Þjóðlíf - 01.05.1989, Side 69

Þjóðlíf - 01.05.1989, Side 69
UPPELDI Bima Sigurjónsdóttir kennari í Snælandsskóla telur að ekki verði langt að bíða þess aö skólaárið lengist á íslandi. Einsetinn skóli takmarkið Birna Sigurjónsdóttir kennari í viðtali við Þjóðlíf wn starf kenn- ara, óskir þeirra um bœtta vinnu- aðstöðu, foreldrasamstarf og vinnutímann. — Uppeldishlutverk kennara í dag er miklu umfangsmeira en var hér áður fyrr, þegar aðeins annað forcldrið vann úti og börnin fóru beint heim þar sem einhver fullorðinn beið þeirra. í dag er það þannig að kennar- inn er oft eina fullorðna manneskjan sem barnið hefur veruleg samskipti við allan dag- inn, sagði Birna Sigurjónsdóttir kennari við Snælandsskóla í Kópavogi, þegar Þjóðlíf ræddi við hana um starf kennara í framhaldi af grein eftir Arthúr Morthens sem bar yfir- skriftina „Grunnskóli í kreppu“ og birtist í marshefti Þjóðlífs. í þeirri grein kom fram, og er vitnað til rannsóknar sem Þórófur Þórlindsson vann, að þriðjungi kennara líður illa í starfi og að aðeins 13% þeirra getur hugsað sér að börn þeirra gerist kennarar. Þá kom einnig fram í könnuninni að 73,6% kennara finna fyrir streitu í starfi, þar af 35% nær alltaf eða oft. — Ég held að meginástæður þess að sum- um kennurum líður illa í starfi séu þær að þeir eru einangraðir með sín vandamál. Eins og skólastarfinu er nú háttað í flestum skól- um hér á landi er lítið um samstarf á milli kennara. Eigi kennari til dæmis við aga- vandamál að glíma þarf hann að geta leitað til sinna samstarfsmanna án þess að missa andlitið. Það þarf að bæta samvinnu kennara og stuðla að opinnni umræðu innan hvers skóla, sagði Birna. Hún lagði áherslu á að með breyttum áherslum í kennararstarfinu þar sem kennarar bæru nú meiri ábyrgð á velferð nemenda sinna en áður, væri gott samstarf milli kennara innbyrðis nauðsyn. I fyrrnefndri grein Þjóðlífs kemur fram að stór hluti kennara telur sig ekki geta gert námsefninu góð skil í kennslu. Birna sagði aðalástæður þess vera að bekkjardeildir væru of stórar. Hún sagði að æskilegur nem- endafjöldi í hverjum bekk væri um 20. í dag er ekki óalgengt að fjöldinn sé á bilinu 28 — 30 og ekki útlit fyrir annað en að þeim eigi eftir að fjölga, vegna niðurskurðar á launalið ríkisins um 4% sem ákveðinn var við sam- þykkt síðustu fjárlaga. Skortur á námsefni — Önnur ástæða þess að kennurum finnst þeim ganga illa að koma námsefninu til skila er að námsgögn eru af mjög skornum skammti. Lauslega áætlað sýnist mér að tvöfalda þyrfti fjárframlög til Námsgagna- stofnunar til þess að bæta úr brýnustu þörf- inni. Annað sem ég tel mikilvægt til þess að meiri árangur náist í skólastarfinu er að lengja þann tíma sem skólarnir starfa. Eins og ástandið er í dag er stöðugur tímaskortur. Ég hef þá trú að fyrr en síðar verði skólaárið lengt hér á landi, þannig það verði svipað og hjá nágrannaþjóðunum, sagði Birna. En brýnast af öllu telur hún að nú þegar verði hafist handa við að koma á einsetnum skóla hér á landi. — Með því að taka upp einsetinn skóla verður hægt að bjóða kennurum og nemend- um upp á samfelldan skóladag og þá opnast einnig möguleiki á því að lengja skóladag- inn. í dag er sá tími sem börnin eru í skólan- um of stuttur, sagði Birna. Samkvæmt nýlegri áætlun sem mennta- málaráðuneytið hefur látið gera og miðast við að koma á einsetnum skóla á næstu fimm árum, mun það kosta um hálfan milljarð á ári í aukinn launakostnað og verja þyrfti 500 milljónum króna árlega í uppbyggingu nýs skólahúsnæðis. — Ég held að það sé ekki bara spurning um peninga hvort hér verður tekinn upp ein- setinn skóli, heldur hugarfar. Þetta er mikið hagsmunamál, ekki síst foreldra sem nú þurfa stöðugt að hafa áhyggjur af hvað börn- in þeirra aðhafast á milli þess sem þau eru í skólanum. Ekki síst er þetta mikilvægt fyrir börnin sjálf sem því miður þurfa í auknum mæli að sjá um sig sjálf vegna vinnu foreldr- anna, sagði Birna. Hún sagði nauðsynlegt að foreldrar og kennarar ynnu saman að því að koma þessu hagsmunamáli í gegn. Birna leggur mikla áherslu á að gott samstarf ríki á milli foreldra og skóla. — Einn mikilvægasti þáttur skólastarfsins í dag er foreldrasamstarf. Foreldrasamstarf hér á landi á sér ekki langa sögu en það eykst með hverju árinu og er það vel. Það er nauð- synlegt að foreldrar viti hvað er að gerast í skólanum og að þeir séu virkir í því félags- starfi sem þar fer fram, sagði Birna. Hún viðurkenndi að margir kennarar ættu erfitt með að laga sig að breyttum samskiptum við foreldra. En hún sagði að stöðugt færi meiri tími af vinnu kennara í foreldrasamstarf. Aðspurð kvað Birna að vinnutími kennara væri rúmar 45 stundir á viku, þar af væri 30 stunda viðvera í skólanum. 15 stundir ættu síðan kennarar að nota til að yfirfara verk- efni, undirbúa kennsluna og margt fleira. — Það er ljóst að margir kennarar kunna vel við þennan vinnutíma sem er óafmarkað- ur og sveigjanlegur. Ekki síst kemur hann sér vel fyrir konur sem stunda kennslu sagði Birna Sigurjónsdóttir kennari og bætti við að lokum að mjög margir kennarar ynnu frá- bært starf þrátt fyrir léleg kjör og oft slæma vinnuaðstöðu. -sg 69

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.