Þjóðlíf - 01.05.1989, Qupperneq 47

Þjóðlíf - 01.05.1989, Qupperneq 47
MENNING lslands“ Gudrun Marie Hanneck-Kloes. Hefur skrifað tvær ferða- og landkynningarbækur um ísland á þýsku. Kann vel að meta þegar Þjóðverjar verða hrifnir af íslandi. hugsa hefðbundið í þessum efnum. Ég hvet í annarri bókinni fólk til þess að taka sér frum- kvæði á ferðum um ísland, að það eigi að ferðast sjálft, skoða mannlífið bak við for- tjöldin, sem ferðamönnum eru alla jafna sýnd. Það kunna auðvitað ekki allar ferða- skrifstofur að meta slíkar ráðleggingar en óhætt er að segja að bókunum hafi verið tekið vel. Þú hcfur einnig skrifað fyrir blöð og tímarit, ertu enn að skrifa síkar greinar? — Já, ég hef verið að skrifa fyrir die Tageszeitung, um kvennamálin fyrir Emmu og ég hef einnig nýlega skrifað í tímaritið der Bote der evangelischen Frau, en þetta eru útbreidd kvennablöð í Þýskalandi. Þá á ég greinar í tímariti, sem samsvarar „National Geographic“ í Þýskalandi. Hins vegar hef ég forðast að skrifa um viðburði eins og t.d. bjórdaginn, sem vakti mikla athygli. Þú vinnur í sendiráðinu og notar mikinn tíma til bókmenntaiðkunar, ertu líka fararst jóri? — Já, það kemur fyrir um helgar og í leyfum að ég skrepp stuttar ferðir. En það er alltof sjaldan. Nú koma árlega tugþúsundir Þjóðverja til landsins og þú vilt kynna þeim þjóðina ekki síður en landið. En er ekki staðreyndin sú að þeir komast sjaldnast í snertingu við fólkið? — Því miður er það oftast reyndin. Eini kosturinn er sá, að skipuleggja sjálfur sína ferð, dvelja á bóndabæjum og ferðast upp á eigin spýtur. Þetta gera nokkrir en alltof fáir. Hinn algengi ferðamaður er í hópferð, ferð- ast um í hópferðabílum og sér sjaldnast aðra en útlendingana sem eru með honum í bfl. Snertifletirnir við íbúa landsins eru fáir. Þetta nýja fyrirkomulag með gistingu á sveitabæjum er góð tilbreyting frá þessari tegund ferðamennsku. En það þarf að huga meira að því hvernig þjóðirnar geti kynnst hvor annarri betur í raun. Margir eru þeirrar skoðunar að ísland þoli ekki mikinn fjölda ferðamanna, — og margir þeirra telja að náttúrunni sé ógnað. Hver er þín skoðun á því? — Ég skil þennan ótta og tel að það sé til eitthvert hámark, sem landið þoli. Sífellt fleiri ferðamenn krefjast æ meira af landinu, bæði fjárhagslega og af umhverfinu. Þannig þarf að leggja vegi á viðkvæmum stöðum, búa til frárennsli, setja upp salerni, leggja brýr og búa út tjaldstæði. Og þarna hljóta að vera einhver mörk og þar með hættir hin ósnortna náttúra að vera ósnortin. Svo virðist sem Þjóðverjar hafi meiri áhuga á íslendingum en aðrar þjóðir, hvernig stend- ur á þessum áhuga? — Það getur legið í undirmeðvitundinni vegna ákveðins skyldleika. Það getur legið aftur í þeirri menningu sem hampað var á dögum „þúsund ára ríkisins“ um sameigin- legan menningararf fornnorrænan. Ungu fólki er þetta ekki lengur ljóst, þetta er frek- ar ómeðvitað í dag. Það þykir ekkert sérstakt við að fara til Tyrklands eða Grikklands til að liggja í sólinni og engum dettur neitt sér- stætt í hug við slík ferðalög, allra síst einhver skyldleiki milli þjóðanna. Hins vegar segja allir þegar ferðir til íslands ber á góma „Mig hefur alltaf langað til íslands". Það segir eng- inn „Ég hef alltaf viljað fara til Tyrklands“. Þetta liggur einhvers staðar djúpt í sálardjúp- unum, ísland. Að lokum Guðrún, hefur þú einhver áform á prjónunum um vinnu þína á næstunni? — Ég held ég hagi lífi mínu eins og hingað til, en ég hef þó hug á að nota meiri tima til bókmenntaiðkunar. Mig langar til að vinna betur úr þeim áhrifum sem land og þjóð höfðu á mig þegar ég kom til landsins, fjalla betur um þær mótsagnir og þá tvíhyggju sem ég minntist áðan á, sagði Gudrun Marie Hanneck-Kloes að lokum. Óskar Guðmundsson 47
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.