Þjóðlíf - 01.05.1989, Side 50
MENNING
Listahátíð í
Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju verður
haldin í annað sinn dagana 5.-15. maí með
fjöbreyttu efni úr hcimi menningar og iista.
Fyrsta hátíðin var haldin í júní 1987 í ný-
vígðri kirkjunni. Stefnt er að því að halda
slíka hátíð annað hvert ár, þegar ekki er
Listahátíð í Reykjavík. Listvinafélag Hall-
grímskirkju stendur fyrir þessari hátíð, en
vegna vaxandi umfangs verður leitað eftir
samstarfi við fleiri kirkjur um framkvæmd
næstu hátíða og yrðu þá fleiri kirkjur Reykja-
víkurprófastsdæmis notaðar.
Dagskráin í ár er mjög fjölbreytt og koma
þrjár listgreinar við sögu, tónlist, leiklist og
myndlist, auk þess sem helgihaldið verður
með hátíðarbrag sem nær hámarki á hvíta-
sunnunni. Á fjórða hundrað manns kemur
fram á hátíðinni.
Kostnaður við kirkjulistahátíðina í ár er
áætlaður um 5 milljónir króna og vegur lang-
þyngst flutningur óratoríunnar Elía eftir
Mendelssohn, með fjórum einsöngvurum,
Mótettukór Hallgrímskirkju og Sinfón-
íuhljómsveit íslands; og flutningur þriggja
einþáttunga eftir dr. Jakob Jónsson. Pegar
hafa fengist vilyrði fyrir góðum styrkjum,
bæði frá kirkju, ríki, Reykjavíkurborg og
fyrirtækjum, en samt vantar þó nokkuð á að
endar nái saman.
Fjöldi sjálfboðaliða í söfnuðinum, List-
vinafélaginu og Mótettukórnum vinnur ötul-
lega að undirbúningnum, en þeirra framlag
er forsenda framkvæmdarinnar. Stjórn
Listvinafélags Hallgrímskirkju skipa: Dr.
Þór Jakobsson formaður, Hörður Áskelsson
framkvæmdastjóri, Málfríður Finnbogadótt-
ir gjaldkeri, dr. Hjalti Hugason ritari, Snorri
Sveinn Friðriksson, Sigríður Jóhannsdóttir
og dr. Sigurbjörn Einarsson meðstjórnend-
ur, en Hrólfur Ölvisson stjórnmálafræðinemi
hefur verið ráðinn í hlutastarf sem fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar. Biskup Islands,
Herra Pétur Sigurgeirsson er verndari hátíð-
arinnar.
Óratorían Elía
Óratorían Elía eftir Felix Mendelssohn-
Bartholdy var samin árið 1846, ári áður en
hið unga tónskáld andaðist. Hún var frum-
flutt á tónlistarhátíð í Birmingham undir
stjórn höfundarins og sló þegar í gegn. Síðan
hefur hún verið í hópi vinsælustu óratoría,
einkum á Bretlandi þar sem hefð fyrir flutn-
ingi slíkra verka hefur haldist óslitin allt frá
dögum Handels.
Vinsældir verksins hafa jafnast við vin-
sældir þekktustu óratoría Handels, en Elía
er án efa þekktasta óratoría 19. aldarinnar.
Þó hefur hún ekki enn verið flutt í heild sinni
á Islandi og verður því flutningurinn í Hall-
kirkjunni
grímskirkju á kirkjulistahátíðinni fyrsti
heildarflutningur verksins hérlendis. Garðar
Cortes stjórnaði flutningi styttrar gerðar í
Fríkirkjunni í Reykjavík árið 1976.
Hlutverk kórsins í Elía er mjög veigamikið
og hljómsveitin stór. Því var Mótettukór
Hallgrímskirkju sérstaklega stækkaður fyrir
þetta verkefni og telur hann 90 manns. Lítill
16 manna kór fer með hlutverk englanna en
fjórir einsöngvarar koma frá meginlandi
Evrópu. Þeir eru allir ungir að árum en eru
þegar í fremstu röð óperusöngvara: Silvia
Herman sópransöngkona, Ursula Kunz alt-
söngkona, Deon van der Walt tenórsöngvari
og Andreas Schmidt barítónsöngvari.
