin þessum ráðahag, en Schwarzen-
egger, sem er austurrískur að uppruna, var ákafur stuðnings-
maður Repúblikana og Bush í kosningunum síðustu. Sagt er að
fjölskyldumeðlimir telji þetta stærsta áfallið í fjölskyldunni síð-
an Edward Kennedy lenti í slysinu við Chappaquiddick.
Schwarzenegger lætursérfátt um gagnrýnifjölskyldunnarfinn-
ast og kveðst ekki hafa gifst Maríu vegna ætternis, heldur vegna
mannkosta hennar.
Cicciolina þingmaður.
36