Þjóðlíf - 01.01.1991, Side 31

Þjóðlíf - 01.01.1991, Side 31
Hannes Pétursson í herbergi sínu á stúdentagarðinum í Köln árið 1952. Hans vinur minn sagði mér að fjölskylda sín hefði á nasistatímanum lent í stökustu vandræðum þess vegna. Hún vissi sjálf að forfeðurnir voru ekki gyðingar en varð að sanna það. Dugði þá ekki minna en ætt- fræðingur og honum tókst með fyrirhöfn að búa til niðjatal sem sýndi að ættfaðir að nafni Rothenberg var aríi og hafði búið langt suður í landi, gott ef ekki í bæversku Ölpunum. Þarna tókst fjölskyldu Hans Rothenbergs sem sagt að bjarga lífi sínu með hjálp ættfræðinnar, ef svo má segja. í Köln var allt að byrja, Sambandslýð- veldið þriggja ára gamalt, þýska markið fjögurra ára. Þjóðin var þrúguð. í lestar- vögnum var maður alltaf að hitta fólk sem þurfti að segja ævisögu sína. Því lá svo mikið á hjarta. Margt af því var með lítinn farangur og hafði augljóslega lent í mörgu misjöfnu. Sumt blygðaðist sín eflaust fyrir að ferðast á öðru eða þriðja farrými. Það hafði verið efnafólk áður og hélt að það sæist á sér og þess vegna vildi það túlka hvers vegna það væri að ferðast svona. Ekki var hins vegar mikið talað um glæpaverk nasista. Það hafði vitaskuld verið stjórnarstefna á stríðsárunum að halda glæpunum leyndum. Og á eftir hrökk fólkið við. Það var með mikla and- lega timburmenn þegar ég kom þarna. Eina lækningin var vinnan og það að reyna að halda sér uppréttum. Ekki vantaði vinnusemina í Þjóðverja á þessum árum en þeir voru samt farnir að skemmta sér á réttum tímum, halda karnival og reka af sér drungann. Þá þegar voru margir farnir að efnast, auður kominn í landið,verslun- argötur í miðbæinn, hlaðnar glæsivörum og þær gátu eflaust aðeins þrifist ef ein- hverjir áttu peninga. Við dyr þessara glæsiverslana sátu iðulega menn á besta aldri sem örkumlast höfðu í stríðinu, léku t.d. á hljóðfæri eða reyndu með öðru móti að verða sér úti um smáaura. Aðrir borgarhlutar höfðu orðið útund- an og voru enn rústir einar. Því er ekki að neita að það var þrúgandi fyrir mig svona ungan að vera heilan vetur nálægt eyðileggingu stríðsins. Kirkjan hélt and- lega í mér lífinu. Ljóð Morgunn. Og kirkja í þokunni. Pvílíkir turnar! Á hröðu flugi til himins við augum mér! Gotneskir turnar á gnýþungu flugi við rismál upp frá borginni, upp! þar sem ég stóð fákœnn og ungur fyrsta dag minn í heimi rústa. Pessi hróp, þau hrundu þá ekki! í sprengjuregni þegar borgin öll brann sigurhróp felld í steinhleðslur tveggja turna. (Ur Heimkynnum við sjó 1980) ÞJÓÐLÍF 31

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.