Þjóðlíf - 01.05.1989, Síða 61
VIÐSKIPTI
Aksturspeningar fyrir hjól
Starfsmenn svissneska fyrirtækisins Sandoz (auö-
hringur í efnaiðnaði, lyfjaframleiðslu o.fl.) eiga nú kost
á að fá greitt fyrir að koma hjólandi til og frá vinnu.
Greitt er samkvæmt kílómetragjaldi, — hálfur franki
fyrir kílómetra. Áður höfðu einungis hátt settir starfs-
menn fyrirtækisins fengið kílómetragjald fyrir bílana
sína. Með reiðhjólagjaldinu vill fyrirtækið sýna batn-
andi hug sinn til umhverfisverndar og reyna að hressa
upp á ímyndina, sem varð fyrir verulegu áfalli árið 1986
þegar kviknaði í verksmiðjum fyrirtækisins og gífurleg
mengun varð í Rín af þess völdum...
Starfsmaður Sandoz hjólar á
kílómetragjaldinu.
Kauphallarárás frá
Bandaríkjunum
Nýverið lét einn alræmdasti
kauphallarbraskari í Bandaríkj-
unum, T. Boone Pickens, til skar-
ar skríða í Japan. Þessi ógnvekj-
andi verðbréfa- og hlutabréfa-
kaupandi hóf feril sinn í
olíuiðnaðinum í Texas en hefur
síöustu árin verið sérfræðingur í
leynilegum kaupum á hlutabréf-
um sem hann síðan hefur selt
með miklum hagnaði. Þegar
hann lét berast að hann hefði
reynt fyrir sér á kauphallarmark-
aði í Japan fór hrollur um þarl-
enda kaupsýslumenn. Hann
hafði keypt yfir 20% hlutabréfa í
Koito, sem er gífurlega stórt fyrir-
tæki sem framleiðir bílahluti, án
þess að stjórn fyrirtækisins eða
stærstu hluthafar fram að þeim
tíma hefðu hugmynd um. Frétta-
Kaupsýslumaðurinn Pickens.
haukar í kauphallarbransanum
reikna með að Pickens vilji að
venju selja hlutinn hratt og
græða mikið. Talið er að Toyota,
sem er áhrifamesti hluthafi í Koi-
to, vilji kaupa allan hlutabréfa-
pakkann af Pickens fyrir verð
sem liggur langt, langt ofan við
þá upphæð, sem kaupsýslu-
maðurinn alræmdi hafði lagt í
bréfin...
Umdeildur sjónvarpsþáttur.
Hætta að auglýsa í
sjónvarpinu
Sjónvarpsefni á það til að vera of
ofbeldissinnað og klámfengið
fyrir auglýsendur. Fyrirtæki eins
og McDonalds, Coca Cola og
fleiri þekkt fyrirtæki í Bandaríkj-
unum hafa nýlega dregið til baka
auglýsingar úr afþreyingarþætt-
inum „Married...With Children".
Ástæðan er sú að þátturinn, sem
sendur er út á sunnudagsmorgn-
um, þykir með eindæmum of-
beldissinnaður og klámfenginn.
Sjónvarpsþátturinn nýtur gífur-
legra vinsælda og fyrirtækin voru
ekkert áköf í að hundsa þættina.
Það var húsmóðir í Detroit sem
hleypti málinu af stað; hún sak-
aði fyrirtækin um að vera „samá-
byrg fyrir því að börnin okkar eru
fóðruð á ofbeldi og klámi". Þess-
ar sakargiftir leiddu um síðir til
þess að fyrirtækin drógu auglýs-
ingar sínar úr þessum sjónvarps-
þætti hjá Fox Television til
baka...
Unnið á gúmmíplantekru.
Alnæmi hækkar
gúmmíverð
Gúmmíiðnaðurinn í Malasíu
græðir á alnæmi. Eftir margra
ára offramboð á heimsmarkaði á
náttúrulegu gúmmíi náði verðið
lágmarki 1986, en síðustu árin
hefur eftirspurn vaxið verulega
vegna útbreiðslu alnæmis.
Gúmmíið er notað í margvíslega
framleiðslu á t.d. gúmmíhönsk-
um og verjum. Á sl. ári nam gúm-
míútflutningur 1.66 milljarði
tonna og seldist fyrir meira en tvo
milljarða þýskra marka. Þar með
er gúmmíiðnaðurinn í Malasíu
aftur orðinn meðal helstu útflutn-
ingsafurða landsins...
61