Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2012, Síða 55

Frjáls verslun - 01.01.2012, Síða 55
FRJÁLS VERSLUN 1TBL. 2012 55 Guðmundur Arnar Guð­mundsson er formaður Ímark og markaðsstjóri hjá hinu nýja flugfél agi WowAir. Hann er jafn ­ framt annar höfunda bókarinnar Markaðs­ setning á Netinu og hefur því góða yfirsýn yfir íslenskt atvinnulíf og markaðsstarf. Að hans mati vinna mörg íslensk fyrirtæki mjög vel í staðfærslu og þró ­ un sinna vörumerkja og segir hann að þeim sem standa sig vel hafi farið fjölgandi síðustu ár. Engu að síður séu enn dæmi um fyrirtæki sem mættu gera mun betur, jafnvel þótt aðrir hlutir starfseminnar séu í ágætu lagi. Þar missi þau af góðu tækifæri til að gera vörumerki sín enn sterkari. Samræmið skiptir máli „Í þeim fyrirtækjum sem ná ekki að styrkja sitt vörumerki nægilega vel sér maður oftast til hneigingu til að hugsa bara um lógóið og aug lýsingabirtingar en gleyma öllu því sem skiptir mestu máli. Það er nefnilega upplifun við ­ skiptavinanna við not kun á vörum fyrir tæk isins og þjónustu þess sem ræður því hvort vöru merkið styrk ist eða veikist. Við þessi samskipti skap ast aðalþekk ingin á því hvað vörumerkið stendur fyrir og ef varan og þjónustan eru góð og í samræmi við það sem fyrirtækið vill standa fyrir mun vöru merkið eflast með hverj um viðskiptum,“ segir Guðmundur. Að mati Guðmundar er símafyrirtækið Nova gott dæmi um fyrirtæki sem tekst vel til við að byggja upp vörumerki sitt. Fyrir tækið lýsir því yfir í mark aðsstarfi að það sé stærsti skemmti staður í heimi og stendur við það með því að veita viðskipta vinum alltaf þá upplifun að vörur og þjón usta Nova séu skemmtileg og áhuga ­ verð. Guðmundur segir þetta eiga sér stað alls staðar hjá fyrirtækinu, hvort sem það er á vef þess, í vörum, þjónustu eða markaðsefni. Hann nefnir einnig gistiheimilið Kex og veitingastaðinn Hamborgarafabrikkuna sem dæmi um fyrirtæki sem hafa náð góðum árangri við að efla vöru ­ merki sitt með því að hafa gott samræmi milli ímyndar og starfsemi. Mættu vera djarfari „Öll þessi fyrirtæki hafa gengið langt í að marka sér sérstöðu á sínum markaði með mjög góð ­ um árangri. Maður fær stundum á tilfinninguna að íslensk fyrirtæki séu svolítið hrædd við að gera einmitt þetta, sem leiðir til þess að skila ­ boð og starfsemi þeirra verður einsleit og allir enda með mjög svipaða ímynd. Ég held að stjórn­ endur markaðsmála mættu vera mun djarfari í að ná meiri aðgreiningu frá keppinautunum,“ segir Guðmundur. Það skiptir nefnilega máli að ná fram aðgrein­ ingu að mati Guðmundar og nefnir hann bjór sem gott dæmi um þetta. Rannsóknir hafi sýnt að við „blindandi“ bragð­ kannanir á bjór eigi fólk í talsverðum vandræðum með að greina mun milli bjórtegunda. Ef fólk veit hins vegar hvaða bjór tegundir það er að smakka breytist upplif­ unin og einkunnirnar sem bjórtegundirnar fá verða mun fjölbreyttari. Ekki bara hvað heldur líka hvernig Guðmundur segir að það sé tiltölulega auðvelt að byggja upp vöru merki á Íslandi. Markaðurinn sé lítill og orðspor fljótt að breiðast út. „Það sem skiptir þó mestu er að allt starfsfólk sé á sömu blaðsíðu og tilbúið til að veita vöru og þjónustu sem stendur við loforð fyrirtækisins. Allir þurfa að standa sig og ekki síst forstjórinn, sem þarf að vera kyndilberinn í að efla vörumerkið með öllum sínum ákvörðun­ um. Mín reynsla er að markaðsþenkjandi forstjórar séu oft öflug­ astir í uppbyggingu vörumerkja og skynji mikilvægi þess að allt fyrirtækið gangi í takt. Ef forstjórarnir eru með rekstrarlegan bakgrunn er síður líklegt að þeir hugsi á þennan hátt og hætta er á að reksturinn detti úr takti við það sem vörumerkið stendur fyrir.“ Þjálfun nýrra starfs­ manna er einn mikilvæg­ asti þátturinn í upp­ bygg ingu og viðhaldi vörumerkis og telur Guð mundur að mikil tækifæri séu ónýtt í þeim efnum hér á landi. „Ég fæ oft á tilfinninguna að í starfsmannaþjálfun sé farið vel í að kenna hvað eigi að gera, en miklu minni áhersla lögð á hvernig eigi að gera hlutina. Sem einfalt dæmi er nýjum starfs­ manni kannski kennt mjög vel hvað þarf til að búa til hamborgara, en svo gleymist að útskýra hvernig hann eigi að framreiða borgarann og bera sig að í samskipt­ um við viðskiptavini.“ Skyndilausnir duga aldrei Að byggja upp vöru­ merki er eilífðarverkefni að mati Guðmundar og mikilvægt að átta sig á að skyndilausnir duga aldrei. Ósjaldan hafi til að mynda fyrirtæki reynt að hreinsa af sér gamlar syndir með því að skipta um nafn og vörumerki – en án teljandi árangurs. „Ef vörumerkið er orðið laskað er það vegna þess hvernig fyrirtækið hefur starfað, en ekki vegna nafnsins eða út litsins á vörumerkinu. Þetta er eins og að reyna að bæta upp fyrir lé lega jólagjöf með því að hafa jólapappírinn sem glæsilegastan. Það dugar skammt, því þegar pakkinn er opn­ aður munu vonbrigðin alltaf vera þau sömu. Til að endurbæta vörumerki þarf að fara í grunninn og endurhugsa starf s em ina – það er hún sem skiptir mestu máli,“ segir Guð­ mundur að lokum. upplifun viðskiptavina ræður styrk vörumErkisins guðMundur arnar guðMundsson, forMaður íMark „Ef vörumerkið er orðið laskað er það vegna þess hvernig fyrirtækið hefur starfað, en ekki vegna nafnsins eða útlitsins á vörumerkinu. Þetta er eins og að reyna að bæta upp fyrir lélega jólagjöf með því að hafa jóla- pappírinn sem glæsilegastan.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.