Þjóðlíf - 01.01.1991, Side 37

Þjóðlíf - 01.01.1991, Side 37
eftir fæðingu. Og kannski hafa fleiri en Ásgeir Hannes litið á vettvang sinn ein- göngu sem persónupólitískan grundvöll. „Pólitíkin er ekkert annað en hólmgöngu- völlur fyrir mannlegar tilfmningar“, skrif- ar hann. Og margur verður að lúta í lægra haldi á þeim velli. En pólitík er líka aðeins víðfeðmari en þetta. Áður var minnst á einlægni höfundar og hve bókin lægi opin fyrir lesendum af þeim sökum. En á henni er önnur hlið, —það verða nefnilega skrambi margir fyrir barðinu á þessari einlægni. Þannig mun bókin að líkindum hvorki stækka né þétta lið borgaraflokksmanna á bakvið Ás- geir Hannes Eiríksson. Máske breytir það litlu, því þessi saga er jafnframt útfarar- saga Borgaraflokksins. Þeim flokki virðist fyrirmunað að rata lífvænlega leið, — og bókarhöfundur eyðir máske aðeins of miklu plássi í að benda á hvenær og hvernig flokkurinn hefði getað átt mögu- leika á að gera annað en hann gerði. I þeim efnum virðist aldrei hafa verið farið að ráði Ásgeirs Hannesar, —enn eitt tilefni sár- inda. Bókin spannar í stórum dráttum tíma- bilið frá 1987 til ársloka 1990. Þarna er rakin athygliverð og spennandi saga, upprisa og hnignun ákveðinnar hreyfing- ar í íslenskum stjórnmálum. Ásgeir Hann- es segir einnig frá tilurð Nýs vettvangs í Reykjavík—,eins og hún kemur honum fyrir sjónir. Flestir vita að í sögu af póli- tískri atburðarás og framvindu hafa allir þátttakendur sína eigin persónulegu upp- lifun, sem þeir eru sannfærðir um að sé hin eina rétta. Og áreiðanlega verða marg- ir til að vitna um að þeir líti liðna tíð öðrum augum en Ásgeir Hannes Eiríksson. Ásgeir Hannes hefur, frá eigin sjónar- hóli, opnað samtíð sinni og framtíð sögu, sem hætt er við að ella hefði glatast. Bókin er eins og vænta mátti af hans hálfu oftast nær skemmtileg aflestrar og víða fyndin. Beiskjan í þessum sérstæða stjórnmála- manni reykvískrar götu og torga kemur hins vegar á óvart. Allir áhugamenn um stjórnmál á íslandi verða að lesa Eina með öllu. 0 PERLUHVÍTAR TENNUR MEÐ Pearl drops Pearl drops TANNKREMIÐ SEM TANNLÆKNIRINN NOTAR! FÆST I NÆSTU VERSLUN Kri^tján^on hF FAXAFENI 9 SlMI 91-678800 Smíðum flekahurðir úr lituðu klæðningarstéli eða trefjaplasti fyrir Verksmiðjur Verkstæði Vörugeymslur Bifreiðageymslur o.fl. með eða én glugga Öryggi — þægindi ótrúleg ending og ekki spillir útlitiö. íslensk framleiðsla sem stenst samkeppni Stíll aðutan seminnan. Allar frekari upplýsingar fást BIFREIÐA- & TRÉSMIÐJA BORGARNES BORGARNESI — SÍMI 93-71975 ÞJÓÐLÍF 37

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.