Þjóðlíf - 01.05.1989, Blaðsíða 76
BÍLAR
r------------------------n
ORIENT
Efþú
gerir kröfur
um gæði
veldu þá
Fallegu
ORIENT
armbandsúrin
hjá úrsmiðnum
ORIENT
V_______/
ur eru flokkaðar eftir seigju samkvæmt svo-
nefndum SAE staðli. Framleiðendur smur-
olíu tóku SAE staðalinn í notkun fyrst árið
1911. Flokkun olíunnar ákvarðast af mörgum
stöðluðum prófunum, t.d. eru eiginleikar
olíunnar við lágt hitastig metnir eftir þremur
prófunum.
Fyrsta prófunin varir í þrjár mínútur í tæki
sem líkir eftir gangi vélar undir frostmarki.
Pessi prófun þótti ekki skilgreina ýmis
rennslisvandamál sem verða í kaldri olíu, en
olía hefur þá náttúru að þykkna í kulda og
þynnast í hita.
Prófun númer tvö á kaldri olíu stendur yfir
í 16 klst. Notað er sérstakt tæki sem gerir
kleift að skoða sérstaklega hvenær olíudælan
hættir að ná til sín olíunni. Pessi prófun var
ekki tekin upp fyrr en árið 1982 en árið áður
var veturinn í Norður-Ameríku sérlega
harður með þeim afleiðingum að vélar
hrundu í stórum stíl.
Þriðja prófunin (hófst 1984) stendur yfir í
eina viku, þessi prófun er endurbót á þeirri
númer tvö og lýsir betur rennsliseiginleikum
kaldrar olíu. Pær prófanir sem hér var lýst
mjög svo yfirborðslega eru aðeins einn þátt-
urinn í mjög fjölbreyttum prófunum á olíum
samkvæmt staðlinum sem fyrr var nefndur
og eru auðvitað í stöðugri þróun.
Vélarolíur bera SAE flokkunarmerkingu
sem byggir á stöðluðum prófunum. Algeng-
ustu flokkarnir um þessar mundir eru SAE
5W, 10W, 15W, 20W, 20, 30, 40 og 50. Pví
þykkri sem olían er því hærri er SAE talan.
Bókstafurinn W með tölunni táknar að olían
sé ætluð til notkunar í kulda (W=winter).
Olíur án „W“ merkis eru ætlaðar til notkun-
ar þar sem vinnuhitastig olíunnar er 100 sels-
íusgráður. Oft eru tvær tölur saman í
flokkunarmerki olíu og standa þá fyrir seigj-
ustuðul (viscosity index) olíunnar. Dæmi um
þetta væri olía sem merkt er SAE 10W-30,
hún á að veita nægilegan smurning allt niður
í 25 gráðu frost. Seigjustuðullinn segir til um
seigju eða þykktarbreytingu olíunnar með
tilliti til hitastigs. Olía með háan seigjustuðul
breytist lítið þó sveiflur verði í hitastigi. Olí-
an sem nefnd var sem dæmi hér rétt fyrr
spannar í raun 4 stig þ.e. frá 10W til 30 og
nefnist því fjölþykktarolía (multigrade).
Fjölþykktarolíur eru því heilsársolíur og
vinna jafn vel sumar sem vetur. Þó að álag á
olíur sé verulegt við íslenskar aðstæður þá
eru miklar sveiflur í hitastigi ekki það álag
sem veldur okkur viðlíka raunum og í mörg-
um öðrum löndum þar sem sveiflurnar eru
meiri, mjög heit sumur og grimmdarfrost á
vetrum.
Eldsneytissparnaður
Litlar vélar, með fáa strokka, þurfa tölu-
vert meiri snúningshraða við ræsingu svo þær
fari í gang heldur en stærri vélar eða þær sem
eru með fleiri strokka. Pví er mikilvægt að
olían veiti sem minnst viðnám við gangsetn-
ingu í kulda, dæmigerð olía við slík skilyrði
ber merkinguna 5W-30. Auðvitað fæst einn-
ig eldsneytissparnaður með þynnri olíu. Við
það að nota olíu 10W-30 í stað 10W-40 á
stærri vélar sparast u.þ.b. 1% eldsneyti.
Flokkun olíunnar samvæmt SAE seigju-
stigi var góð og gild en fleiri atriði skipta máli
svo sem notkunarsvið. Árið 1947 var tekið
upp flokkunarkerfi fyrir smurolíur sem
kennt er við API (American Petroleum Inst-
itute).
Þetta kerfi gerði ráð fyrir þremur flokkum
vélaolía eftir notkun: „regular“ eða venjuleg
notkun, „premium“ eða aukið álag og
„heavy duty“ eða mikið álag. Flokkun olíu
með þessum hætti dugði skammt svo að 1952
var flokkuninni breytt og vinnuumhverfi vél-
anna sett inn í lýsinguna. Ekki dugði þetta
svo að árið 1970 var það kerfi tekið upp sem
enn er í gildi. Petta kerfi tekur tillit til þeirra
sem nota olíu, þ.e.a.s. framleiðendurolíu og
véla og þeirra sem nota olíuna, t.d. ég og þú.
Samkvæmt kerfinu eru eiginleikar olíunnar
skilgreindir og hægt að velja hana til þeirrar
notkunar sem við á.
API flokkun olíu er með tvennum hætti,
sjö flokkar eða stig eru fyrir bensínvélar og
fimm stig fyrir díselvélar. Merking olíunnar
eftir flokk er með tveimur bókstöfum, olía í
bensínvélar ber sem fyrri bókstaf S (fyrsti
stafurinn í orðinu,, spark“ eða neisti) en olía í
díselvélar bókstafinn C (fyrsti bókstafurinn í
orðinu „compression“ eða þjöppun). Seinni
bókstafurinn segir síðan til um eiginleika ol-
íunnar og notkunarsvið hennar. Dæmi: olía
merkt „SA“ er án íblendiefna. Eftir því sem
olíurnar verða sérhæfðari eða kröfurnar til
þeirra verða meiri er ferðast aftar í stafrófið
þannig að flestar vélar sem nú eru framleidd-
ar þurfa olíu sem merkt er „SG“. Petta þýðir
m.a. það að ekki má nota olíu sem merkt
væri „SF“ á vél sem gerð væri fyrir “SG“
olíu. Af sjálfu sér leiðir að ekki má blanda
saman olíum sem bera mismunandi API
bókstafamerkingu. Nánast það sama gildir
um díselvélaolíur og sagt hefur verið hér að
framan um olíur fyrir bensínvélar.
Mengun olíunnar
Ekki eru allir bíleigendur með það á
hreinu hvaða notkun vélar valdi mestu álagi
á hana. Ef flett er upp í handbókum fram-
leiðenda þá skilgreina þeir mesta álag þann-
ig: akstur í ryk-og sandmettuðu lofti, lausa-
gangur í langan tíma, dráttur aftanívagna,
stuttur akstur (skemmra en 15 km) og lang-
varandi hraður akstur í heitu veðri.
Langvarandi lausagangur og stuttir „túr-
ar“ geta valdið því að eldsneyti og vatn
blandast smurolíunni. Þetta getur aftur vald-
ið því að olíufilman verður veikari og einnig
að einskonar leðja myndast í olíunni. Ryk
sem kemst í olíuna spillir henni (slípimassi)
og ef dregnir eru vagnar eða ekið hratt og
lengi í heitu veðri flýtir það fyrir oxun (að
76