Þjóðlíf - 01.01.1991, Qupperneq 18

Þjóðlíf - 01.01.1991, Qupperneq 18
ERLENT FYRST VERÐIIR AÐ TEMJA Tíðindamaður Þjóðlífs í spennuþrungnu andrúmslofti í Buenos Aires. Blaðamannafundur með Alfonsín. Uppreisnartilraun hersins og herforingjar náðaðir. Lýsing á mótmœlafundi: „Fundurinn er þrunginn reiði og sorg. Margir gráta. Krepptum hnefum er otað að lögreglumönnunum sem tekið hafa sér stöðu framan við Bleika húsið... “ ÓLAFUR INGÓLFSSON ARGENTÍNU Saga Buenos Aires, höfuðborgar Arg- entínu, byrjaði við Maítorgið, Plaza de Mayo. Þar reistu spænsku landnem- arnir árið 1558 virki til varnar gegn árásum indíána og allar götur síðan hefur saga Argentínu speglast í atburðum á Maítorgi. Upprunalega kallaðist torgið Plaza del Fu- erte (Virkistorg), en eftir að árásum indí- ána linnti (með útrýmingu þeirra í ná- grenni borgarinnar í lok 18. aldar) kallað- ist torgið einfaldlega Plaza del Mercado (Markaðstorgið). Bretar hernámu Buenos Aires árið 1806, en voru gjörsigraðir í hörðum götu- bardögum árið 1807. 400 breskir hermenn féllu og meira en 2000 voru teknir hönd- um. Sigrinum var fagnað á torginu, sem nú skyldi heita Plaza de la Victoria (Sigur- torg). Núverandi nafn sitt fékk torgið af maímánuði 1810 þegar borgin lýsti yfir sjálfstæði frá Spáni. Allar götur síðan hafa borgarbúar streymt til Maítorgs þegar fagna skyldi unnum sigrum eða mótmæla ranglæti inn- lendra eða erlendra valdhafa. I Argentínu er lýðræðið afstætt og teygjanlegt hugtak. Mannréttindi eru tilfallandi. Stundum nýtur þú kosningaréttar og mannréttinda, stundum ekki. Síðustu 100 árin; yfirleitt ekki. Þegar fjölmiðlar eru lokaðir venju- legu fólki sem vill koma skoðunum sínum á framfæri er eini kosturinn að nota götur og torg. í Buenos Aires nota menn Maí- torgið. Stjórnmálasamtök, verkalýðsfélög, rík- isstjórnir og trúfélög hafa í gegnum árin notað torgið sem vettvang sinn. Þar svar- aði verkalýðshreyfingin kalli Evu Perón að mótmæla brottvikningu eiginmanns hennar frá völdum árið 1945. Tíu árum seinna varpaði flugherinn sprengjum á mannfjöldann sem safnast hafði saman til að verja stjórn Peróns fyrir yfirvofandi valdaráni hersins. Árið 1982 gengu borgarbúar úr húsi til torgsins að fagna innrás herforingjastjórn- ar Galteri á Falklandseyjar eða Malvinas eyjaklasans eins og hann kallast í Argen- tínu. Nokkrum mánuðum síðar streymdi fólksfjöldinn til torgsins að krefja einræð- isstjórn hersins skuldaskila. Þegar upp- reisnaröfl innan hersins skökuðu vopnin um páska 1987 svöruðu 300.000 borgar- búar ákalli Alfonsins, þáverandi forseta, að verja lýðræðið á Maítorgi. Á torginu hafa menn fagnað sigrum í heimsmeistara- keppninni í fótbolta (og grátið ósigra). Og syrgjandi mæður hafa safnast þar saman á hverjum fimmtudagseftirmiðdegi í 10 ár til að krefjast réttlætis. Það er heitur og rakur fimmtudagseftir- miðdagur laust fyrir mitt sumar á suður- hveli þegar ég olnboga mig gegnum mann- fjöldann á gangstéttum 9. júlí breiðstræt- isins og held niður Maígötu að torginu. Umferðarþunginn er ótrúlegur og leigu- bílar og strætisvagnar af öllum stærðum og gerðum þvælast hver fyrir öðrum og keppast við að menga andrúmsloftið. Það 18 ÞJÓÐLÍF
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.