Þjóðlíf - 01.01.1991, Side 23

Þjóðlíf - 01.01.1991, Side 23
Konur skipa einungis 6% af þingsætum á EB-þinginu. Hér er kvenframbjóðandi frá SPD í Þýskalandi í kosningabaráttu. Að mati gagnrýnenda Evrópubanda- lagsins ber að taka allar spár um fleiri atvinnutækifæri innan EB-ríkjanna með fyrirvara. Það takmark Evrópubandalag- sins að auka hagkvæmni atvinnulífsins getur allt eins haft í för með sér að margir kvennavinnustaðir sem byggja á ýmiss konar opinberri þjónustu án kröfu um arðsemi verði lagðir niður. Það þykir því margt benda til þess að hinn svokallaði innri markaður EB-ríkj- anna auki fátækt kvenna, auk þess sem fátækt muni almennt aukast í Evrópu. í dag lifa 44 milljónir manna eða 14% undir því sem Evrópubandalagið skilgreinir sem fátækramörk. Yfir helmingur þeirra eru eldri konur og einstæðar mæður. Agneta Stark, dósent í viðskiptafræði við háskólann í Stokkhólmi er í hópi þeirra sem halda því fram að sameiginleg- ur markaður Evrópu geti haft slæmar af- leiðingar fyrir konur. Hún hefur bent á að innan Evrópubandalagsins geti m.a. fjöl- skyldupólitík Svía átt undir högg að sækja — pólitík sem byggist á því að um 80% sænskra kvenna stundar launavinnu. I löndum Evrópubandalagsins vinna hins vegar að meðaltali aðeins 20% kvenna ut- an heimilisins. Fjölskyldupólitík Evrópu- bandalagsríkjanna er í veigamiklum atrið- um ólík þeirri sænsku. Hún byggir á því að umönnun barna og eldri borgara eigi sér fyrst og fremst stað á heimilunum, þar sem ólaunað vinnuafl kvenna er að finna. Karlmenn bera ábyrgð á efnahagslegri framfærslu fjölskyldunnar og eiginkonur eru efnahagslega háðar mönnum sínum. Agneta Stark bendir á að með inngöngu í Evrópubandalagið verði Svíar að aðlaga sig þeim efnahagslega veruleika sem ríkir í EB-ríkjunum. Þeir verði ekki einungis að aðlaga sig atvinnuleysinu og skattakerf- inu, heldur einnig því opinbera kerfi sem sé til staðar í þessum löndum. Sameigin- legur markaður minnki fjármagn hins op- inbera, þar sem virðisaukaskatturinn muni lækka, tollar verði felldir niður og tekjuskattar lækkaðir. Velferðarríki að sænskri fyrirmynd muni því eiga erfitt uppdráttar. (Tekjur danska ríkisins eru sagðar hafa minnkað um 20% síðan Danir gengu í EB). ví er oft haldið fram að afstaðan til Evrópubandalagsins snúist um það hvers konar þjóðfélag við viljum; hvort við viljum gallhart samkeppnisþjóðfélag eða mýkra velferðarþjóðfélag. Hug- myndafræði Evrópubandalagsins byggir á einstaklingshyggju; á því að einstaklingar sjái um sig sjálfir, jafnvel hvað snertir þætti eins og ellilífeyris- og örorkutrygg- ingar. Það er gert ráð fyrir að einstaklingar kaupi sér tryggingar sem velferðarþjóðfé- lagið hefur hingað til séð um fyrir þá, eða að þeir semji við atvinnurekendur um slíkt. Ef meirihluti kvenna innan Evrópu- bandalagsins hefur ekki eigin tekjur, er ljóst að slíkt kerfi kemur þeim ekki að gagni. Evrópubandalagið hefur að vísu jafn- réttislöggjöf sem gengur í mörgu lengra en jafnréttislöggjöf Svíþjóðar. En — segja gagnrýnisraddirnar, áralöng reynsla af jafnréttislögum sýnir að lagabókstafurinn einn sér tryggir ekki efnahagslega, félags- lega og pólitíska stöðu kvenna. Því telja margir fulla þörf á að umræða um inn- göngu Svía í Evrópubandalagið verði ekki eingöngu út frá sjónarhóli fyrirtækjanna, eins og hefur verið áberandi hingað til, heldur einnig út frá sjónarhóli hins al- menna borgara og þá ekki síst kvenna, sem eiga sérstaklega undir högg að sækja, verði grundvellinum kippt undan sænskri velferðarpólitík. () uTt? ÁLASKA BÍLAVÖRUR í SÉRFLOKKI Heildsöludreyfing: PRbúðin hf. S: 641418

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.