Þjóðlíf - 01.01.1991, Side 48
MENNING ÍB Í^—ÍMeM
Ég hneigist svolítið til að vera ekki að
einblína á listrænt gildi þó það verði að
vera með líka, en mér finnst það einkenna
áratuginn hvað voru margar sterkar „týp-
ur“ í tónlistinni. Þetta er fólk sem kemur
upp á yfirborðið á sjöunda og áttunda ára-
tugnum. Það eru nokkrar af þessum
sterku „týpum“ á listunum hjá mér, en
mér finnst semsagt að þessar persónur
einkenni fyrst og fremst þennan áratug og
hin sterku áhrif þeirra. Svo mætti líka
nefna fleiri sem komu fram seinna eins og
t.d. Madonnu, sagði Andrea Jónsdóttir.
Jónatan Garðarsson, útgáfustjóri
Steina h/f
Innlent:
1. Bubbi Morthens: Kona
2. Sykurmolarnir: Life’s too good
3. Megas: Loftmynd
4. Todmobile: Betra en nokkuð annað
5. Mezzoforte: 4
6. Grafík: Leyndarmál
7. Þursaflokkurinn: Gæti eins verið
8. Valgeir Guðjónsson: Fugl dagsins
9. Risaeðlan: Risaeðlan
10. Bubbi Morthens: Sögur af landi
Erlent:
1. Paul Simon: Graceland
2. Sinead O’Connor: The Lion and the
Cobra
3. Prince: Purple Rain
4. R.E.M: Murmur
5. Eeek A-Maus: Wa-do-dem
6. U2: Unforgettable Fire
7. Ofra Haza: Yemenite Song
8. King Sunny Ade and his African
Brothers: Eri Okan
9. Simple Minds: New Gold Dream
10. Gypsy Kings: Gypsy Kings-
í upphafi var það náttúrlega nýbylgjan
og pönkið sem blómstruðu hér heima, en
erlendis var það bræðingur af nýbylgjunni
og öðrum tónlistarstefnum.s.s. reggí, jassi
og afrískri tónlist, sem mest bar á. Þegar
leið á áratuginn þá fjölgaði góðum at-
vinnumannahljómsveitum hér heima, að-
allega vegna þess að afrakstur nýbylgjunn-
ar voru ferskir og jákvæðir straumar í ís-
lenskri tónlist. Hljóðverum fjölgaði og
það auðveldaði tónlistarmönnum mjög að
koma tónlist sinni á framfæri.
Erlendis er það gegnumbrot og síaukn-
ar vinsældir heimstónlistarinnar og finnst
mér það mjög áhugavert. Og framboð
þessarar tónlistar, sem var mjög lítið í
fyrstu er alltaf að aukast. Það er einnig
mjög athyglisvert hvað „gömlu mennirn-
Jónatan Garðarsson. Aratugurínn þar sem tónlistarmenn komu fram sem mjög sterkt afl til að
umbreyta hlutum.
ir“ hafa staðið sig frábærlega á áratugnum:
Van Morrison, „Rolling Stones“, Bob
Dylan, Lou Reed, Neil Young svo ein-
hverjir séu nefndir. Þetta eru allt saman
menn sem maður hefði undir eðlilegum
kringumstæðum verið búinn að afskrifa.
Það er líka mjög áhugavert hvað konur
hafa verið áberandi á þessum áratug og hjá
þeim hafa komið fram klassa listamenn á
borð við Tracy Chapman og Suzanne
Vega.
Einnig er mjög athyglisvert hvað tón-
listarmenn hafa haft mikið að segja í sam-
bandi við mannúðarmál, ég nefni Live
Aid, samstarfið við Amnesty Internation-
al og Human Rights Now tónleikaferðina.
Ekki má gleyma því að Nelson Mandela
var að stórum hluta til látinn laus vegna
48 ÞJÓÐLÍF