Þjóðlíf - 01.05.1989, Síða 75
BÍLAR
Löðrandi í olíu
Smurolían á vélina
Það má segja sem svo að öll mannanna
verk sem snúast leiki á legum sem smurðar
eru með olíu. I allri umræðunni um olíu-
birgðir heimsins og átökin um olíuna er
smurolían líklega neðst á blaði nema þegar
fégráðugum mönnum hugkvæmist að drýgja
matarolíu fátæklinga með henni sér til auðg-
unar.
Smurvinna er álitin einhver einfaldasta
vinna sem unnin er á verkstæði, kröfurnar
ekki meiri en þær að geta fundið hvar tappa
eigi gömlu olíunni af og í hvora áttina snúa
eigi skrúflyklinum. En þeir hlutir sem við
teljum sjálfsagða eru það sjaldnast ef grannt
er skoðað, sama gildir um smurolíur.
Allar vélar þurfa næga og góða smurolíu
næst á eftir eldsneytisloftblöndunni ef telja
skal það nauðsynlegasta fyrir gang vélarinn-
ar. Smurolía vélarinnar smyr ekki aðeins,
heldur þéttir hún, kælir og hreinsar þá hluti
sem hún kemur í snertingu við. Punn olíu-
himna er það eina sem kemur í veg fyrir að
hlutir sem sem snúast með ægihraða snertist
og bræðist fastir saman vegna núningsins.
Nútíma olíur mynda ekki aðeins smurhimn-
una sem dregur úr núningi, þær eru í raun
flókin samsetning eins og bílarnir sem þær
eru notaðar í.
Smurolíur eru mjög sérhæfð framleiðsla
sem hefur ýmsa eiginleika umfram þá að
draga úr núningi, kæla og hreinsa. Gangur
og ending véla byggist á þeim eiginleikum
olíunnar að auðvelda gangsetningu, hindra
ryðmyndun og tæringu málma, hamla gegn
sótmyndun í brunaholi, þétta strokka og
ekki má hún undir neinum kringumstæðum
freyða (þ.e. að í hana komi loftbólur).
Freyði olían þá kælir hún og smyr verr með
þeim afleiðingum að legur og núningsfletir
skemmast.
SAE flokkun
Gangsetningarhraði vélarinnar ræðst af
seigju (viscosity) eða þykkt olíunnar við mis-
munandi hitastig. Ef olían er of seig eða
þykk við lágt hitastig þá getur hún valdið
slíkri tregðu að vélin fari ekki í gang. Seigja
er mælikvarði á rennslisviðnám olíunnar og
ákvarðast af sameindabyggingu hennar. Olí-
75