Flutningur Elía verður laugardaginn 6.
maí í Hallgrímskirkju og stefnt er að endur-
flutningi daginn eftir ef aðsókn krefst. Ef vel
gengur að afla styrkja er ráðgert að hugsan-
legur hagnaður af þessum tónleikum fari í
orgelsjóð Hallgrímskirkju sem um þessar
mundir er að festa kaup á 70 radda Klais-
orgeli frá Bonn.
Þrír einþáttungar
Þrír nýir einþáttungar eftir dr. Jakob Jóns-
son verða frumfluttir á kirkjulistahátíðinni,
en dr. Jakob var um langt árabil sóknarprest-
ur við Hallgrímskirkju í Reykjavík. Einþátt-
ungarnir heita „Þögnin", „Kossinn“ og „Sjá-
ið manninn“ og gerast fyrir og eftir krossfest-
ingu Krists. Þeir verða sýndir fjórum sinnum
í litlu kapellunni í suðurálmu Hallgríms-
kirkju. Leikendur eru fjórir, þau Erlingur
Gíslason, Þórunn Magnea Magnúsdóttir,
Anna Kristín Arngrímsdóttir og Hákon
Wage. Leikstjóri er Jakob S. Jónsson og að-
stoðarleikstjóri Ólöf Sverrisdóttir, tónlist
semur Hörður Áskelsson, leikmynd gerir
Snorri Sveinn Friðriksson og lýsingu hannar
Árni Baldvinsson.
Auk flutnings á Elía verða átta aðrir tón-
leikar á dagskrá kirkjulistahátíðarinnar,
bæði orgeltónleikar, kammertónleikar með
tónlist eftir Mozart og vortónleikar Mótettu-
kórs Hallgrímskirkju.
í hádeginu alla virka daga frá 8.-12. maí
verða orgeltónleikar í tengslum við orgel-
námskeið sem prófessor Hans Dieter Möller
frá Diisseldorf heldur. Þátttakendur verða
m.a. starfandi organistar í Reykjavíkurpróf-
astsdæmi, en þeir koma fram á tónleikunum.
Kennd verður frönsk og spænsk orgeltónlist
barokktímans.
Laugardaginn 13. maí verða kammertón-
leikar í samvinnu við Kammersveit Reykja-
víkur. Þar verður flutt tónlist eftir Wolfgang
Amadeus Mozart, kirkjusónötur, aríur og
klarinettukvintett. Það sem er sérstætt við
þessa tónleika er notkun hljóðfæra sem eru
af sömu gerð og á tímum Mozarts. Margrét
Bóasdóttir syngur einsöng í Mozart- aríum,
Björn Steinar Sólbergsson leikur einleik á
orgelið í kirkjusónötunum og Sigurður I.
Snorrason leikur á klarinettu sem smíðuð
hefur verið fyrir hann að 18. aldar fyrirmynd.
Konsertmeistari verður Rut Ingólfsdóttir.
Á annan hvítasunnudag heldur Mótettu-
kór Hallgrímskirkju sína árlegu vortónleika
sem jafnframt eru lokatónleikar hátíðarinn-
ar.
Við setningu kirkjulistahátíðarinnar þann
5. maí, verður opnuð myndlistarsýning í for-
kirkju Hallgrímskirkju. Sýndar verða vatns-
litamyndir eftir Karólínu Lárusdóttur, en
hún er búsett í London. Myndirnar hefur
Karólína gert sérstaklega fyrir þessa sýn-
ingu, en þær tengjast lífi Krists.
Helgihald
Auk þess sem að framan greinir verður
helgihald í Hallgrímskirkju viðhafnarmeira
þann tíma sem hátíðin stendur. Alla virka
daga hátíðarinnar verða kvöldbænir kl. 18 og
þá sunginn íslenskur „Vesper“, tíðagjörð að
fornum sið, en miðvikudaginn 10. maí verða
kvöldbænirnar fluttar á ensku og nefnast þá
Evensong. Hátíðarmessa verður sunnudag-
inn 7. maí en þar mun sr. Ólafur Skúlason
vígslubiskup og dómprófastur prédika og
Kór Akureyrarkirkju mun flytja Litlu orgel-
messuna eftir Joseph Haydn undir stjórn
Björns Steinars Sólbergssonar, en Margrét
Bóasdóttir sópran syngur einsöng.
Auk þessa verða síðan messur hvítasunnu-
dag kl. 11 og annan hvítasunnudag kl. 11 sem
prestar safnaðarins annast, þeir sr. Ragnar
Fjalar Lárusson og sr. Sigurður Pálsson.
50