Þjóðlíf - 01.01.1991, Page 36
MENNING
OLLU
ÓSKAR GUÐMUNDSSON
Ásgeir Hannes Eiríksson
Ein með öllu, áfangaskýrsla frá áhorf-
anda, 231 bls.
Fróði h.f. 1990.
Bók Ásgeirs Hannesar hefur áreiðan-
lega ekki átt að vera uppgjörsbók.
Engu að síður hefur hún orðið það; hún er
t.d. uppgjör við Sjálfstæðisflokkinn. Allt
frá því að Frjálslyndi flokkurinn gekk til
liðs við íhaldsflokkinn 1929 og Sjálfstæð-
isflokkurinn varð til hafa frjálslyndir verið
í eins konar herkví innan flokksins að mati
höfundar. Meginkenningin er sú að íhald-
ið, flokkseigendafélagið, í Sjálfstæðis-
flokknum hafi haldið frjálslyndu öflunum
niðri í flokknum, en þau hafi stundum
brotist fram, einkanlega þegar hæfileika-
ríkir leiðtogar komu við sögu og buðu
íhaldinu byrginn. Gunnar Thoroddsen
var mestur slíkra áður en kom til stofnun-
ar Borgaraflokksins. Og hefði ekki heilsu-
PERLUHVÍTAR
TENNUR MEÐ
Pearl drops
Pearl drops
TANNKREMIÐ SEM
TANNLÆKNIRINN
NOTAR!
FÆST I NÆSTU VERSLUN
Krfctján^on hF
FAXAFENI 9 SlMI 91-678800
leysi hrjáð dr. Gunnar hefði hann getað
leitt frjálslyndu öflin í flokknum úr her-
leiðingunni árið 1983. Fram kemur að
Gunnar átti dýpri rætur í Sjálfstæðis-
flokknum og hafði víðtækari tilhöfðun þar
heldur en Albert Guðmundsson, en
e.t.v. réðu tilviljanir nokkru um að það
varð hlutskipti Alberts að etja kappi við
„flokk sinn“ í síðustu kosningum.
Bjargaði það Sjálfstæðisflokknum
þegar til lengri tíma er litið að það var
Albert sem átti hlut að máli? Það gæti
maður ályktað við lestur bókarinnar, því
fram kemur það mat, að Albert hafi aldrei
viljað ganga svo langt að stofna flokk.
Heitfengi stuðningsmanna og æsileg at-
burðarás hafi hrundið honum til þess. Og
Ásgeir Hannes rekur margt sem styður þá
kenningu að Albert hafi aldrei verið nema
hálfur í nýja flokknum sínum. Þar til hann
fór svo allur úr honum til Parísar.
„Albert Guðmundsson er einn af þeim
mönnum sem mér þykir vænst um og eru
mér kærastir“, skrifar Ásgeir Hannes en
pólitískt ástarsamband þeirra drengja er
langfrægt og mótsagnakennt. Bókarhöf-
undur lýsir því á dramatískan hátt, en frá
stofnun Borgaraflokksins hefur æ oftar
hlaupið snurða á þráðinn í þessu sam-
bandi. Það gætir mikillar beiskju í garð
Alberts, sem hvað eftir annað hefur
brugðist þessum dygga pólitíska syni sín-
um. Samt er leyndur þráður þeirra á milli,
sem aldrei slitnar.
Asgeir Hannes getur ekki leynt biturð
sinni gagnvart Albert, Júlíusi Sól-
nes og þróun Borgaraflokksins. Albert
virðist aldrei hafa verið gefið um frama
Ásgeirs Hannesar, hvort sem um er að
ræða vænlegt framboðssæti til þings eða
framboð til varaformennsku í Borgara-
flokknum.
Albert virðist ekki hafa gert sér grein
fyrir þýðingu bókarhöfundar í öllu brölt-
inu, þó á hinn bóginn hafi alltaf verið
pólitískir kærleikar með þeim. Ekki er
annað að skilja en Albert hafi brugðist
pólitískri tryggð við samverkamenn sína í
Borgaraflokknum og því fór sem fór.
A
Ásgeir Hannes Eiríksson. Háðskur, fyndinn,
beiskur.
Reyndar er sú kenning til að bræðralag og
tryggð Alberts við aðra hafi ævinlega kall-
að á samúð, virðingu — og fylgi. Þegar
hann svo bregst tryggðinni missi hann
fylgið. Og þetta er e.t.v. lögmál sem er
fyrirferðarmikið í íslenskum stjórnmál-
um, jafnvel íslandssögunni.
Ásgeir Hannes er afskaplega einlægur í
þessari bók. í því felast miklir kostir fyrir
lesanda og rýnendur. Hann dregur t.d.
ekki fjöður yfir pólitísk mistök sín í Borg-
araflokknum, sem hafa valdið því að hann
er nú einangraðri en nokkru sinni í þeim
hópi manna sem enn hanga í flokki Borg-
ara. En gremja hans, jafnvel réttlát reiði,
við samflokksmenn er mikil. Núverandi
formaður og Guðmundur Ágústsson fá
ekki háa einkunn, og óneitanlega virðist
sem Ásgeir Hannes eigi fáa vini eftir þar á
bæ, nema Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur og
Óla Þ. Guðbjartsson. En þau vega líka
þungt í pólitík og vandséð t.d. hvernig
núverandi ríkisstjórn hefði orðið til nema
vegna þeirra og Ásgeirs Hannesar.
Eftir framboð Borgaraflokksins og
burtför Alberts hefur sjálfsagt verið
óvinnandi vegur að halda flokknum sam-
an, því það þarf öðruvísi pólitík að koma
til er aldurinn færist yfir heldur en rétt
36 ÞJÓÐLÍF