Þjóðlíf - 01.01.1991, Side 40

Þjóðlíf - 01.01.1991, Side 40
Ertu á leiðinni utan? VETRARTILBOÐ ■ « HÓTELIÐ VID FLUGVÖLLINN 42 þægileg herbergi, fyrsta flokks veitingastaður og bar. Aðeins fimm mínútna akstur frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hjá okkur fá ferðamenn fyrsta flokks þjónustu. - Alltaf. Flug hótelið í Keflavík er hótelið við flugvöllinn. Vel búin herbergi og svítur. Veitingasalur, bar og rástefnusalur. Bílageymsla í kjallara akstur til og frá Flugstöðinni. VEISLU- OG RÁÐSTEFNUSALUR HAFNARGATA 57, 230 KEFLAVlK SlMI 92-15222, FAX 92-15223 Jói hefur ekki tekið neitt danskennara- próf en kennir rokk hjá Auði Haralds enda hefur hann eingöngu dansað rokk síðustu fjögur árin. Jói og María Huldars- dóttir hafa dansað saman undanfarin þrjú ár. Þau unnu Islandsmeistaratitilinn árið 1990 og hafa nú dansað í yfir 400 sýning- um um land allt. í janúarlok hyggjast Jói og María verja Islandsmeistaratitill sinn í rokki. Um fyrirhugaða keppni segir Jói: „Samkeppni er því miður engin í þeim flokki sem við keppum í. Áhugi á rokki er samt mikið að aukast. Við María reynum að kenna og byggja upp rokk hérlendis sem er sambærilegt því sem kennt er er- lendis." Jói hefur greinilega engar áhyggj- ur af því að tapa titlinum þetta árið. Jói og María dvöldust um tíma í Hanno- ver í Þýskalandi. Markmið dvalarinnar var námskeið í „sérhönnuðum rokkstökk- um“. Strangar æfingar voru frá 9-18 alla daga. „I Þýskalandi höfðum við þjálfara. Hér verðum við María að hafa okkur öll við að fylgjast með öllum nýjungum í dansinum. Við getum einungis treyst okk- ur sjálfum. Við lærðum stór stökk í Þýska- landi sem einungis þrjú samkomuhús á Islandi hafa rými fyrir“, segir Jói og held- ur áfram: „Við lentum strax í A flokki. Við vorum reyndar mjög hissa á því. Þetta voru 300 pör sem öll höfðu mjög líkan stíl. Okkar stíll var mjög frábrugðinn“, segir Jói. Hann kveður spörkin í rokkinu erlendis miklu hærri en hans og Maríu. Þau hafa tileinkað sér lægri spörk sem þeim þykir fallegri. Áhugi fyrir rokki og aðsókn í rokk- kennslu hefur augsýnilega aukist. Ein ástæða þess gæti verið að frábærum rokk- sýningum hefur fjölgað undanfarin ár. „Enginn sem við þekkjum er líklegur til þess að vinna af okkur titilinn. Ef við hættum að kenna í tvö ár þá getum við aftur keppt í áhugamannaflokki, nú erum við atvinnumenn“, segir Jói. Jói hefur um tíma verið sölumaður hjá öryggismiðstöðinni Scanis. Jafnframt kennir hann rokk og tjútt í dansskóla Auð- ar Haralds. Þess á milli stjórnar hann upp- setningum á stórum rokksýningum um allt land. „Það er alltaf nóg að gerast og maður er alltaf með kollinn uppfullan af hugmyndum. Hugmyndaflugið er alltaf til staðar. Mikilvægast er að framkvæma strax það sem manni dettur í hug. Ég get eiginlega þakkað því velgengni mína.“ „Nýjasta hugmynd mín er að fá hingað til lands lamaða konu sem þróað hefur hjólastóladans. Það er ekki langt síðan ég byrjaði að setja upp rokksýningar en sú fyrsta var Rokk sviti og pilsaþytur sem sýnd var við metaðsókn í Glaumbergi í Keflavík í ágúst 1989.“ „Nú hefur sú sýning verið endurhönn- uð og sýningar standa yfir í Sjallanum á ARRID OG ÓSONLAGIÐ HLIFA ÞER OG ÞÍNUM í SÁTT OG SAMLYNDI! ARRID EXTRA DRY SVITALYKTAREYÐIR INNIHELDUR EKKI ÓSONEYÐANDI EFNI ...fæst í næstu verslun Krbtjón^on hF FAXAFENI 9 S. 91-678800 40 ÞJÓÐLÍF

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.