Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2012, Síða 100

Frjáls verslun - 01.01.2012, Síða 100
100 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012 Mikilvægi erlendra ferðamanna í miðbæ Reykjavíkur er óumdeilanlegt. Að ýmsu er að hyggja og segir Örvar J. Arnars­ son, verslunarstjóri ZO­ON, að mikilvægt sé að hlúð sé að sögunni, svæðinu og umhverfinu. TExTi: svava jÓnsdÓTTir mynd: GEir Ólafsson Örvar J. Arnars­son, verslun­ar stjóri ZO­ON við Bankastræti, segist telja að miklir vaxtarmöguleikar séu í miðborg Reykjavíkur, bæði hvað varðar erlenda ferða­ menn og ekki síður Íslendinga. „Við erum því á heildina litið afar ánægð með að stuðla að auknum rekstri í miðborginni og horfum fram á björt og skemmti leg ár og áratugi. Við vitum að erlendir ferðamenn leita í miðbæ borga og það skiptir auðvitað miklu máli fyrir okkur sem verslunarrekendur að vera til staðar fyrir þá. Miðborg Reykjavíkur er að okkar mati afar skemmtilegt svæði. Þar er rík saga Íslend­ inga og landsins okkar og því mjög gaman að geta tekið þátt í þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað á svæðinu undan­ farin misseri. Rekstur verslunar þar er um margt svipaður því sem gengur og gerist annars staðar en það er þó mikilvægt að Reykjavíkurborg, ferðaþjón­ ustufólk og aðrir rekstraraðilar leggist á eitt við að halda uppbyggingunni áfram. Við teljum mikilvægt að hlúð sé að sögunni, svæðinu og umhverf­ inu.“ FERðAMENN LEITA ALLTAF Í MIðBæINA Örvar J. Arnarsson verslun ar stjóri. Erlendir ferðamenn sem komu hingað til lands árið 1990 voru um 150.000. Þeir voru um 300.000 tíu árum síðar og tæplega 600.000 árið 2011. Birkir Hólm Guðna­ son, forstjóri Icelandair, segir að með þetta í huga megi gera ráð fyrir að þeir verði um ein milljón árið 2020. „Við höfum sagt að eina leiðin til að taka á móti þessum fjölda sé að stór hluti þeirra komi á tímabilinu september til maí þann ig að sumarið sé ekki svona ráðandi tími. Við höfum markvisst verið að auka fram­ boð á ferðum á því tímabili og bæta við heilsársáfangastöðum eins og Washington, Seattle og Denver. Við höfum trú á að þetta verði raunin.“ Ástæða þess hve ferðamönn­ um hefur fjölgað mikið að undan förnu segir Birkir Hólm að sé aðallega aukið framboð á ferð um, eldgosið í Eyjafjallajökli og mikil og vönduð markaðs­ setning erlendis. „Með því að fljúga beint til borga í Banda­ ríkjunum margfaldast áhrif af þeim sem fara til Íslands því að þeir sem koma hingað fóru áður í gegnum aðrar borgir úti þar sem var beint flug. Auk þess setjum við einn og hálfan til tvo milljarða króna í auglýsingafé á ári erlendis og það er í rauninni lykillinn að því að fá ferðamenn heim. Við höfum prófað að hætta að auglýsa á veturna í nokkrar vikur en þá hefur veru lega hægt á bókunarflæði þann ig að fólk er ekkert að bíða í röðum úti í heimi eftir að kom­ ast til Íslands af því að krónan er svo veik.“ Birkir segir að Íslendingar eigi að vera stoltir af því að selja Ísland eins og það er – myrkrið, kuldann, menninguna og nátt­ úruna. Svo megi ekki gleyma björtum sumarkvöldum og söng lóunnar. Milljón ferðamenn í kringum 2020 Miðað við fjölgun erlendra ferðamanna hingað til lands á síðustu árum má gera ráð fyrir að þeir verði um ein milljón árið 2020. TExTi: svava jÓnsdÓTTir / mynd: GEir Ólafsson Birkir Hólm Guðnason. „Eina leiðin til að taka á móti þess­ um fjölda sé að stór hluti þeirra komi á tímabil­ inu september til maí þannig að sumarið sé ekki svona ráðandi tími.“ „Við erum því á heildina litið afar ánægð með að stuðla að auknum rekstri í mið borg inni.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.