Frjáls verslun - 01.01.2012, Page 12
12 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012
Í stuttu máli
BensÍnið á leið Í
300 krónur
Hlutur
ríkisins
Verð á
lítra
Hlutur
ríkisins
Verð á
lítra
Verð á bensíni hækkar og hækkar og augljóst er að verð á bensínlítranum stefnir í 300 krónur þegar
líða tekur á árið. Verð á bensíni var
hækkað í 258 krónur hinn 24. febrúar
síðastliðinn og dísilolía kostar 264
krónur lítrinn.
Ríkið tekur um helminginn af verði
bensínlítrans. Af 258 krónum sem
bensínlítrinn kostar tekur ríkið 124
krónur í skatta. Í febrúar árið 2008,
þegar verð á bensíni var 138 krónur
lítrinn, var hlutur ríkisins 70 krónur.
Svona lítur þetta annars út sam
kvæmt upplýsingum sem Runólfur
Ólafs son, framkvæmdastjóri FÍB, hefur
sent blaðinu.
Bensín 95 oktan
Febrúar 2008: 138 kr. 70 kr.
Febrúar 2009: 144 kr. 76 kr.
Febrúar 2010: 200 kr. 104 kr.
Febrúar 2011: 216 kr. 110 kr.
Febrúar 2012: 258 kr. 124 kr.
Dísil
Febrúar 2008: 142 kr. 70 kr.
Febrúar 2009: 163 kr. 79 kr.
Febrúar 2010: 198 kr. 95 kr.
Febrúar 2011: 219 kr. 105 kr.
Febrúar 2012: 264 kr. 120 kr.
Fitch hækkar
lánshæFismat
Krónan hefur lækkað um meira en fjögur prósent gagnvart helstu viðskiptamynt um Íslands frá áramótum.
Endur greiðslur fyrirtækja og sveitarfélaga á
erlendum lánum skýra lækkunina að hluta,
en þær geta haft jákvæð áhrif til lengri tíma.
Evran kostaði um 159 krónur um áramótin,
en kostar núna um 166 krónur. Þetta þýðir að
verðmæti útflutnings aukast en innflutningur
verður dýrari.
Núverandi verðbólguspá Seðlabankans
geng ur út frá að gengi krónunnar gagnvart
evru haldist nokkurn veginn óbreytt við 160
krón ur, en það er nú nokkru veikara eins og
áður sagði.
Matsfyrirtækið Fitch hefur hækkað láns hæfiseinkunn Íslands fyrir lang tímaskuld bind ingar í erlendri mynt
í BBB úr BB+. Lánshæfiseinkunnin fyrir
skamm tímaskuldbindingar í erlendri mynt
var einnig hækkuð í F3 úr B og einkunnin
fyrir lánshæfisþak Íslands í BBB úr BB+.
Láns hæfiseinkunnin BBB+ fyrir langtíma
skuldbindingar í innlendri mynt var staðfest
með stöðugum horfum.
krónan lækkað
um Fjögur
prósent
Gaflaraleikhúsið aðstoðaði Frjálsa verslun
við myndatökur af Munkhásen en leikhúsið
verður með sýningar á leikritinu Ævintýri
Munkhásens á næstunni.
gaFlaraleik-
húsið aðstoðaði