Frjáls verslun - 01.01.2012, Page 80
80 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012
Björn Kjos flýgur hátt og það hafa komið fram efa semdir um að fyrirætlanir hans muni að lokum skila
arði. Arðurinn af rekstri Norweg
i an síðustu ár hefur alltaf verið
lítill og oft tap. Á síðasta ári var
hagnaðurinn aðeins tvö prósent
af veltu. Fyrirtækið er fjármagn
að með hlutafé og lánum.
Vöxtur fyrirtækisins er engu að
síður eftirtektarverður og sagan
ævin týraleg – blanda af áræði
og heppni.
Björn Kjos er flugmaður. Hann
er orrustuflugmaður sem sneri
sér að lögfræði með siglingarétt
sem sérgrein. Hann þekkir lög
um flutninga. Með flugmennsku
og ferðalögfræði að baki hóf
hann eigin flugrekstur.
NAS eða SAS
Hann sofnaði fyrir 19 árum flug
félag sem hann kallaði Norweg
ian Air Shuttle – NAS. Nafnið
minnti óneitanlega á SAS –
Scandinavian Air System. Þó
var ekki beinlínis hugmyndin að
keppa við risann. Það er ekki
einu sinni hægt að líkja SAS við
stóra bróður í þessu samhengi:
NAS var bara eins og barna
barn að leika sér í sandkassan
um hjá afanum SAS.
Kjos fékk flugvélar – sex fokk
ervélar – úr þrotabúi annars
félags og gerðist undirverktaki
hjá enn öðru flugfélagi. Það
var Braathens SAFE, gamalt
fjölskyldufyrirtæki frá því fyrir
stríð. Kjos tók að sér að sinna
nokkrum minni flugleiðum inn
an lands með fokkervélunum.
Allt var þá háð sérleyfum. Þetta
gekk vel og hann var ánægður
með samninginn við Braathens.
En í þessu fólst enginn vöxtur,
bara örugg vinna.
Svo tóku tíðindi að gerast und
ir lok síðustu aldar. Frelsi í flugi
er aukið, sérleyfi afnumin og
Braathens hóf samkeppni við
SAS á leiðum innanlands. Bauð
til dæmis upp á ódýr sæti aftast
í flugvélum sínum án þjónustu.
Þetta varð vinsælt og SAS
brást við eins og risar gera
allt af: Þeir hjá SAS komu keppi
nautnum á kné með undir boð
um og keyptu svo félagið þegar
það var að fara í þrot. Öll ódýr
fargjöld voru strax úr sögunni
og ein lítil aukaverkun var að
undirverktökum eins og Birni
Kjos var sagt upp á stundinni.
Þeir sjá SAS sjá víst eftir því nú.
Myndu ekki reka hann aftur
„Við þurfum ekki á þér að halda,
bless!“ Þannig voru skila boð in
sem Kjos fékk frá nýj um við
semj anda árið 2002. Hann sat
því uppi verkefnalaus með sex
fokkervélar. Þá var um tvennt
að velja: Selja vélarnar og fara
á eftirlaun eða reyna að berjast.
Hann langaði raunar mest til að
gerast glæpasagna höfundur en
ákvað að berjast.
Fleiri en Braathens höfðu reynt
að keppa við SAS. Flugfélagið
Color Air var stofnað árið 1999
í þessum tilgangi af fjársterkum
útgerðarmanni. Það gekk bara
skamma stund með bullandi
tapi og undirboðum SAS á öll um
flugleiðum. Síðan var verð hæk
kað á ný. Nú ætlaði Björn Kjos
að reyna það sama án þess að
eiga meri en sem svaraði verði
sex fokk ervéla. Fjárfestar hristu
haus inn. Vonlaust! En Kjos seldi
fokk erana og byrjaði með eina
Boeing 737 í innanlandsflugi milli
Oslóar og Tromsö. Fyrsta ferð
var farin að morgni 1. september
2002 og á síðustu stundu lögðu
nokkrir peningamenn fram fé.
Þetta var fjárhættuspil að þeirra
mati. Sennilega tapað fé en gam
an að vera með.
Kjos gekk ungur í
norska flugher inn
og var orrustuflug-
maður áður en
hann sneri sér að
lögfræði og svo
flugrekstri.
En af hverju hefur
Birni Kjos tekist
það sem aðrir hafa
orðið að gefast
upp við – nefni-
lega að ná fótfestu
á markaði þar sem
SAS hefur ráðið
lögum og lofum?
SAS er að hluta
ríkis hlut félag í
eigu þriggja nor -
rænna ríkja og
var fyrir marga
Norðurlandabúa
„óska barn þjóð-
anna“.